Sveitarstjórnarmál - 01.04.1987, Page 26
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Staógreidsla gjalda og laga-
frumvarp um framhalds-
skóla
41. fundur fulltrúaráósins:
Fulltrúaráð sambandsins, sem
kosið var á landsþingi þess í
septembermánuði sl., hélt fyrsta
fund sinn á fjögurra ára kjörtímabili
sínu á Hótel Borgarnesi 20. og 21.
febrúar sl. Hafði fundinum verið
flýtt um mánuð frá því, sem ákveð-
ið hafði verið og boðað til í síðasta
tölublaði. Var það gert, þegar lögð
voru fram á Alþingi lagafrumvörp
um breytingar á tekjustofnalögum
og um staðgreiðslu gjalda og til-
kynnt, að Alþingi myndi Ijúka
störfum í marzmánuði.
í fulltrúaráði sambandsins eiga
sæti þrír fulltrúar fyrir hvern lands-
hluta, nema fjórir fyrir Reykjavík
svo og formenn og framkvæmda-
stjórar landshlutasamtakanna með
málfrelsi og tillögurétti.
Björn Friöfinnsson, formaður
sambandsins, setti fundinn og
gerði grein fyrir aðdraganda fund-
arins. Einnig kynnti hann helztu
umræðuefni fundarins, sem hann
kvað þrjú, breytingar á skattalög-
um og tillögur um staðgreiðslu
gjalda til ríkis og sveitarfélaga,
frumvarp til laga um framhalds-
skóla, sem lagt hafði verið fram á
Alþingi, og loks stofnun héraðs-
nefnda samkvæmt níunda kafla
sveitarstjórnarlaganna.
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, flutti ávarp við setn-
ingu fundarins. Gerði hann þar
grein fyrir þeim málum, sem unnið
væri að í félagsmálaráðuneytinu
um þessar mundir og snerta
sveitarfélög. Nefndi hann sérstak-
lega starf að sameiningu sveitar-
félaga og að breytingum á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga og
upptöku staðgreiðslukerfis gjalda.
Eyjólfur Torfi Geirsson, oddviti
Borgarneshrepps, ávarpaði einnig
fundarmenn og bauð þá velkomna
til starfa í hreppnum. Kynnti hann
síðan byggðarlagið og atvinnu-
hætti þar.
Fundarstjórar voru síðan kjörnir
Björn Friðfinnsson, formaður
sambandsins, og Eyjólfur Torfi
Geirsson, oddviti Borgarnes-
hrepps, og fundarritari Kristín R.
Thorlacíus, oddviti Staðarsveitar,
og henni til aðstoðar settur Unnar
Stefánsson.
Einnig voru kosnar fimm starfs-
nefndir, fjárhagsnefnd, allsherjar-
nefnd, framhaldsskólanefnd,
héraðsnefnd og staðgreiðslu-
nefnd.
Skýrslur og ársreikningar
Björn Fridfinnsson flutti siðan
skýrslu um störf sambandsins þá
mánuði, sem liðnir eru siðan
landsþing þess var haldið í sept-
ember. Gerði hann sérstaklega
grein fyrir málefnum Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga og mótmælum
stjórnar sambandsins gegn skerð-
ingu á framlagi ríkissjóðs til sjóðs-
ins. Kvað hann framlög ríkisins til
sjóðsins myndu verða svipuð á
þessu ári og því síðasta og um
400 millj. króna lægri en vera ætti
samkvæmt ákvæðum tekjustofna-
laga og söluskattslaga. Einnig
ræddi hann hugmyndir um skerð-
ingu framlaga ríkisins vegna
endurgreiðslu á aksturskostnaði,
um endurskoðun grunnskólalaga
og fleiri mál. Loks vék hann að ný-
gerðum kjarasamningi á vegum
launanefndar sveitarfélaga, sem
hann kvaþ tímamót.
Magnús E. Guöjónsson, fram-
kvæmdastjóri sambandsins,
kynnti ársreikning sambandsins
fyrir árið 1986 og tillögu að fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1987. Hvort
tveggja var samþykkt síðar á fund-
inum. Niðurstöðutölur rekstrar-
reiknings fyrir árið 1986 eru 12,7
millj. króna og fjárhagsáætlunar
Frá fulltrúaráösfundinum á Hótel Borgarnesi. Á myndinni eru, talid frá vinstri, Eyjólfur
Torfi Geirsson, oddviti Borgarneshrepps, Björn Friðfinnsson, formaður sambands-
ins, Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, og Indriði Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu.
72 SVEITARSTJÓRNARMÁL