Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Síða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Síða 15
Heilbrigbismál 237 hafa komið síðustu misserin. Lögreglan hefur upp- lýst viðamikil mál undanfarið og rofið þannig inn- flutningsleiðir til landsins. Þannig hafa straum- hvörf orðið hvað þennan þátt í baráttunni við fíkni- efnasmygl varðar. Nú er þörf á að hefja sams konar átak gegn dreifingu og sölu innanlands með ennþá öflugra forvarnastarfi og markvissara eftirliti. Fíkniefna- neysla ungs fólks tengist að miklu leyti skemmt- anamenningu þess, og er því þörf á auknu eftirliti, meðal annars í forvarnaskyni. Samkvæmt saman- tekt embættis ríkislögreglustjóra á þriðjungur líkamsmeiðinga sem tilkynntar eru til lögreglu sér stað inni á skemmtistöðum eða við þá og meirihluti þeirra á sér stað frá miðnætti til klukkan sex að morgni sé horft til landsins alls.3) Aðgerðir lögreglu og sveitarfélaga eiga m.a. að miðast við að sporna við ofbeldisverkum og fíkniefnaneyslu í tengslum við skemmtistaði, en tengsl virðast á milli þessara þátta, sbr. samantekt embættis ríkislögreglustjóra. b) Því verði sterklega beint til allra viðkom- andi aðila að lög um aðgengi barna og ungmenna að áfengi og tóbaki séu virt og þeim fylgt fast eftir. Skorað verði á lögregluyfirvöld og sveitarstjórnir sem veitendur leyfis til vínveitinga að gera ýtrustu kröfur til handhafa slíkra leyfa og rekstraraðila vínveitingahúsa um að lög um aðgengi ungmenna að vínveitinga- húsum og áfengi séu virt. Lagt er til að Sam- band íslenskra sveitarfélaga hvetji til viðræðna við lögreglu um eflingu samstarfs og að sveitar- félög hafi frumkvæði að því. Því verði beint mjög ákveðið til sveitarfélaga að setja sér skýra aðgerðaáætlun um viðbrögð við brotum á skilmálum vínveitingaleyfa og kynna þær rækilega. Jafnframt verði efld fræðsla um lög og reglur sem að þessum málum lúta. Því verði sérstaklega beint til þeirra sveitar- stjórna sem ekki hafa þegar sett sér skýrar reglur um íhlutun með aðgerðaáætlun um viðbrögð við brotum í skólum og þeim stofn- unum sveitarfélagsins, sem börn og unglingar sækja, að gera það nú þegar og fylgja þeim fast eftir. Fylgja þarf fast eftir að landslög og reglur sem sveitarfélög setja um vínveitingaleyfi séu virt, hvað varðar aðgengi og vínveitingar til ungmenna undir áfengiskaupaaldri. Efla þarf fræðslu fyrir söluaðila tóbaks, leyfishafa vínveitingaleyfa og rekstraraðila vínveitingastaða ásamt starfsfólki sem þar starfar, s.s. dyraverði og barþjóna, þannig að þessir aðilar verði sterklega meðvitaðir um ábyrgð sína og lagaskyldur. Nauðsynlegt er að reglur sveitarfélaga fyrir stofnanir sinar séu skýrar og öllum kunnar, bæði starfsmönnum og þeim sem húsin nota. Jafnframt því sem nauðsynlegt er að fylgja fast eftir lögum um aðgengi ungmenna undir aldri að vínveitingastöðum og sölu áfengis til þeirra, verður að gera þeim kleift að skemmta sér á heilbrigðan hátt í heimabyggð sinni. 7. Ráðgjöf og meðferðarúrræði Því verði beint til stofnana sveitarfélaga, þ.e. skóla, félagsþjónustu og æskulýðs- og íþrótta- • Slitmeiri lok - ISO staölar ■ 011 framleiðsla er efnagreind í fullkomnu efnagreiningartæki sem tryagir að efnisgæði uppfylla kröfur ISO staola. Helstu hlutir eru framleidair með dagsmerlingum og með því móti mó rekja framleiðsluno til gæðokerfisins. Flotkarmur/lok MÞJ ■ 120 í malbikaðar götur fyrir 40 tonna ólag Léttkarmur/lok MÞJ ■ 130 í malbikuð plön fyrir 25 tonna ólag Graskarmur/lok MÞJ -134 í gróðurreiti fyrir 25 tonna ólag Hellukarmur/lok MÞJ -136 í hellulagnir fyrir 25 tonna ólag ðurfallshólkar/ristar, margar gerðir fyrir götur, plön, gróðurreiti o.fl. MÁLMSTEYPA Þorgrims Jónssonar ehf. Hyrjarhöfða 9*112 Reykjavík Sími 587 2650 • Fax 56/ 4860
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.