Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Side 91
Ýmislegt
313
Hafofirðingar tuttugu þúsund
Hafnfirðingar eru nú orðnir 20.000 talsins.
Nýlega kom í heiminn drengur Kárason en hann
fæddist hinn 9. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans
eru Kári Freyr Unnsteinsson og Margrét Ósk
Gunnarsdóttir. Þau eiga eina dóttur fyrir sem heitir
Theodóra Líf Káradóttir, fædd 1997. Af þessu til-
efni færði Magnús Gunnarsson bæjarstjóri drengn-
um og fjölskyldu hans hamingjuóskir með von um
bjarta framtíð. Drengurinn fékk silfurkross með
áletruðu skjaldarmerki bæjarins og Theodóra Líf
fékk auðvitað líka pakka.
Foreldramir sögðu sposkir frá því að drengurinn
væri í fjölskyldunni kallaður „Tuttugukallinn“ og
það væri ekki bara vegna þess að hann væri
Hafnfirðingur númer 20.000 heldur væri hann
einnig tuttugasta ömmubarn föðurömmu sinnar og
móðurbróðir hans fékk hann í tvítugsafmælisgjöf!
Fyrir hundrað árum, árið 1901, voru Hafnfirð-
ingar 599 talsins og þegar bærinn fékk kaupstaðar-
réttindi 1908 hafði þeim frölgað um tæplega eitt
þúsund, voru þá 1469. Gífurleg fjölgun varð í
Hafnarfirði þar sem talsvert lifnaði yfir atvinnu-
málum og aukinni útgerð. Lagður var grunnur að
sjálfstæðu bæjarfélagi með kaupstaðarréttindi á
þessum árum en baráttan fyrir þeim réttindum
hafði þá staðið nokkuð lengi. Til er heimild frá
1876 þar sem 49 íbúar í bænum sendu erindi og
óskuðu eftir því að Hafnarljörður fengi kaupstað-
arréttindi.
Hann er kallaður „Tuttugukallinn" og lét sér fátt um frama sinn
finnast þótt sjálfur bæjarstjórinn vildi heiðra hann með gjöfum.
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Lilja Ólafsdóttir manntalsfulltrúi,
Kári Freyr Unnsteinsson pabbi, Magnús Gunnarsson bæjarstjóri
og „heiðursafi" dagsins og Margrét Ósk Gunnarsdóttir mamma,
heldur hér á Hafnfirðingi dagsins. Greinarhöfundur tók myndina.
Hafnfirðingum hefur síðan fjölgað verulega en
árið 1950 vorum við 5.087, 1960 vorum við 7.160,
árið 1980 12.205 og erum nú, sem fyrr segir, kom-
in yfir 20.000 íbúa markið. Á þessu ári hafa fæðst
158 Hafnfirðingar, þar af 82 stúlkur og 76 drengir.
Jóhann Guðni Reynisson, forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála Hafnarfjarðarbœjar
Sameining Vindhælishrepps
Félagsmálaráðherra hefur skipað nefnd um
sameiningu Vindhælishrepps í Austur-Húnavatns-
sýslu samkvæmt 6. og 89. grein sveitarstjórnarlag-
anna en þar á við hið sama og um Þingvallahrepp
sem frá er skýrt á bls. 272 hér að framan að íbúa-
tala hreppsins hefúr verið lægri en 50 í þrjú ár
samfellt. í nefndinni eru Jakob H. Guðmundsson
oddviti og Bragi Kárason, hreppsnefndarmaður í
Vindhælishreppi, tilnefndir af heppsnefndinni, Elín
Sameining sveitarfélaga
R. Líndal, oddviti Húnaþings vestra og formaður
Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
(SSNV), og Björn Magnússon, hreppsnefndar-
maður í Sveinstaðahreppi, tilnefnd af SSNV, og
Hermann Sæmundsson, deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, sem er formaður nefndarinnar.
Félagsmálaráðuneytið leggur áherslu á að
sameining hreppsins við nágrannasveitarfélag geti
orðið eigi síðar en við næstu sveitarstjórnarkosn-
ingar sem fram fara 25. maí á komandi ári.