Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 143
141
Guðm. R. Jóhannsson
Framtíð Samvinnuskólans
Rœtt við Guðmund Sveinsson fyrrverandi skólastjóra
Okkur fannst aö viö yrðum að heyra álit utanaðkomandi á Nemendasambandinu. Til
þess var sjálfkjörinn Guðmundur Sveinsson, skóiameistari Fjölbrautaskólans í Breið-
holti, sem í nítján ár var skólastjóri Samvinnuskólans og hefur manna lengst fylgst
með Nemendasambandinu. Það var auðsótt mál og fyrst var Guðmundur spurður
hvort Nemendasambandið hefði reynst skólanum styrkur.
að hefur ætíð verið mikill styrkur
fyrir Samvinnuskólann að hafa
þann bakhjarl sem Nemenda-
sambandið er. Fyrrverandi nemendur
hafa jafnan sýnt skóla sínum mikla rækt-
arsemi.
Tvö mál voru það sem Nemendasam-
bandið beitti sér einna mest fyrir á þeim
árum sem ég var að Bifröst, og ég hika
ekki við að segja með miklum árangri.
Á árunum laust fyrir 1970 voru miklir
erfiðleikar í rekstri Sambands ísl. sam-
vinnufélaga og þá þótti mörgum rekstur-
inn að Bifröst nokkuð dýr. Þá kom upp
sú hugmynd að kaupa land í Mosfells-
sveit eins og byggðin hét þá og færa skól-
ann þangað. Voru talin mörg rök til
stuðnings þeirri tillögu. Ég benti aftur á
þá kosti sem fylgdu verunni að Bifröst,
og taldi sannað með árangri nemenda,
hvort sem þeir störfuðu að viðskiptum
eða félagsmálum, að gildi skólans þar í
ró Norðurárdals og heimilisanda staðar-
ins væri ótvírætt. Nemendasambands-
menn lögðu okkur mikið lið í þessu máli
og gengu fulltrúar þeirra m.a. á fund for-
ystumanna Sambandsins og munu hafa
flutt þar mál sitt af miklum þunga. Það
hafði veruleg áhrif á Sambandsmenn og
ég fullyrði að framganga Nemendasam-
bandsins í þessu máli hafi verið eitt
þyngsta lóðið á vogarskálarnar Bifrast-
armegin. Þannig hafi Nemendasam-
bandið bjargað Samvinnuskólanum.
Hitt málið sem Nemendasambandið
barðist mjög fyrir var framhaldsmennt-
un. Fyrstu tíu árin að Bifröst má segja að
próf þaðan væri hliðstætt viðskipta-
fræðiprófi í dag, og tek ég þá auðvitað
mið af almennu námi þess tíma. En þeg-
ar kemur fram undir 1970 fer mönnum
að finnast að þeir hafi lent í blindgötu því
Samvinnuskólaprófið bauð ekki uppá
framhaldsnám.
Það var lögð mikil vinna í að athuga
þessi mál og ég minnist þess að við Hún-
bogi Þorsteinsson, fyrrum nemandi að
Bifröst og þá kennari, fórum utan til þess
að kynna okkur hvernig þessum málum
yrði best fyrir komið. Sú för varð ntjög
árangursrík og í framhaldi hennar var
gengið frá því að próf frá Samvinnu-
skólanum gilti til inngöngu í Handelshöj-
skolen í Kaupmannahöfn, og áttu margir
eftir að nýta sér það.
Framhaldsdeildin tók síðan til starfa
haustið 1973 og var ég skólastjóri hennar
fyrsta árið. Hún var þá mikill áfangi og
ánægjulegt að þetta baráttumál Nem-
endasambandsins komst í höfn.
Þannig var Nemendasambandið öfl-
ugur bakhjarl Samvinnuskólans þann
tíma sem ég starfaði að Bifröst og mér
fannst öryggi í því, að hafa liðsveit fyrr-
verandi nemenda jafnan við hlið mér.
Þú spyrð hversvegna samheldni sam-
vinnuskólanemenda sé svo mikil sem
raun ber vitni. Þar kemur eflaust margt
til. Námið að Bifröst var erfitt og er það
vafalaust enn og til þess að afkasta erfiðu
verki þarf gott atlæti, andlegt og líkam-
legt. Ég held að okkur sem stóðum fyrir
skólanum að Bifröst hafi tekist að skapa
þann anda heimilis þar sem menn fundu
þetta atlæti. Ég tel hiklaust hægt að full-
yrða að dvölin að Bifröst laðaði fram það
besta í mönnum.
Fortíðin - Framtíðin
Já, nú hafa miklar breytingar orðið að
Bifröst og þá má spyrja hvað verði um
Nemendasambandið. Áður kom í Sam-
vinnuskólann fólk á þroskaaldri með op-
inn hug og lítt mótað. Sumir jafnvel
andsnúnir samvinnuhreyfingunni en
fóru burt, ef ekki samvinnumenn, þá
með skilning og þekkingu á henni sem
félagsmálahreyfingu. Nú kemur í skól-
ann þroskað fólk með mótaðar skoðanir
og sumt hefur þegar fengið sína reynslu í
atvinnulífinu. Ég lýsi ánægju minni með
þetta að Samvinnuskólinn hefur á ný
komist í þann sess í menntakerfinu sem
honum ber.
En.eftir stendur að samvinnuhreyfing-
in missir af unga fólkinu, því fólki sem
hún þarf að vinna ef velli skal haldið. Ég
trúi því statt og stöðugt að hugsjónir
samvinnumanna um réttlæti og samtaka-
mátt eigi sama erindi í nútímanum og
þær áttu á fyrstu árum aldarinnar. Til að
Menn muna lengi kennslu Guðmundar Sveins-
sonar og hér er hann i kennslustund.