Helgafell - 01.06.1942, Page 103

Helgafell - 01.06.1942, Page 103
BÓKMENNTIR 233 um rætt, er að verulegu leyti komið undir því. hvert traust er hægt að bera til höfundarins um þekkingu, hlutlægni og heilbrigða dómgreind. En verði fyrir manni ummæli eins og þau, er ég hef getið hér að framan, og svipuð ummæli er að finna víða í bókinni, hlýtur traustið á höfundinum að bíða mikinn hnekki, og gildi bókarinnar sem áreiðanlegrar heimildar að rýrna mjög, þótt margar athuganir höfundar séu skynsamlegar og mannúðlegar. Höfundurinn hefur að því er virðist orðið sósialisti fyrst og fremst af kristilegum ástæð- um. Hann virðist hafa orðið sósíalisti af sömu ástæðum og hann lagði verkfræðina á hilluna, tók að stunda guðfræði og bauð sig fram til trú- boðsstarfs í Mið-Afríku, og staða hans öll mót- ast mjög af siðgæðishugsjónum (sbr. þessi um- mæli á bls. 304: ,,Ég vil þjóðskipulag, sem reist er á sönnum siðgæðisgrundvelli...Sósíal- isminn virðist vera honum tilfinningamál. Mér finnst bókin að miklu leyti vera mótuð af þeirri hugsun, sem fram kemur í eftirfarandi ummæl- um (bls. 175): „Það voru ekki verksmiðjurnar eða hagskýrslurnar, sem höfðu mest áhrif á mig í Ráðstjórnarríkjunum, heldur börnin." Meðan ég var að lesa bókina, varð mér stund- um hugsað til rits Lenins um trúarbrögðin, og ég gat ekki varizt þeirri hugsun, að mikil breyting hlyti að hafa orðið á forystumönnum Ráðstjórnarríkjanna, ef þeim væri túlkun dóm- prófastsins á sósíalismanum að skapi. Stundum virðist mér höfundurinn ekki hafa gert sér grein fyrir því, að sósíalisminn er fyrst og fremst sérstakt skipulag í búnaðarháttum, sérstakt hagkerfi. Að minnsta kosti hefur hann ekki komið auga á neitt af þeim höfuðvanda- málum, sem framkvæmd sósíalismans í Rúss- landi hefur haft í för með sér frá hagfræði- legu sjónarmiði, svo sem að hversu miklu leyti frjáls verðmyndun á afurðum og framleiðslu- háttum sé möguleg eða æskileg, eða hvernig hægt að áætla þarfirnar o. s. frv., og hefur þó mikið verið rætt um þetta í enskum hag- fræðitímaritum. Höfundurinn virðist heldur ekki hafa komið auga á það mjög svo þýðingarmikla viðfangsefni, sem allmikið hefur verið rætt af fræðimönnum, hvort það stjórnkerfi, sem nú rr í Rússlandi, hljóti að vera samfara búskapar- háttum sósíalismans eða hvort svo sé ekki. Ég er þeirrar skoðunar, að svo sé ekki, og ég er jafn eindreginn andstæðingur þess stjórnkerfis, sem nu er í Rússlandi, og ég er ákveðinn fylgis- maður þess hagkerfis, sem unnið hefur verið að undanfarna áratugi að koma þar á. Ég er meira að segja þeirrar skoðunar, að stjómkerfi Ráðstjórnarríkjanna spilli að verulegu leyti þeim árangri, sem ella mundi nást af hagkerfinu og sé í sjálfu sér andstætt eðli þess og hugsjón. En höfundurinn er fáorður um þessi mál. Skoð- anir hans á því, hvað sé lýðræði og ritfrelsi, virðast og vera tajsvert frábrugðnar þeim, sem ég aðhyllist og held, að óhætt sé að fullyrða, að séu algengastar. Þýðing Kristins E. Andréssonar magisters virðist ekki gerð af nægilegri vandvirkni, og skulu hér nefnd fáein dæmi þess. A bls. 62 er getið um ýmiss konar eyðileggingu á nauð- synjavörum, sem átt hafi sér atað í kreppunum, og sagt m. a.: „Hálf milljón aau&fjár var brennd til koldra fco/a*) í Chile". Það má telja mjög ólíklegt, að sauðfé hafi verið brennt lif- andi, og sennilegt, að höfundurinn hafi með orðinu „sheep" átt við kindarskrokka. Á bls. 170 segir: „Ekkert hefur jafn sterk áhrif á ferðamann, er kemur til Ráðstjórnarríkjanna, sem fjarlœgS óttans” /*) („absence of fear" þ. e. óttaleysi). Á bls. 205 segir: „Nú eru ekki leyfðar fóstureyðingar, nema læk.nisnauSsyn( I) krefjist“ ) (Abortion.... was abolished, save when it was necessary medically" þ. e. af heilsufarsástæðum, segir í ensku frumútgáf- unni). Þá virðist mér og, að víða hefði verið heppilegra að þýða orðið „plan" með orðinu „skipulag", en ekki með „áætlun", eins og gert er. — Ég vona, að Mál og menning gefi bráðlega út aðra bók um Ráðstjórnarríkin og vandi þá valið betur. Það er full nauðsyn á að kynna íslendingum sósíalismann og framkvæmd hans í Rússlandi. En málstaður sósíalisnians og Ráð- stjórnarríkjanna á skilið betri og raunsærri bók — og þó umfram allt sósíalistiskari bók — en Undir ráðstjóm. Gylfi þ. Gxslason. II. I Reykjavík gengur sú kviksaga, að bók ein nýútkomin hafi ráðið ekki litlu um úrslít síð- ustu alþingiskosninga. Bók þessi, sem kvoð hafa orðið svo áhrifarík um íslenzk stjórnmál, heitir Undir ráSstjórn, og er eftir Hewlett John- son, dómprófast í Kantaraborg. Ef einhver fót- ur er fyrir þessum orðrómi, mun án efa harm- *)Leturbreyting mín. G. Þ. G.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.