Helgafell - 01.12.1955, Blaðsíða 101
HEIMSÓKN í TRINIDAD
99
Frú Asa Wright. Mr. Wríght.
Kókóræktin. Kókótréð verður ekki nema 3—4 metra hátt og
fer að bera ávexti 3—4 árum eftir að það er gróðursett sem smá-
planta. Á Spring Hill Estate, sem þessi búgarður heitir, eru þúsundir
slíkra trjáa, og flest eru með ávöxtum á, af ýmsum stærðum. Blóm-
ið b kókótrénu er svo htið, að það sést varla með berum augum, rétt
á stærð við lítinn títuprjónshaus, bleikt, en ávöxturinn verður á stærð
við lambshaus, aflangur og ávalur til beggja enda. Skrítið er að sjá
þessa dökkrauðu, egglöguðu ávexti koma að því er virðist beint út
úr trjástofninum. Raunverulega hanga þeir allir á stilk, en hann er
svo stuttur, að hann sést ekki tilsýndar. Einstöku ávextir eru orðnir
biksvartir. Þegar nánar er aðgætt sést næstum fingurvítt gat ein-
hversstaðar á berkinum. Það er fugl (Woodpecker) sem hefur borað
gat á ávöxtinn, svo að hann sýkist og deyr.
Þegar ávextirnir eru orðnir þroskaðir þarf að tína þá af trján-
um. Síðan þarf að opna þá og taka kóbóbaunirnar úr þeim. Þær eru
á sf^ærð við litlar sveskjur, hvítleitar. Þær eru síðan þurrkaðar og
látnar gerjast í fáeina daga áður en hægt er að mala þær niður í kókó.
Trinidad er ágætt kókóland vegna þess, hve loftið er jafnheitt
og rakt. Mr. Wright hefur mælt og skrifað hjá sér mesta og minnsta
hita á hverjum sólarhring, í þau tíu ár sem hann hefur búið þarna.