Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
97% kvenna sögðu að húð þeirra
virtist samstundis heilbrigðari,
fallegri og með meiri ljóma.
12 einkaleyfi á heimsvísu.
SVO ÞRÓAÐ AÐ ÞAÐ
VIRÐIST HAFA INNSÆI
Nýtt Revitalizing Supreme
Multi-Action CC Creme
20% afláttur af
öllum vörum frá
Estée Lauder á
kringlukasti
20. - 24. mars
Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður Sjálfstæðis-
flokksins, er óhræddur við að
ganga á svig við sjónarmið sem
„eru inn“ þá og þá stundina.
Hann skrifarnýlega í pistil
sinn m.a. þetta:
Af hverju for-dæma Banda-
ríkjamenn og Evrópusambandið
ekki aðför Erdogans forsætisráð-
herra að lýðræðinu í Tyrklandi.
Erdogan hefur látið fangelsastóran hóp blaða- og frétta-
manna, dómara, saksóknara og
rannsóknarlögreglumanna til að
koma í veg fyrir umfjöllun og
rannsókn á spillingarmálum for-
sætisráðherrans og aðilum honum
tengdum.
Af hverju fordæma Bandaríkja-menn og Evrópusambandið
ekki Tyrkland fyrir að hafa stuðl-
að að uppreisn í Sýrlandi og
stuðla að áframhaldi ófriðarins
og hörmunga sýrlensku þjóðar-
innar.
Af hverju er ekki beitt refsi-aðgerðum gegn Tyrklandi og
tyrkneskum embættismönnum
fyrir mannréttindabrot, ásælni
gagnvart nágrannaríkjum og
hernaðaraðgerðum þar?
Af hverju telur Evrópusam-bandið rétt að fá Tyrki í
Evrópusambandið en útiloka
Rússa?
Óneitanlega virðist heimssýnforustufólks í Bandaríkjun-
um og Evrópusambandinu ekki
hafa þróast mikið síðan í kalda-
stríðinu.
Jón Magnússon
Hliðarnar eru fleiri
en ein, segir Jón
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.3., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -11 léttskýjað
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 6 skýjað
Kaupmannahöfn 13 heiðskírt
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki -1 snjókoma
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 12 skýjað
París 18 heiðskírt
Amsterdam 20 heiðskírt
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 18 heiðskírt
Vín 20 skýjað
Moskva -3 snjóél
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 17 heiðskírt
Aþena 16 heiðskírt
Winnipeg -7 skýjað
Montreal 2 slydda
New York 10 léttskýjað
Chicago 2 alskýjað
Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:25 19:46
ÍSAFJÖRÐUR 7:29 19:52
SIGLUFJÖRÐUR 7:12 19:35
DJÚPIVOGUR 6:54 19:16
Alls seldi ÁTVR 27,6 tonn af neftó-
baki á síðasta ári, sem er 4,1% minni
sala en árið 2012. Mest var salan árið
2011, eða 30,2 tonn og hafði þá auk-
ist jafnt og þétt frá árinu 2003, eða
um nærri 160%.
Undanfarinn áratug hefur verð á
neftóbaki snarhækkað, eða um
nærri 460% frá 2003 miðað við heild-
söluverð ÁTVR. Munar þar mjög
um nærri 70% hækkun sem Alþingi
ákvað í fjárlögum 2013. Kíló af tó-
bakinu kostaði að jafnaði um 28.600
krónur í heildsölu á síðasta ári. Sam-
kvæmt nýjustu verðskrá ÁTVR
kostaði kílóið 29.243 krónur og smá-
söluverð á tóbaksdós er um 1.800
krónur. Á fyrstu tveimur mánuðum
þessa árs jókst salan um 55% miðað
við sama tíma í fyrra en samkvæmt
upplýsingum ÁTVR skýrist það
einkum af aukaeftirspurn í lok árs
2012, þegar fyrir lá að verð myndi
hækka verulega í ársbyrjun 2013.
Neftóbak hækkaði
um 460% frá 2003
Sala og verð á neftóbaki 2003-2013
35
30
25
20
15
10
5
0
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
S
al
a
to
nn
Sala tonn Verð á neftóbaki 1 kg í heildsölu*
Ve
rð
á
ne
ft
ób
ak
i1
kg
Heimild: ÁTVR*M.v. verð sem var flesta daga gildandi á árinu
2003 ‘04 ‘06 ‘08 ‘10 ‘12‘05 ‘07 ‘09 ‘11 2013
5.120 kr.
28.605 kr.
11,7 12,7
13,9 14,4
16,9
19,9
23,8
25,5
30,2 28,8 27,6
Fyrirspurn um hvort leyft verði að
reka gistiheimili á efri hæð Nausts-
ins á Vesturgötu 6-10 og veitingahús
í kjallara þess var afgreidd án at-
hugasemda í umhverfis- og skipu-
lagsráði Reykjavíkurborgar á mið-
vikudag með vísan til umsagnar
skipulagsfulltrúa.
Í lok janúar síðastliðins hafði ráð-
ið hins vegar samþykkt neikvæða
umsögn skipulagsfulltrúa um fyrir-
spurnina.
„Starfsemin rúmaðist innan
skipulagsins. Nú getum við farið að
halda áfram. Næstu skref eru að
fullteikna aðstöðuna og ræða við þá
aðila sem hafa áhuga á að reka þetta
í því formi sem sótt er um,“ segir
Karl Steingrímsson, eigandi
húsanna.
Morgunblaðið/RAX
Timburhús Sótt hefur verið um nýj-
an rekstur í Naustinu á Vesturgötu.
Umsögn
snúið við
Rekstur í Naustinu