Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 11
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við hvetjum alla sem tilheyraskokkhópnum til að takasem flesta með sér í styrkt- arhlaupið okkar í fyrramálið en þetta er opið fyrir alla. Þeir sem hlaupa borga þúsund krónur hver og eins eru frjáls framlög vel þeg- in. Öll innkoma rennur óskipt til Krabbameinsfélagsins. Til að skapa réttu stemninguna ætla sem flestir að mæta með yfirvara- skegg, bindi eða öðruvísi skreyttir til að minna á tilefnið. Öllum er boðið í sund í Suðurbæjarlaug eft- ir hlaupið og eftir sundið verða léttar veitingar í boði á Ásvöllum kl 13. Allt til að skapa góða stemningu og gera sem mest úr deginum og viðburðinum,“ segir Björgvin Björgvinsson, einn af þeim sem hleypur reglulega með skokkhópi Hauka í Hafnarfirði. Hópurinn hitaði upp í vikunni og tók lagið Hraustir menn, áður en lagt var upp í hlaupaæfingu. Björgvin segir að Skokkhaupur Hauka sé með stærri slíkum hóp- um á landinu. „Meðlimir eru á annað hundrað en í vetur höfum við verið um sextíu sem hlaupum saman. Við eigum því von á að í styrktarhlaupið mæti um hundrað og fimmtíu manns, við vonum það besta og hvetjum alla til að koma og taka þátt í því. Við ætlum að hafa gaman af þessu og styrkja í leiðinni gott málefni,“ segir Björgvin og bætir við að skokk- hópurinn hafi hug á því að gera það að árlegum viðburði að styrkja gott málefni með hlaupi. Björgvin segir góða stemn- ingu vera í skokkhópnum sem inniheldur fólk af báðum kynjum og á öllum aldri. Elsti meðlim- urinn er sjötíu og fjögurra ára. „Ég er búinn að hlaupa í þrjú ár, en ég byrjaði á þessu af því að konan mín fór að hlaupa og hvatti mig til að gera hið sama, enda full ástæða til að huga vel að heils- unni. Við höfum verið dugleg í útivist hjónin en ákváðum að prufa líka að hlaupa og það er mjög gaman. Félagsskapurinn er frábær í skokkhópnum sem er stór hluti af því að við erum í þessu.“ Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í hlaupinu mæta á Ás- velli, í Haukahúsið, í Hafnarfirði í fyrramálið, laugardag 22. mars, klukkan níu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skokkhópur Hauka Fyrir hlaupaæfingu í fyrradag tók hópurinn lagið og söng Hraustir menn, til að gefa tóninn. Standa fyrir styrktarhlaupi í tilefni af Mottumars Skokkhópur Hauka í Hafnarfirði söng um hrausta menn til að þjappa sér saman fyrir baráttuna. Þau hvetja fólk til að hlaupa í fyrramálið til að styrkja gott málefni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014 Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Verkir í hálsi og öxlum? Kórinn Í gegnum tíðina hefur verið starfandi kór innan samtakanna sem hefur komið fram á ýmsum viðburðum. „Ethnic Kitchen“ verði sýnd í Bíó Paradís í haust. Ýmis ráðgjöf í boði Á hverju þriðjudagskvöldi er hægt að nálgast ókeypis ráðgjöf á vegum samtakanna. Ráðgjöfin er op- in öllum konum og segir Ania að þessi kvöld geti verið góður vett- vangur fyrir konur til þess að koma og fá að tala við einhvern og tjá sig. „Fyrsta skrefið er að fá konurnar til okkar í ráðgjöf, og svo getum við beint þeim áfram á viðeigandi stofn- un eða aðila sem geta hjálpað,“ segir Ania og bætir við að allir ráðgjaf- arnir hafi fengið sérstaka þjálfun og að minnsta kosti tveir séu alltaf til staðar hvert þriðjudagskvöld. Jafn- framt er boðið upp á lögfræðiþjón- ustu á sama tíma þar sem konur geta leitað sér hjálpar með ýmis mál og nefnir Ania þá sérstaklega innflytj- enda- og hælisleitandamál í því sam- hengi. Samkvæmt Aniu eru kon- urnar í samtökunum hvattar til að nota íslenskuna, bæði sín á milli, og með því að fara á ýmsa fyrirlestra á íslensku. Starf kvennanna í samtökunum hefur vakið athygli hérlendis og hafa þau hlotið bæði styrki og verðlaun fyrir störf sín. Í síðasta mánuði hlutu samtökin styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, afhenti styrk- inn og sagði samtökin vel að styrkn- um komin þar sem þau hefðu unnið ötult starf og staðið vörð um réttindi kvenna af erlendum uppruna. Í gær tóku síðan samtökin á móti jafn- réttisviðurkenningu Jafnréttisráðs. Segir Ania að verðlaunin séu samtök- unum mikill heiður og að það sé sönn ánægja að samfélagið sýni starfsemi þeirra áhuga og virðingu. „Þessi viðurkenning er líka hvatning, því það er ennþá margt ógert og við í Samtökunum erum vissar um að saman getum við gert okkar sam- félag að enn betri stað til að búa í, starfa, rækta fjölskyldu- og vina- sambönd, mennta sig, taka virkan þátt og láta draumana rætast,“ segir Ania að lokum. Þemakvöld Mánaðarlega hittast konurnar og elda rétti frá einu þjóðríki. Halldór B. Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, verður með leið- sögn um yfirlitssýningu á verkum Magnúsar Kjartanssonar; Form, LitUr, Líkami: Háspenna / LífsHætta, sunnudaginn 23. mars, kl 14, í Lista- safni Íslands. Listasafnið hefur opnað yfirlits- sýningu á verkum Magnúsar Kjart- anssonar myndlistamanns. Magnús var meðal þeirra listamanna, sem brúuðu bilið milli formrænnar mynd- listar eftirstríðsáranna, bæði óhlut- bundinnar og fígúratívrar, og póst- módernískrar listar á 9. og 10. áratug liðinnar aldar. Leiðsögnin verður bæði fræðandi og skemmtileg. Endilega... List Leiðsögn um listaverk Magnúsar í Listasafni Íslands á sunnudaginn. ...Njótið verka Magnúsar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.