Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Hesturinn er stór í okkar menningu og til mikið af sögum af honum. Vandinn er að velja,“ segir Hjörleif- ur Hjartarson, höfundur skemmti- dagskrárinnar Hestaat í Hörpu sem verður opnunaratriði Hestadaga í Reykjavík í ár. „Það gleymist oft að segja frá því hvað íslenski hesturinn er sam- ofinn sögu Íslands og menningu. Ég bind vonir við að margt skemmtilegt komi fram í þessari sýningu. Það væri gaman að sýna næst hlut hests- ins í vísindum eða einhveru öðru,“ segir Haraldur Þórarinsson, for- maður Landssambands hesta- mannafélaga, sem fékk Hjörleif og félaga hans til að setja sýninguna upp. Mikið til af sögum „Það er búið að gera hestinn að svo mikilli markaðsvöru með keppni og sýningum að það þótti kominn tími til að gera menningarhlutverki hans hærra undir höfði,“ segir Hjör- leifur. Það verður gert með tali og tónum. Hilmir Snær Guðnason leik- ari segir sögur af hestum og brestur í söng og hljómsveitin Brother Grass leikur íslensk hestalög með nýstár- legum hætti. Þá mun hljómsveitin Hundur í óskilum leika lausum hala um sviðið og aðstoða við flutninginn. Hjörleifur segir að mikið sé til af sögum af hestum, meðal annars í Íslendingasögunum, þjóðsögum og bókmenntum – draugasögur og hetjusögur og allt þar á milli. „Við eigum mikla menningararfleifð í hestinum. Hann hefur verið ótrúlega stór hluti af lífi okkar – og er enn,“ segir Hilmir Snær. Kynna hestinn í þéttbýlinu Sýningin verður í Norðurljósa- sal Hörpu 3. apríl, við upphaf Hesta- daga í Reykjavík. Hjörleifur og Hilmir Snær gefa ekki mikið út um framhaldið, hvort sýnt verði oftar. „Við byrjum á því að sýna í eitt skipti, svo kannski aftur og sjáum svo til,“ segir Hjörleifur. Hestadagar ganga út á að kynna íslenska hestinn í þéttbýlinu. Öll hestamannafélögin á höfuðborg- arsvæðinu eru með opin hesthús og einhverja dagskrá fyrir gesti. Keppni verður í nýju Sprettshöll- inni, riðið verður um miðborgina á laugardag og sýning Fáks, Æskan og hesturinn, verður í reiðhöllinni í Víðidal á sunnudeginum. Skemmta á nútíma- hestaati í Hörpu Morgunblaðið/Eggert Ólafur reið með björgum fram Hilmir Snær er sagnamaður í hestasýningunni í Hörpu.  Hlut hestsins í menningu þjóðarinnar gerð skil á sýningu Hestur í óskilum? Hjörleifur Hjartarson og Hilmir Snær Guðnason leika stórt hlutverk í Hestaati. Ylfa frá Ytri-Hofdölum kemur minna við sögu. Alvarlegt ástand hefur skapast á heimilum fatlaðra framhalds- skólanema, vegna verkfalls fram- haldsskólakennara, að mati velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Það skorar á Kennarasamband Ís- lands að veita undanþágur í verk- fallinu vegna fatlaðra nemenda. Í áskoruninni segir að starfsfólk, ann- að en kennarar í skólum, geti ekki sinnt þessum nemendum þrátt fyrir að vera á launum og í raun ekki í verkfalli, vegna þess að það starfar undir verkstjórn framhaldsskóla- kennara. Áskorunin var samþykkt einróma á fundi velferðarráðs um að veittar verði undanþágur, berist beiðni frá nemendum og eða forráða- mönnum þeirra, þannig að þroska- þjálfar og stuðningsfulltrúar geti unnið undir verkstjórn skólastjórn- enda. „Ef ekki verður orðið við undan- þágum þarf Reykjavíkurborg að skoða möguleika á að opna fyrir lengda viðveru, skammtímavistun eða aðra stuðningsþjónustu á skóla- tíma,“ segir í áskoruninni. Fatlaðir nemendur fái undanþágur í kennaraverkfalli Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is HLAÐBORÐ FYRIR FUNDinn EÐA AFMÆLIð. 565 6000 / somi.is Við bjóðum upp á ferska og ljúffenga veislubakka og bjóðum ókeypis heim- sending á höfuðborgarsvæðinu ef pantaðir eru fjórir bakkar eða fleiri. Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.