Morgunblaðið - 21.03.2014, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.03.2014, Qupperneq 14
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Í dag verður nýtt hjartaþræðingartæki vígt formlega á hjartadeild Landspítalans. Nýja tækið bætist þar í hóp tveggja annarra hjarta- þræðingartækja og leysir 16 ára gamlan forvera sinn af hólmi. Tækið kostaði 150 milljónir, það var að mestu keypt fyrir söfnunar- og gjafafé og segir Davíð O. Arnar, framkvæmdastjóri lyf- lækningasviðs sjúkrahússins, að erfitt hefði ver- ið að kaupa það ef sá stuðningur hefði ekki komið til. Nýja tækið er framleitt af Philips, það ber heitið Allura Integrity og er afar fullkomið að sögn Davíðs. „Til dæmis er mun minna geisla- magn notað við myndatökur með nýja tækinu, en það skiptir verulegu máli. Myndgæði þess eru talsvert betri, þá er tækið mjög notenda- vænt og því fylgja ýmis ný forrit sem auðvelda alla gagnavinnslu við hjartaþræðingar, þannig að þetta verður veruleg viðbót við starfsemina,“ segir Davíð sem telur að skilvirkni í vinnulagi muni aukast með nýja tækinu og að hægt verði að stytta biðtíma eftir hjartaþræðingu sem hef- ur verið að lengjast undanfarin ár. „Á biðlista eru nú um 200 manns, það þarf að stytta hann verulega og við erum að setja upp áætlun til þess,“ segir Davíð. Hin tækin eru fimm og tólf ára „Fyrra tækið var orðið 16 ára gamalt og var mjög gott á sínum tíma. Því hefur verið haldið mjög vel við en þegar tæki verða svona gömul verða myndgæði lakari, bilanatíðni eykst og við- haldsdögum fjölgar, þannig að það var farið að trufla starfsemina nokkuð,“ segir Davíð. Annað af hinum tveimur hjartaþræðingar- tækjum sem fyrir voru í notkun er, að sögn Dav- íðs, fimm ára gamalt og hitt orðið tólf ára. „Við þurfum að fara að huga að endurnýjun á allra næstu árum, það er nokkuð ljóst,“ segir hann. Í hjartaþræðingarteymi Landspítalans eru um 22 sérhæfðir starfsmenn; læknar hjúkr- unarfræðingar og lífeindafræðingar. Davíð seg- ir að vinnubrögðin við aðgerðirnar sjálfar breyt- ist lítið þó að nýr tækjabúnaður komi til sögunnar, en að sjálfsögðu þurfi að læra á ný tæki. Vakt allan ársins hring Á þriðja þúsund aðgerðir eru gerðar í hjarta- þræðingartækjum Landspítalans á ári hverju og þar er vakt allan sólarhringinn, alla daga árs- ins. Að öllu jöfnu er unnið á öllum þremur þræð- ingarstofum sjúkrahússins samtímis. Af þess- um tæplega 3.000 aðgerðum eru tæplega 2.000 kransæðavíkkanir og kransæðaþræðingar, hin- ar eru svokallaðar brennsluaðgerðir vegna hjartsláttaraðgerða og ísetningar gangráða. Nýtingin á tækjunum er mjög mikil og því mikilvægt að þau séu vel starfhæf. „Það reyndist heilladrjúgt að taka upp sólar- hringsvakt á hjartaþræðingunni og er ánægju- legt að segja frá því að dánartíðni vegna krans- æðastíflu hefur lækkað verulega á þeim áratug síðan þessi vakt var tekin upp,“ segir Davíð. Hvað er það nákvæmlega sem gert er í hjartaþræðingartæki? „Algengasta aðgerðin er myndataka á kransæðum, sem er gjarnan gerð þegar grunur er um kransæðasjúkdóm eða þrengsli í kransæðum. Þá er stungið á slagæð, núorðið er það gjarnan á úlnlið og í gegnum þá stungu er þræddur leggur til hjartans. Hann er svo settur inn í kransæð, sprautað inn skugga- efni og teknar myndir af kransæðunum. Þá sjáum við vel hvort það séu svæði í krans- æðunum þar sem eru þrengsli, eða hvort þær líta vel út. Ef þar eru þrengsli, sem liggja vel við höggi, er gjarnan í sömu aðgerð farið með belg inn í kransæðina og þrengslin víkkuð út. Síðan er skilið eftir á þrengslasvæðinu svokallað stoð- net sem er blásið út, og eru þrengslin þar með löguð. Stundum eru þrengslin hinsvegar svo flókin og útbreidd að besti kosturinn er að gera opna hjartaskurðaðgerð til að tengja framhjá þrengstu æðunum.“ Mikið þakklæti Nýja tækið kostaði um 150 milljónir. Gjafa- og söfnunarfé nam um 95 milljónum og afgang- urinn kom frá tækjakaupasjóði Landspítalans. Það hefur verið í notkun undanfarnar tvær vik- ur, m.a. til að þjálfa lækna og hjúkrunarfólk og klukkan 15 í dag verður það síðan formlega vígt. „Við vildum hafa athöfn til að vígja það og þakka þannig þeim sem hafa stutt okkur í þessu; Gjafa- og styrktarsjóði Jónínu S. Gísla- dóttur, Hjartaheill, Neistanum og fleirum. Við höfum fengið rausnarlegan stuðning, við erum auðvitað mjög þakklát og því viðeigandi að þakka fyrir okkur. Án þessa stuðnings hefði þetta tæplega orðið að veruleika,“ segir Davíð. 16 ára gamalt tæki leyst af hólmi  Nýtt hjartaþræðingartæki verður vígt á Landspítalanum í dag  Á þriðja þúsund aðgerðir á ári hverju  Keypt að mestu fyrir söfnunar- og gjafafé  Með nýju tæki munu biðlistar styttast Morgunblaðið/RAX Læknar Davíð O. Arnar og Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, yfirlæknir hjartaþræðinga. Nýtt tæki Sigurpáll Scheving og Brynja Magnúsdóttir að störfum við nýtt hjartaþræðingar- tæki. Tækið hefur verið í notkun undanfarnar tvær vikur, en verður vígt formlega í dag 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014 Hjartaheill, landssamtök hjarta- sjúklinga, og Neistinn, styrktar- félag hjartveikra barna, stóðu í fyrra fyrir landssöfnun undir nafninu Styrkjum hjartaþræðina vegna kaupa á hjartaþræðingar- tækinu og söfnuðu til þess 15 milljónum. Að auki fékkst styrkur frá tveimur Lionsklúbbum og var framlag samtakanna tvennra til tækjakaupanna alls 17 milljónir. „Þetta er í þriðja skiptið sem Hjartaheill taka þátt í að kaupa nýtt þræðingartæki fyrir Land- spítalann,“ segir Guðmundur Bjarnason formaður Hjartaheilla, en að auki hafa samtökin gefið spítalanum ýmsar smærri gjafir og styrki. Gömul tæki áhyggjuefni Hann segir söfnunina núna hafa verið nokkuð minna áberandi en fyrri safnanir samtakanna. „Það kostar peninga að safna pen- ingum, t.d. með því að auglýsa og láta vita af sér á annan hátt. Við ákváðum því núna að hafa þann háttinn á að senda 1.000 kr val- greiðslu inn í heimabanka hjá ein- um íbúa á öllum heimilum landsins og var fólki að sjálfsögðu í sjálfs- vald sett hvort það greiddi hana. Við erum ákaflega þakklát þeim sem sáu sér það fært og sumir lögðu til viðbótar tugi og jafnvel hundruð þúsunda. Með því tókst okkur að standa við okkar fyrirheit í söfnuninni. Einn- ig var hægt að hringja í söfn- unarsíma og þannig safnaðist tals- vert.“ Guðmundur segir gamlan tækja- búnað hjartadeildar Landspítalans hafa verið áhyggjuefni samtak- anna um skeið. „Það er talið að endingartími svona tækja sé 7-8 ár, en tækið sem nú er verið að leggja af var notað í tvöfalt lengri tíma. Tækin hafa bilað og biðlist- arnir hafa því lengst. En við von- um að með nýjum búnaði takist að stytta biðlistana.“ „Núna er þetta orðið að veru- leika og við erum auðvitað ákaf- lega stolt af því að vera þátttak- endur í því að leggja þessu brýna málefni lið.“ annalilja@mbl.is Samtök hjart- veikra tóku þátt Guðmundur Bjarnason  Söfnuðu fyrir tæki í þriðja skiptið Nýja hjartaþræðingatækið er að miklu leyti keypt fyrir gjafafé úr Gjafa- og styrktar- sjóði Jónínu Gísladóttur, eiginkonu Pálma Jónssonar, stofnanda og eiganda Hag- kaups, en Jónína lést árið 2008. „Stuðningur styrktarsjóðs Jónínu við uppbyggingu hjartalækninga á Landspítala undanfarin ár hefur verið ákaflega dýr- mætur,“ segir Davíð. „Þessi sjóður er al- gerlega ómetanlegur fyrir okkur sem erum að vinna í hjartalækningum.“ Sjóðurinn var stofnaður árið 2001 með 200 milljóna króna framlagi og hafa fram- lög úr honum verið nýtt til að efla hjarta- lækningar, rannsóknir vegna hjarta- sjúkdóma og þjónustu við hjartasjúklinga á Landspítalanum. Einnig hefur sjóðurinn nýst til kaupa á hjartaþræðingartækjum og öðrum búnaði fyrir sjúkrahúsið. Dýrmætur stuðningur GJAFA- OG STYRKTARSJÓÐUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.