Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Um 2.600 manns sóttu á síðasta ári námskeið á vegum Slysavarnaskóla sjómanna. Heldur hefur fækkað á námskeiðum skólans síðustu ár, en eftir efnahagshrunið 2008 sóttust margir eldri sjómenn á ný eftir skipsplássum og þurftu þá að bæta við og endurnýja réttindi sín. Met- árið var 2009 þegar um 3.500 manns sóttu námskeið Slysa- varnaskólans. Í einum hópi hefur þó orðið veruleg fjölgun á síðustu mán- uðum. Er þá átt við menn sem ráðið hafa sig til starfa í olíuiðnaðinum eða á erlend- um skipum. „Margir þessara manna hafa ráðið sig til starfa á norskum aðstoðarskipum í olíu- geiranum,“ segir Hilmar Snorra- son, skólastjóri Slysavarnaskólans. „Kröfur vegna slíkra starfa eru meiri en tilskilið er á íslenskum fiskiskipum og menn vilja því ná sér í aukin réttindi í öryggis- þáttunum með undirbúningi á al- þjóðlegum námskeiðum sem við höldum. Á þennan hátt verða menn betur gjaldgengir á alþjóðlegum markaði og í þessum hópi hefur orðið mikil aukning hjá okkur. Ég áætla að á síðustu mánuðum hafi 50-60 manns aukið við atvinnurétt- indi sín til að komast frekar að er- lendis.“ Leysa landfestar í sumar Hilmar segir að þessi þróun tengist breytingum í íslenska fiski- skipaflotanum, en á vef Hagstof- unnar kemur fram að fækkað hafi um fimm togara á síðasta ári. Hilmar bendir á að undanfarið hafi frystitogurum verið lagt, aðrir seldir úr landi eða þeim breytt í ís- fisktogara. Með þessu hafi störfum sjómanna í íslenskum skipsrúmum fækkað og margir fari á öryggis- námskeið til að vera betur í stakk búnir til að sækja um störf erlendis ef þeir missa vinnuna. Hins vegar segir hann að öryggiskröfur hafi aukist síðustu ár og þannig sæki færri menn fleiri námskeið en áð- ur. Fjárveitingar til Slysavarnaskól- ans hafa dregist saman í efnahags- kreppunni og landfestar Sæbjarg- arinnar, skips skólans, hafa ekki verið leystar síðan 2008. Eina und- antekningin er árleg sigling um Sundin blá á sjómannadaginn. Í sumar verður hins vegar breyting á. „Í sumar ætlum við að heim- sækja fjórar hafnir á Norðurlandi og Austfjörðum og halda námskeið þar. Það er ekki þannig að við eig- um digra sjóði, alls ekki. Við eigum hins vegar góða að og styrkur útgerðarfyrirtækis gerir okkur kleift að hreyfa skipið í sumar, loksins,“ segir Hilmar Snorrason. Núverandi Sæbjörg er þriðja skipið með þessu nafni sem er not- að til björgunarstarfa eða til að fræða sjómenn um öryggismál. Núverandi Sæbjörgu fékk Slysa- varnafélag Íslands, nú Slysavarna- félagið Landsbjörg, árið 1998 er ríkisstjórnin gaf félaginu ferjuna Akraborg til nota fyrir starfsemi Slysavarnaskóla sjómanna. Sjómenn sækja til útlanda  Um 2.600 manns sóttu námskeið í Slysavarnaskóla sjómanna á síðasta ári  Hefur fækkað nokkuð eftir sprengingu í kjölfar hrunsins  Yfir 50 sjómenn hafa aukið réttindi vegna starfa erlendis Morgunblaðið/Guðmundur Árnason Þyrla til aðstoðar Í æfingum á vegum Slysavarnaskóla sjómanna á sundunum við Reykjavík er líkt eftir raunverulegum aðstæðum í sjávarháska. Hilmar Snorrason Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Staðan er mjög erfið hjá grá- sleppukörlum og óvissan mikil,“ segir Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri Landssambands smábátaeig- enda. Heimilt var að leggja net fyrir Norðurlandi og Austfjörðum í gær og einnig við Reykjanes. Örn vissi ekki til að nokkur hefði lagt netin, enda víða vonskuveður. Örn reiknar með að færri nýti leyfi til grásleppuveiða í ár heldur en síðustu ár. Fyrir nokkru voru fyrstu rauðmaganetin lögð við Norðurland. Örn segir að veiði hafi verið mjög treg, fáir rauðmagar og varla að það hafi örlað á grá- sleppu. Fáir dagar til veiða Þegar grásleppukarlar tala um óvissu þá má nefna að í reglugerð er aðeins heimild til veiða í 20 daga og byrjar klukkan að tifa um leið og fyrsta net hefur verið lagt. Í fyrra voru dagarnir 32, en síð- ustu ár hafa þeir verið 50 og upp í 62. Dagafjöldinn verður endurskoð- aður þegar niðurstöður um grá- sleppuna úr vorralli Hafrann- sóknastofnunar liggja fyrir, væntanlega undir mánaðamót. Þrýstingur er á verðlækkun á grásleppu vegna lækkunar á heimsmarkaði. Örn Pálsson segir hins vegar varhugavert að lækka verðið meira en þegar er orðið, þar sem það gæti einfaldlega skemmt markaðinn til framtíðar. Auk þess hafi allur tilkostnaður við veiðarn- ar hækkað. Hann mælir með að verð fyrir óskorna grásleppu verði 250 krónur sem er smávægileg hækkun frá því í fyrra. Loks er ákveðin óvissa fólgin í þeim áformum World Wildlife Fund að setja grásleppu á rauðan lista í Evrópu. Það gæti haft mikil áhrif á kavíarmarkaði. Erfið staða og óvissa hjá grásleppukörlum  Leggja mátti fyrstu netin í gær Ljósmynd/Sigurður Ægisson Grásleppuvertíðin Afla landað á Togarabryggjunni í Siglufirði. Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! Fermingargjafir Sendum um allt land spilavinir.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.