Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 24
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ýmsir angar úr Íslandssögunni
mætast í húsinu Laufásvegi 48 í
Reykjavík. Það er eitt af elstu hús-
unum í borginni, stendur stakt á
stórri lóð við götuna sem við það er
kennd. Laufás við Laufásveginn hef-
ur verið í eigu sömu fjölskyldunnar
frá upphafi. Elsti hluti hússins er frá
árinu 1896, byggt af þeim Þórhalli
Bjarnarsyni biskupi og Valgerði
Jónsdóttur konu hans. Síðan þá hafa
afkomendur þeirra, hver kynslóðin
eftir aðra, búið í þessu húsi og nú sú
fjórða frá frumbyggjunum.
Kom tilhöggvið og tilbúið
„Hér í Laufási er að finna muni
sem hafa fylgt eigendum þess lang-
an tíma, bækur og húsgögn. Þetta
hefur ekki verið skipuleg söfnun, en
þess gætt að varðveita muni með
sögulegt gildi,“ segir Flosi Krist-
jánsson kennari. Hann flutti í húsið
ásamt eiginkonu sinni, Rögnu Þór-
hallsdóttur, fyrir um tveimur árum.
Þau búa á efri hæð. Á neðri hæð
Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún
Þórhallsdóttir sem er af Laufásætt-
inni, eins og Ragna.
Víkjum að upphafi sögunnar. Þór-
hallur Bjarnarson var fæddur í
Laufási við Eyjafjörð árið 1855. Þar
ólst hann upp en fór ungur til náms
og var prestur í Reykholti í Borgar-
firði og á Akureyri. Árið 1887 fluttu
Þórhallur og eiginkona hans í bæinn,
en þá var hann orðinn kennari við
Prestaskólann í Reykjavík. Þau
bjuggu fyrst í stað inni í bæ, við
Austurvöll.
Árið 1896, þegar Þórhallur var
orðinn forstöðumaður Prestaskól-
ans, ákvað hann að flytja út fyrir
bæinn og hófst handa við að reisa
Laufás og nefna eftir æskuheimili
sínu. Þetta er norskt katalóghús sem
kom tilhöggvið til landsins, tilbúið til
uppsetningar. Yfir inngangi hússins
er núna áletrunin Laufás 1896 sem
vísar til þess að það ár var húsið
reist. Það var svo stækkað árið 1908,
árið sem Þórhallur var kjörinn bisk-
up Íslands en því embætti gegndi
hann til æviloka, árið 1916.
„Þegar Þórhallur varð biskup árið
1908 sótti hann eftir því að skrifstofa
sín yrði í Laufási. Því var farið í að
stækka húsið. Þar sem núna er aðal-
inngangur hússins var til að byrja
með inngangur á biskupsstofu,“ seg-
ir Flosi um sögu hússins.
Forseti og tveir
forsætisráðherrar
Börn Þórhalls Bjarnasonar og
Valgerðar voru fjögur. Elstur þeirra
var Tryggvi, sem var fæddur árið
1889, þá Svava fædd 1890, Björn
fæddur 1891 og Dóra fædd 1893.
Tryggvi Þórhallsson, síðar forsætis-
ráðherra, hóf búskap í Laufási fljót-
lega eftir andlát föður síns, ásamt
konu sinni Önnu Guðrúnu Klemens-
dóttur. Þeirra börn voru Klemens,
Valgerður, Þórhallur, Agnar, Þor-
björg, Björn og Anna Guðrún. Fjög-
ur þeirra héldu heimili í Laufási í
lengri eða skemmri tíma eftir að
Tryggvi lést 1935.
Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir Ás-
geirsson, síðar forsætisráðherra og
forseti Íslands, hófu búskap sinn í
Laufási er þau giftu sig 1917. Þar
fæddust þeim þrjú börn, Þórhallur,
Vala og Björg, sem ólust öll upp í
Laufási með frændsystkinum sínum.
Nafnið kom
um aldamótin 1900
„Það er ekki gott að átta sig á því í
hvaða röð húsin hér á svæðinu
byggðust. Yfirlitsmynd, sem tekin
Gengið suð-
ur Laufás-
veginn
Höfuðból í Þingholtum er nefnt eftir
Laufási við Eyjafjörð Skurðarpunkt-
ur í Íslandssögunni Hús ættarinnar
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Það safnast í sarpinn þegar farið
er yfir sögu Laufásvegar. Í húsi
númer 25 bjó Halldór Laxnes um
1930 og hermt er að þar hafi
hann skrifað Sölku Völku og
fleiri bækur. Bandaríska sendi-
ráðið er á Laufásvegi 21 og hefur
svo verið frá því Bandaríkin opn-
uðu konsúlat á Íslandi árið 1941.
Sturluhallir, sem svonefndir
Sturlubræður byggðu um 1920,
eru tvö hús á lóðunum Laufás-
vegi 49-55. Breska sendiráðið
var í nyrðra húsinu sem ber
götunúmerið 49-51, en nú er Ís-
lenska auglýsingastofan þar til
húsa. Leikskólinn Laufásborg í
því syðra. Endur fyrir löngu
bjuggu að Laufásvegi 69 hjónin
Valtýr Stefánsson ritstjóri Morg-
unblaðsins og Kristín Jónsdóttir
listmálari. Í síðari tíð hafa þar
búið Jón Ásgeir Jóhannesson
kaupsýslumaður og Ingibjörg
Pálmadóttir kona hans.
Albert Guðmundsson, knatt-
spyrnugoð og síðar ráðherra, bjó
með eiginkonu sinni Brynhildi
Jóhannsdóttur að Laufásvegi 68.
Þar skammt frá, út við enda göt-
unnar, er hús númer 72, gestabú-
staður forseta Íslands. Það er
Sendiráð og Sillahús
Þekktir borg-
arar og starfsemi
Valtýr
Stefánsson
yfirleitt kennt við þau Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Krist-
jánsson, sem var annar helm-
ingur kaupmannsparsins Silla og
Valda sem um miðja 20. öldina
rak búðir um allan bæ.
Albert
Guðmundsson
Konsúlt Sendiráð Bandaríkjanna hefur verið við Laufásveg frá 1941.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Landhelgisdeila Mótmæli við
breska sendiráðið við Laufásveg í
tólf mílna þorskastríðinu 1958.