Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 42
hlutfall. Fyrirtækið hefur nú horfið
frá því markmiði.
Það er lýsandi fyrir erfiðleika
fyrirtækisins að í upphafi vetrar tók
stjórnarformaður Marel og aðaleig-
andi í gegnum Eyri Invest, Árni
Oddur Þórðarson, við starfi for-
stjóra. Frá upphafi árs 2013 og þar
til hann tók við sem forstjóri í nóv-
ember sama ár hafði gengi Marel
lækkað 16%. Á sama tíma hafði Úr-
valsvísitalan hækkað um 19% – sem
líkt og fram hefur komið Marel
dregur niður.
Eyrir Invest er stærsti hluthafi
Marel með 29%. Samkvæmt ársupp-
gjöri fjárfestingarfélagsins fyrir árið
2012 telur Marel um helming í
eignasafni þess og þá var eigin fjár-
hlutfall Eyris um 47%. Lífeyrissjóð-
ir eiga um 27% hlut í Marel, sam-
kvæmt gögnum sem Morgunblaðið
hefur undir höndum.
Tveir sérfræðingar á fjármála-
markaði höfðu gaman af því í samtali
við Morgunblaðið að benda á verð-
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Marel hefur lækkað um 31% á einu
ári, þar af um 18% frá áramótum.
Eimskip og Vodafone hafa einnig
lækkað þegar litið er eitt ár um öxl.
Á sama tíma hafa önnur félög, líkt
og Icelandair og Hagar, hækkað
mikið, eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
í hlutabréfum hjá Hagfræðideild
Landsbankans, rekur gengislækkun
Marel til þess að uppgjör fyrirtækis-
ins að undanförnu hafi valdið von-
brigðum.
Hann segir að það sé þroskamerki
að hlutabréfaverð fyrirtækja í Kaup-
höll þróist með mismunandi hætti.
Misjöfn gengisþróun sé vegna þess
að uppgjör fyrirtækjanna séu ekki á
einn veg. Sum þykja góð og önnur
slæm. Fjárfestar séu meðvitaðir um
hættuna á bólumyndun í gjaldeyr-
ishöftum og vilji ekki greiða of hátt
verð fyrir fyrirtækin. „Það er góðs
viti að markaðurinn hækki ekki
stöðugt,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið.
Mun meira stuð fyrir ári
Markaðurinn hefur þróast með
nokkuð öðrum hætti á fyrstu mán-
uðum ársins í ár miðað við fyrir ári.
Nú hefur Úrvalsvísitalan lækkað um
7% en á sama tíma í fyrra hafði hún
hækkað um 15%. Rétt er að nefna að
Marel vigtar um 26% í Úrvalsvísitöl-
unni. Mikil lækkun hjá Marel dregur
hana því niður. Þeir sem til þekkja
nefna þrjár ástæður helst til sög-
unnar fyrir mismunandi stemningu
við upphaf árs: Minni ásókn stærri
fjárfesta á markaði í hlutabréf sam-
anborið við árið í fyrra, meira fram-
boð af hlutabréfum á markaði en bú-
ist var og benda í því samhengi á
sölu á stórum hlutum í Icelandair,
TM og Högum, og uppgjör félaga
hafi verið aðeins undir væntingum.
Marel ekki náð markmiðum
Marel hefur um nokkurt skeið
ekki náð markmiðum sínum í rekstri
sem hefur leitt til þess að gengið
hefur lækkað mikið. Verðbréfamiðl-
ari gantaðist með það að það minnti
á Seðlabankann og verðbólgumark-
miðið hve sjaldan Marel hafi tekist
að ná markmiði sínu um EBITDA
mat sem Arctica Finance gerði á
Marel á sama tíma og það var ráð-
gjafi við fyrirhugaða sex milljarða
króna hlutafjáraukningu hjá fjár-
festingarfélaginu Eyri í lok árs 2012.
Þar var verðmatsgengið 187 en er
nú 108,5.
Styttist í Sjóvá og HB Granda
Nú styttist í að tvö félög verði
skráð á Aðalmarkaðinn. Útboð Sjó-
vár verður í lok mars og HB Granda
í lok apríl. Sérfræðingar nefna að ef-
laust sé meiri áhugi fyrir útboði HB
Granda. Félagið sé stærra og verði
fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið á
markaðnum, á meðan fyrir eru á
fleti tvö tryggingafélög.
Greining Íslandsbanka greindi frá
því í gær, að hún teldi að þrjú félög
færu á markað í ár og væntir þess að
Promens, sem er í eigu Framtaks-
sjóðs Íslands, verði fleytt á markað.
Samanlagt markaðsvirði fyrirtækj-
anna þriggja sé 112 milljarðar
króna.
Marel hefur lækkað
um 31% á einu ári
Uppgjör Marel hafa valdið fjárfestum vonbrigðum sem lækkar gengið
Meira fjör í fyrra
» Markaðurinn hefur þróast
með öðrum hætti á fyrstu
mánuðum ársins í ár miðað við
fyrir ári.
» Nú hefur Úrvalsvísitalan
lækkað um 7% en í fyrra hafði
hún hækkað um 15%.
Þróun hlutabréfaverðs
Marels frá áramótum
5. nóvember 20134. janúar 2013
170
160
150
140
130
120
110
100
125
145
Gengisþróun
Frá áramótum Á tólf mánuðum
60
50
40
30
20
10
0
-10
-20
-30
-40
Ei
m
sk
ip
Ha
ga
r
Ic
el
an
da
ir
M
ar
el N1
Ný
he
rji
Re
gi
nn TM VÍ
S
Vo
da
fo
ne
Ös
su
r
-10%
-16%
53%
60%
-31%
2%
22%
-13%
20%
7%
2%
-18%
-3% -3%
6%
2%
-8%
10% 9%
42 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Efri deild japanska þingsins af-
greiddi í gær hæstu fjárlög í sögu
þingsins, en þau hljóða upp á 937
milljarða dollara eða um 107 þúsund
milljarða íslenskra króna.
Neðri deild japanska þingsins
hafði samþykkt frumvarpið í síðasta
mánuði. Nýju fjárlögunum er ætlað
að hleypa nýju lífi í afar veikt efna-
hagslíf Japana, en þetta þriðja
stærsta hagkerfi heims hefur um
árabil glímt við verðhjöðnun og ekki
notið nokkurs hagvaxtar. Nýtt fjár-
lagaár hefst í Japan hinn 1. apríl nk.
og um leið hækkar söluskattur í Jap-
an úr 5% í 9%.
AFP sagði í gær að Shinzo Abe,
forsætisráðherra Japans, hefði sagt í
þingræðu á japanska þinginu að
hann hygðist leggja allt kapp á að
enda verðhjöðnunartímabilið og efla
hagvöxt.
AFP
Tókýó Japanska þingið samþykkti í gær metfjárlög fyrir næsta fjárlagaár,
upp á meira en hundrað þúsund milljarða íslenskra króna.
Metfjárlög af-
greidd í Japan
Hljóða upp á 107 þúsund milljarða
● Verð Icelandair til Sankti Péturs-
borgar í Rússlandi hefur hrunið vegna
óvissuástandsins sem ríkir í málefnum
Rússlands og Úkraínu. Vefsíðan Túristi
greinir frá þessu.
Í byrjun ársins kostaði ódýrasta ferð-
in til borgarinnar í ágúst rúmar 50 þús-
und krónur en nú er hins vegar hægt að
fá ferðir á rúmlega 20 þúsund krónur
aðra leið og farið þá í heild sinni með
báðum leiðum á rúmlega 40 þúsund
samkvæmt könnun sem Túrista gerði.
Guðjón Arngrímsson upplýsinga-
fulltrúi Icelandair segir í samtali við Túr-
ista að það sé alveg ljóst að óvissu-
ástand, eins og það sem ríkir í
málefnum Rússa og Úkraínumanna,
hjálpi almennt ekki til í sölu- og mark-
aðsstarfi.
Flugfargjöld til Rúss-
lands hafa hríðlækkað
● Útlit er fyrir að
hagnaður bresku
fataverslunarinnar
Next verði meiri en
Marks & Spencer á
þessu ári, sam-
kvæmt breska dag-
blaðinu Guardian.
Hagnaður Next
nam 695 millj-
ónum punda á síð-
asta ári, eða sem
nemur rúmum 133 milljörðum króna.
Þetta er 12% aukning á milli ára.
Afkomuspá Marks & Spencer gerði ráð
fyrir 615 milljóna króna hagnaði. Stjórn-
endur Marks & Spencer hafa endur-
skoðað afkomuspá sína til lækkunar.
Next fer upp fyrir Marks
& Spencer í hagnaði
● Héraðsþingið á Krímskaga hefur
ákveðið að taka upp rússneska rúblu
sem mynt svæðisins. Hefur breyting-
unni þegar verið hrint í framkvæmd.
Krímverjar samþykktu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um síðustu helgi að
sameinast Rússlandi. Atkvæða-
greiðslan og góðar viðtökur Rússa við
henni hafa verið fordæmdar víða um
heim. Bandaríkjamenn beita Rússa
refsiaðgerðum. Aðgerðirnar beinast
gegn einstökum stjórnmálamönnum,
sem standa Pútín Rússlandsforseta
nærri en einnig gegn einum banka.
Krímverjar hafa tekið
upp rússneska rúblu
Stuttar fréttir …
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Hvernig heyrir þú?
1. Ef kliður er, áttu þá erfitt með að ná því sem er sagt?
2. Hváirðu oft?
3. Hækkarðu oft það mikið í sjónvarpi eða útvarpi að öðrum finnst það óþægilegt?
4. Finnst þér aðrir muldra?
5. Hefurðu són í eyrunum?
6. Biðurðu aðra stundum um að segja þér hvað var sagt á fundum sem þú varst á?
7. Áttu erfitt með að skilja það sem er sagt við þig í síma?
8. Áttu erfitt með að heyra sömu hljóð og aðrir heyra, svo sem fuglasöng?
9. Hefurðu verið að staðaldri í miklum hávaða og þá sérstaklega í vinnunni?
10. Heyrirðu varla þegar dyrabjallan eða síminn hringir?
11. Finnst þér auðveldara að skilja raddir karla en kvenna?
Hafirðu svarað játandi einhverjum af þessum spurningum þá getur ástæða þess verið
heyrnarskerðing. Til að fá úr því skorið er mælt með því að þú farir í greiningu hjá heyrnarfræðingi.
Sími 534-9600
Netfang heyrn@heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Komdu í
greiningu
hjá faglæ
rðum
heyrnarf
ræðingi
Ert þú
farin/n að
forðast að vera í
margmenni vegna
þess að þú
heyrir illa?