Morgunblaðið - 21.03.2014, Qupperneq 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Tony Abbott, forsætisráðherra Ástr-
alíu, tilkynnti í gær að gervihnatta-
myndir, sem teknar voru sl. sunnu-
dag, hefðu sýnt tvo hluti á floti á
Indlandshafi, um það bil 2.500 km
suðvestur af Perth. Hann sagði um
nýjar og áreiðanlegar upplýsingar að
ræða en ítrekaði að enn ætti eftir að
staðfesta hvort hlutirnir tengdust
flugi MH370, vélinni sem hvarf fyrir
tveimur vikum.
Slæm veðurskilyrði hömluðu leit
úr lofti í gær en til stóð að skipverjar
á norsku flutningaskipi, sem kom á
svæðið í gær, leituðu fram eftir
nóttu. Þá var von á ástralska her-
skipinu HMAS Success á staðinn og
sömuleiðis hafrannsóknaskipi
breska flotans, HMS Echo.
Sterkir straumar
Sérfræðingar segja það til marks
um áreiðanleika gagnanna að for-
sætisráðherrann sjálfur hafi tilkynnt
um fundinn en þeir segja að það gæti
reynst erfitt að finna brakið á af-
skekktu hafsvæði þar sem straumar
eru sterkir. „Straumurinn þar er
einn sá sterkasti í heimi og berst um
allt að metra á sekúndu,“ sagði Gan
Jianping, haffræðingur við Vísinda-
og tækniháskóla Hong Kong, í sam-
tali við AFP.
Varnarmálaráðherra Ástralíu,
David Johnston, benti á að frá því að
myndirnar voru teknar á sunnudag
hefðu hlutirnir verið á reki í fjóra
daga og að finna þá gæti reynst hrein
martröð. „Við erum í afar einangr-
uðum hluta heimsins. Raunar verða
þeir ekki, ef ég má vera svo djarfur,
einangraðri,“ sagði hann í samtali við
Sky News í Ástralíu. Hann sagði síð-
ar að það gæti tekið 2-3 daga að stað-
festa hvort hlutirnir tengdust flug-
vélinni.
Blendnar tilfinningar
Alls voru 18 skip, 29 flugvélar og 6
þyrlur við leit að flugvél Malaysia
Airlines í gær. Leitin beinist nú eink-
um að Indlandshafi en það sem gerir
leit erfiða á þessu tiltekna svæði er
fjarlægðin frá landi. Það tekur flug-
vélarnar til að mynda þrjár klukku-
stundir að fljúga aðra leiðina og þar
sem eldsneytisbirgðir þeirra eru tak-
markaðar geta þær aðeins leitað
skamma stund áður en þær verða að
snúa til baka.
Viðbrögð ástvina farþega vélar-
innar við nýju upplýsingunum voru
blendin. Sumir neituðu að horfast í
augu við þann möguleika að vélin
hefði farist en aðrir sögðust myndu
sætta sig við orðin hlut.
„Sonur minn er enn lifandi. Sonur
minn er enn lifandi. Ég trúi ekki
fréttunum,“ veinaði Wen Wancheng,
63 ára. Annar ættingi benti á að fyrri
vísbendingar hefðu ekki leitt til
neins. „Ég er leiður á að heyra að það
séu komnar fram nýjar upplýsingar
og svo er þeim vísað á bug seinna,“
sagði maðurin reiður við AFP.
Brak úr vélinni fundið?
Gervihnattamyndir sýna tvo hluti á floti á afskekktu svæði á Indlandshafi Veðurskilyrði og sterkir
straumar gera leit erfiða Gæti tekið 2-3 daga að staðfesta hvort um brak úr vélinni er að ræða
Heimildir: AFP/Malaysia Airlines
Tilvitnanir eru teknar
úr fréttum AFP
MALASÍA 34 ára gamall faðir sem var í viðskiptaferð til Peking. Þriggja
ára sonur hans spyr nú: „Hvar er pabbi?“
Um borð í flugi MH370
Þjóðerni áhafnar og farþega og það sem vitað er um fólkið
Farþegar: 227
Flugstjórinn: Zaharie Ahmad Shah, 53, malasískur Flugmaður: Fariq Abdul Hamid, 27, malasískur
Áhöfn: 10 allir frá Malasíu
KÍNA
Elsti farþeginn, 79 ára Annar yngstu farþeganna, 2 ára
19 kínverskir listamenn, sem voru í Malasíu til að taka þátt í
ríkisstyrktri sýningu, þ. á m. listmálarinn og ljóðskáldið
Wang Linshi, sem hafði „ástríðu fyrir lífinu“
20 starfsmenn Freescale
Semiconductor (BNA)
INDÓNESÍA
Parið Sugianto
Lo og Vinny
Chynthya
BANDARÍKIN RÚSSLAND
HOLLAND
TAÍVAN
Annar yngstu
farþeganna,
2 ára
KANADA
Muktesh Mukherjee,
Kanadamaður fæddur
á Indlandi, sem
starfaði fyrir bandarískt
kvikmyndafyrirtæki
í Peking, á leið
heim eftir frí ásamt
konu sinni Xiaomo Bai
Pouria Nourmohammadi og
Seyed Mohammed Reza
Delavar, ólöglegir innflytjendur
frá Íran, sem framvísuðu
stolnum vegabréfum, öðru
austurrísku og hinu ítölsku
NÝJA-SJÁLAND
Paul Weeks, á leið til
Mongólíu, en kona
hans Danica sagði:
„Hver dagur er
eins og heil eilífð“
ÚKRAÍNA
ÁSTRALÍA
Vinafólk í fríi; Bob
og Catherine
Lawton, ásamt
Rodney og Mary
Burrows, lýst af
nágrönnum sem
„yndislegu fólki“
INDLAND
Par og sonur þeirra
á leið í heimsókn til
annars sonar í
Peking, sem vann
að rannsóknum í
stjarneðlisefræði
og sagði við fjölmiðla:
„Ég veit ekki
hvað gerðist“
FRAKKLAND
Þrír nemar við
Lycee Fracais-
alþjóðlega
menntaskólann
í Peking
Li Yuan og Gu
Najun, par frá
Sydney, á leið
aftur til Kína
eftir að bensín-
stöðvarekstur
þeirra fór í
greiðsluþrot
Leitin að MH370
Leitarsvæði
Ástrala
19. mars
Áætlað
leitarsvæði
20. mars
Flug Malaysia Airlines
Tók af stað kl. 00.41
að staðartíma 8. mars sl.
Indlandshaf
ÁSTRALÍA
Perth
Kuala
Lumpur
MALASÍA
Heimildir: AustraliaGovernment/Malaysia Govt
Síðasta þekkta
staðsetning
skv. hernaðarratsjám
Mögulegar
leiðir að mati
NTSB*
2.350 km
Yfirvöld í Ástralíu hafa hugsanlega fundið brak úr vélinni
Tveir hlutir, sem eru
mögulega brak úr vélinni,
hafa fundist nærri
leitarsvæðinu
*Flutninga-
öryggisstofnun
Bandaríkjanna
Fljótandi á Indlandshafi
» Annar hlutanna tveggja er
24 metrar að þvermáli en það
þykir benda til þess að um
brak úr vélinni sé að ræða.
» Hins vegar gætu þetta líka
verið flutningagámar.
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti sagði í
gær að leitin að
flugi MH370 væri
forgangsmál í
augum banda-
rískra yfirvalda.
Hann sagði að
þau hefðu átt í
nánu samstafi við
stjórnvöld í Malasíu og að þau
hefðu boðið fram alla mögulega að-
stoð. Forsetinn mun heimsækja
Malasíu í næsta mánuði. Bandarísk-
ur embættismaður sagði í samtali
við AFP í gær að stjórnvöld í Malas-
íu hefðu óskað eftir aðstoð banda-
rísku alríkislögreglunnar við að
endurheimta gögn sem eytt var úr
flughermi flugstjóra vélarinnar. Þá
hafði New York Times eftir heim-
ildarmanni að FBI-fulltrúar í Kuala
Lumpur myndu líklega taka afrit af
harða diski hermisins og senda til
Bandaríkjanna til greiningar.
Leitin for-
gangsmál
Barack ObamaFYRIR ÓLITAÐ HÁR
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR.
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á
FYRIR HÁRLOS
FYRIR ÚFIÐ HÁR FYRIR LJÓST HÁR
FYRIR ÞURRT HÁR
FYRIR KRULLAÐ HÁR
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
SENTER
SCALA
SALON VEH
SALON REYKJAVÍK
PAPILLA
N-HÁRSTOFA
LABELLA
MENSÝ
MEDULLA
KÚLTÚRA
HÖFUÐLAUSNIR
HJÁ DÚDDA
FAGFÓLK
BEAUTY BARFYRIR FÍNGERT HÁR
FYRIR LITAÐ HÁR FYRIR SKEMMT HÁR
FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ
REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi
PRÓTEINRAKI
FYRIR LÍFLAUST HÁR