Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
VINNINGASKRÁ
47. útdráttur 20. mars 2014
96 11603 22237 30061 43552 52408 62078 69597
436 11642 22738 30521 43915 52509 62345 69826
688 11677 22776 30695 44588 52598 62672 70303
913 11741 23428 30977 44636 53015 62971 70608
952 12307 23466 31203 44999 53075 63424 70792
1075 12851 23499 31708 45516 53398 63445 71116
1759 12908 23649 31803 45779 53744 64295 71644
1859 12930 23704 31819 45958 53792 64322 73215
1931 14314 23865 32301 46098 54572 64482 73524
2370 14521 24183 32648 46228 54749 64631 74153
2439 14670 24965 32973 46810 54888 64642 75073
2462 14822 24966 33058 46898 55295 64657 75317
2511 15248 25470 33729 47096 55442 64813 75383
3633 15305 25485 33828 47290 55672 65109 75700
3720 15314 25797 34763 47430 56025 65241 75852
3734 15608 26266 35036 47512 56242 65677 76231
4216 15619 26354 35630 47871 56545 66087 76262
4345 16254 26409 35988 48532 56730 66112 76308
4415 16271 26897 37414 48544 56903 66466 77174
5600 16323 27378 38067 48801 57462 66638 77445
5894 17215 27403 38747 48822 57566 66690 77448
6120 17262 27430 38934 49119 59358 66746 77687
6459 17314 27566 39503 49125 59860 66817 77822
7051 18017 28583 39508 49333 60171 67149 78180
7700 18109 28598 39714 50244 60292 67323 78732
8403 19928 28628 40175 50945 60362 68290 79004
8602 20218 28660 40693 51039 60524 68702
9405 20307 28675 41039 51207 60588 68780
9650 21206 28834 42068 51779 61113 68882
10288 21304 29122 42092 52063 61267 68907
10356 21893 29892 42415 52294 61718 68924
11240 21911 30036 43269 52353 61896 69044
231 4614 14830 25360 37125 44697 61172 72517
292 6960 15101 26502 38618 47697 62240 73502
421 8892 15553 27038 39518 47934 63221 75449
496 10880 16040 27870 40062 48434 63248 75590
796 11866 16397 28160 41115 48858 63370 76431
2258 12138 17107 28230 41178 48952 64700 78360
2310 12197 18230 28386 41454 50210 66044 78560
2959 12738 18647 29329 42398 51168 66122 78836
3544 13340 18987 31363 42725 54738 66677 79430
3822 13372 19622 35639 43579 55623 66736
4061 13662 20404 35712 44250 56959 66871
4442 14081 20498 35941 44329 57831 67252
4531 14562 24344 36275 44494 60026 69148
Næsti útdráttur fer fram 27. mars 2014
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
6206 31088 40024 67994
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2388 12442 29761 43021 52883 67308
4287 23130 30974 43885 59172 71268
9229 26508 39269 50914 66733 72982
11969 27709 39810 52260 67174 75119
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 2 7 9 8
Morgunblaðið gefur út
27. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
24. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin
víðs vegar um Reykjavík
þar sem saman koma
íslenskir hönnuðir og
sýna fjölbreytt úrval
nýrrar íslenskrar hönn-
unar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 27.-30.03.2014
Kirkjuhvoll er dval-
ar- og hjúkrunarheim-
ili í Rangárþingi
eystra, þar sem nú
eru 30 heimilismenn,
17 í hjúkrunarrými og
13 í dvalarrými. Þegar
gaus í Eyjafjallajökli
2010 veittu stjórnvöld
heimilinu leyfi fyrir
tveimur hjúkrunar-
rýmum til viðbótar, en
það leyfi var síðan
afturkallað á sl. ári, þó svo að brýn
þörf væri á að halda
þessum rýmum, þar
sem margir eru á bið-
lista eftir dvöl á
Kirkjuhvoli.
Þegar þetta er skrif-
að eru 16 á biðlista,
níu bíða eftir
hjúkrunarrými og sjö
eftir dvalarrými.
Þrátt fyrir mikla
baráttu forsvarsmanna
heimilisins, með
hjúkrunarforstjórann
Ólöfu Guðbjörgu Egg-
ertsdóttur í farar-
broddi, til að fá þessi leyfi aftur,
heimsóknir og margítrekaðar
bréfaskriftir til heilbrigðisráðherra
og fleiri ráðherra, stendur allt fast.
Í þessu tilfelli geta ráðamenn þjóð-
arinnar ekki sagt að peningar séu
ekki til, því það eru þeir sann-
arlega, en þeim er ekki rétt ráð-
stafað.
Fimm öldruðum sveitungum
mínum hefur nú verið úthlutað
plássum á hjúkrunarheimilum í
öðrum sýslum; á Kumbaravogi, Ási
í Hveragerði og Borgarnesi.
Út á þessi er heimili er ekkert
að setja, enda bera þessir ein-
staklingar starfsfólki þessara heim-
ila og umönnun vel söguna, þeir
þrá bara að vera „heima“. En ég
leyfi mér að setja út á þessar stirð-
busalegu og ómannúðlegu úthlut-
unarreglur. Að þetta fólk skuli vera
flutt hreppaflutningum, því annað
er þetta ekki, þegar pláss er fyrir
hendi í heimabyggð. Aðstand-
endum er einnig gert mjög erfitt
fyrir, þeir geta ekki heimsótt sína
nærri eins oft og þeir vilja, það er
um langan veg að fara til að heim-
sækja einstakling á Kumbaravog
eða Borgarnes fyrir þá sem búa í
Rangárþingi eystra og þegar fólk
er í fullri vinnu er þetta næstum
útilokað nema á frídögum, sam-
fundum fækkar, samviskubit eykst.
Ég skora á heilbrigðisráðherra
og alla aðra, sem ráða í þessum
geira, að setja nú mannúðina núm-
er eitt í úthlutunarreglurnar þann-
ig að í reglunum verði fyrsta
spurningin: „Hvaða hjúkrunarheim-
ili óskar viðkomandi eftir – er laust
pláss þar?“
Fjármagn er auðvelt að flytja
milli byggðarlaga.
Við megum ekki gleyma því að
þetta aldraða fólk, sem á biðlist-
unum er um allt landið, er fólkið
sem þrælaði myrkranna á milli, oft
við mjög erfiðar aðstæður, til að
koma okkur hinum til manns og
sumum til valda.
Eigum við ekki að vera menn til
að þakka því fyrir með því að gera
eins vel og mögulegt er við það á
efri árunum?
Og þetta með valdið, það þarf að
beita því rétt.
Að vera eða vera ekki í heimabyggð
Eftir Ingibjörgu
Marmundsdóttur »Hvaða hjúkrunar-heimili óskar við-
komandi eftir, er laust
pláss þar?
Ingibjörg
Marmundsdóttir
Höfundur er félagsliði.
Bréf til blaðsins
Efnahagsbandalagi Evrópu (ESB)
má líkja við stóran fisk. Upphaflega
var þessi fiskur ósköp væskilslegur,
en smám saman óx hann og eftir því
sem hann stækkar og maginn belg-
ist út þarf hann meiri mat. Og svo
vitum við hvað gerist þegar ekki eru
til fleiri fiskar til að næra þann
stóra, þá deyr hann og það er ein-
mitt það sem við augum blasir, stóri
fiskurinn er kominn með nálitinn.
ESB-fiskurinn er byrjaður að éta
sjálfan sig.
Úkraína er heitt svæði pólitískt og
efnahagslega viðkvæmt, sama hvort
litið er í austur eða vestur, og þess
vegna var það glapræði af ESB og
gert í kaldri örvæntingu að seilast
þangað til áhrifa. Það verður og er
orðið sífellt erfiðara að fóðra fiskinn.
Nú sjáum við afleiðingarnar. Maður
stelur ekki eplum úr garði nágrann-
ans, ekki ef maður vill halda friðinn.
Er það ekki svo að ESB hafi frá upp-
hafi verið þannig uppbyggt (vitað
eða ómeðvitað) að regluleg innspýt-
ing í hagkefið sé því lífsnauðsynleg
eigi það að lifa af?
Nýtt aðildarríki er þar af leiðandi
tímabundin seðjun fyrir efnahag
bandalagsins, þá
kemst tímabund-
in hreyfing á fjár-
magnið og fisk-
urinn nær aftur
andanumm. En
svo verður hann
svangur aftur og
hvað þá? Hann er
búinn að gleypa
næstum alla Vest-
ur- og Mið-
Evrópu og það vantar bráðum meiri
mat og nýtt fórnarlanb fundu þeir,
Brussel-nótarnir.
Úkraína skal það vera með góðu
eða illu, en er sá biti ekki eitraður?
Þarf ekki V-Evrópa nauðsynlega að
kaupa olíu og gas frá Rússum?
Er ESB-klúbburinn hreinlega bú-
inn að tapa vitinu? Hingað heim í
ESB-æsinginn sem þarf aldeilis að
lægja. Og það finnst einföld leið til
þess. Það mundi þagga niður í ESB-
sinnum á stundinni. Á meðan þings-
ályktunartillaga utanríkisráðherra
er á ís er alveg upplagt fyrir stjórn-
völd að taka smábeygju í stjórnsýsl-
unni og bjóða þjóðinni og ESB upp á
samningaumleitanir um aðeins tvo
punkta. Fiskveiðar og landbúnað.
Það myndi taka stuttan tíma, kosta
lítið og segja Íslendingum hvað
raunverulega er bak við andlits-
grímu ESB. Meira þarf ekki. Hvað
varðar fiskveiðarnar yrði aðeins um
eftirgjöf frá hendi Íslendinga að
ræða. Fiskveiðilögsaga Íslendinga
er 200 mílur. Fiskveiðilögsaga ESB
er 25 mílur. Hvað myndum við þurfa
að gefa mikið eftir, 10 mílur, 20 míl-
ur eða 50 mílur fyrir aðgöngumið-
ann? Hvað varðar landbúnaðinn
myndi innganga þýða tortímingu á
íslenska landbúnaðarkerfinu. Það
stæðist ekki flóðbylgju innfluttra
matvæla.
Þeir urðu strax sammála um einn
hlut, Mr. Fúle, stækkunarstjóri
ESB, og Össur Skarphéðinsson, og
það var að bíða með stóru kaflana
tvo. það var gert af klókindum, fyrst
að taka einföldu kaflana sem skipta
sáralitlu máli og þannig smám sam-
an læða þjóðinni inn í hlekk ESB-
keðjunnar. Það myndi nú ekki lítið
gleðja stóra fiskinn að kyngja Ís-
landi og fiskimiðum þess. Eru það
ekki einlægustu Evrópusinnarnir
sem trúa á frjálsa og óhlekkjaða
Evrópu?
JÓHANN L. HELGASON
húsasmíðameistari
Stóri fiskurinn
Frá Jóhanni L. Helgasyni
Jóhann L.
Helgason
mbl.is
Íslandsmót í paratvímenningi
Íslandsmót í paratvímenningi fer
fram dagana 22.-23. mars.
Spilað verður í húsnæði BSÍ, Síðu-
múla 37, og hefst mótið kl. 11 báða
dagana.
Skráningu lýkur kl. 12 föstudag-
inn 21.mars
Keppnisgjald er 8.000 á parið.
Kópavogsbúar sterkari
Heimamenn sýndu litla gestrisni
þegar Reykvíkingum var boðið í
heimsókn í Kópavoginn mánudaginn
17. mars. Spilað var á 10 borðum frá
hvorum aðila. Kópavogur vann
öruggan sigur með 187 stigum gegn
100. Þökkum heimsóknina.
Fimmtudaginn 20. mars er svo tví-
menningur á dagskrá í Gullsmára á
nýjan leik. Allt spilaáhugafólk vel-
komið.
Aðalsveitakeppni
Bridsfélags Reykjavíkur
Að loknum fjórum umferðum af
tólf er staðan þessi:
J.E. Skjanni 65,20
Skinney-Þinganes 64,18
Lögfræðistofa Íslands 60,23
Guðmundur Hermannsson og
Björn Eysteinsson áttu langbesta
Butlerinn þetta kvöldið. Samtals
2,58.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson