Morgunblaðið - 21.03.2014, Qupperneq 55
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Eru fleiri hundruð
kennarar í verkfalli til
þess eins að ræða
kröfur gagnaðila um
lengri vinnutíma,
styttingu náms til
stúdentsprófs, fjárhag
skólanna o.fl.? „Hér
verður ekkert slakað
á,“ sagði Gunnar
Björnsson, formaður
samninganefndar rík-
isins. Það var og. Ég hélt að við
kennarar hefðum farið í verkfall til
að ræða kröfu okkar um kaup-
hækkun, en ekki kröfur gagnaðil-
ans um eitthvað allt annað. Í átta
vikna verkfalli hér um árið höfn-
uðu kennarar þeim atriðum sem
nú eru aftur komin upp á borð.
Hvernig stendur á því að samn-
ingsaðilar okkar láta alltaf teyma
sig út í umræður um allt annað en
til var stofnað, þ.e. kauphækkun
án skilyrða? Allt annað á að ræða
um á öðrum tíma og undir öðrum
kringumstæðum. Það
liggur í augum uppi
að með þessu hátta-
lagi er ríkið að nota
verkfallssjóð kennara
og um leið ná eigin
milljónasparnaði til að
knýja fram þær
breytingar sem kenn-
arar hafa áður hafnað.
Með því að tefja um-
ræðuna um það sem
málið ætti að fjalla
um, þ.e. sjálfa launa-
hækkunina, veikir
gagnaðilinn úthald hins almenna
kennara og eykur andúðina í þjóð-
félaginu á stéttinni. Góð taktík
þetta.
Flugmenn standa nú í kjarabar-
áttu. Hvernig mundu þeir bregðast
við kröfu viðsemjenda sinna um að
dreifa samlokum og kaffi meðal
farþega í flugi. Hreinsa svo vélina
þegar lent væri og þannig lengja
viðveru sína á vinnustað og gefa
þannig eitthvað á móti væntanlegri
kauphækkun. Það er alltaf sjálf-
sögð krafa þegar um kennara er
að ræða, „hvað gefa þeir á móti?“
er spurt í hvert einasta sinn sem
farið er fram á kauphækkun. Hjá
öllum stéttum í álfunni er stefnt að
styttingu vinnutíma nema hjá
kennurum. Þessi framkoma gagn-
vart kennurum er ekki boðleg,
hvað þá þeim þúsundum nemenda
sem eru nánast á vergangi.
Ég hvet samninganefnd okkar
kennara til að vísa öllum mót-
kröfum út af borðinu nú þegar og
eingöngu ræða það atriði er verk-
fallið gekk út á, þ.e. kauphækkun
án skilyrða.
Kennarar dregnir á asnaeyrunum
Eftir Hauk R.
Hauksson »Hvernig stendur á
því að samningsaðil-
ar okkar láta alltaf
teyma sig út í umræður
um allt annað en til var
stofnað, þ.e. kaup-
hækkun án skilyrða?
Haukur R. Hauksson
Höfundur er framhaldsskólakennari.
Síðustu 40 ár hafa
norsk fiskeldisfyrir-
tæki ekki aðeins
framleitt lax, þau
hafa líka skapað sam-
félög. Frumkvöðlum í
þessum stórkostlega
iðnaði tókst að snúa
neikvæðri þróun í já-
kvæðni og uppbygg-
ingu. Meðfram allri
norsku ströndinni eru
litlir staðir sem blómstra í dag af
því að hugrakkt fólk þorði að fórna
aleigunni fyrir heimabyggðina og
þennan fisk sem nú er mikil eftir-
spurn eftir um allan heim. Árang-
urinn af því að menn tóku þessa
áhættu er hægt að sjá í dag í sjáv-
arbyggðum eins og t.d. Lovund,
Frøya, Kvarøy, Arnøy, Herøy,
Firda og svo framvegis.
Lovund eins og aðrar sjávar-
byggðir á norsku ströndinni hafði
um langan aldur lifað af sjávar-
útvegi. En það fór að halla undan
fæti upp úr miðri síðustu öld og
það þurfti að takast á við miklar
samfélagsbreytingar. Afleiðingin
var almennur flótti ungs fólks úr
sjávarbyggðunum. Ekki ósvipað og
gerst hefur t.d. á Vestfjörðum á Ís-
landi.
Um 1980 snerist hin neikvæða
þróun á Lovund við. Nokkrir
heimamenn reyndu fyrir sér við
nýja starfsgrein, laxeldi í sjó. Síð-
an ævintýrið á Lovund byrjaði hef-
ur íbúafjöldinn tvöfaldast og þar er
nú lægstur meðalaldur í Noregi,
aðeins 28 ár. Sem dæmi um þróun-
ina má nefna að einn nemandi út-
skrifaðist úr 10. bekk vorið 2012,
en þegar nýtt skólaár hófst í ágúst
byrjuðu 27 börn í 1. bekk.
Á eyjunni Lovund, sem aðeins er
4,5 km2 voru framleidd 45 þúsund
tonn af laxi árið 2012 fyrir u.þ.b. 2
milljarða NOK eða 37,6 milljarða
ISK. Þetta eru 4,3 milljóna NOK
eða 81 milljónar ISK framleiðslu-
verðmæti á íbúa. Á Lovund er vel-
megun, húsum er vel viðhaldið, ný-
ir bílar og smábátahöfninni svipar
til Aker-bryggju í Osló. Atvinnu-
leysi þekkist ekki.
En hvernig skapar laxeldi sjáf-
bærar sjávarbyggðir? Svarið er
einfalt, laxeldi býr til störf sem aft-
ur skapa verðmæti fyrir nærsam-
félagið. Laxeldi fer ekki fram í
borgum, það er á landsbyggðinni
þar sem þörfin fyrir verðmæta-
sköpun og störf er mest. Atvinnu-
og verðmætasköpunina í laxeldi má
líkja við borgarísjaka sem aðeins
lítill hluti sést af. Sýnilegi hlutinn
er seiðaframleiðsla, matfiskeldi,
flutningar og slátrun. Í þeim hluta
sem ekki er eins áberandi eru flest
störfin en það er þjón-
ustan við atvinnu-
greinina. Þar má nefna
rannsóknir á heilsu
laxfiska, vöktun, upp-
lýsingaöflun og leyfis-
veitingar o.s.frv.
Rannsóknir sýna að
atvinnugreinin vill
hafa þjónustuna á sínu
svæði. Sem dæmi má
nefna að laxaiðnaður-
inn í Troms-fylki
keypti vörur og þjón-
ustu fyrir u.þ.b 56 milljarða ISK
árið 2012, þar af 47 milljarða í
Norður-Noregi.
Getur þetta gerst á Íslandi? Það
er engin ástæða til að halda að
ekki megi takast að byggja upp
sjálfbærar sjávarbyggðir á Íslandi
sem byggjast á laxeldinu. Með nú-
tíma tækni og búnaði vitum við að
laxeldi á Íslandi er líffræðilega
mögulegt. Hitinn í hafinu hefur
vaxið á síðustu árum og eldis-
tæknin gerir eldi mögulegt á stöð-
um þar sem veðurskilyrði eru erf-
ið.
Saga Bíldudals er ekki ósvipuð
því sem gerðist á Lovund áður en
laxeldið kom til. Um 1990 bjuggu
um 450 manns í þorpinu og allt
byggðist á fiskveiðum og vinnslu.
Síðan hafa fiskveiðar smátt og
smátt lagst af og frystihúsinu var
loks lokað. Unga fólkið flutti burt
og í höfn eru bátar, sem áður
drógu björg í bú, en grotna nú nið-
ur. En það er hægt að snúa þessari
þróun við. Það er hægt að byggja
upp sjálfbært samfélag á nýjan
leik á Bíldudal, svipað og heima-
mönnum tókst að gera á Lovund.
Þess vegna höfum við gert ná-
kvæmlega það sama og menn
gerðu þar um 1980. Við leggjum
allt undir til að hefja eldi á þessu
frábæra hráefni sem laxinn er.
Í sumar flytjum við, ég og fjöl-
skylda mín frá Noregi til Bíldudals
til að fylgja þróuninni eftir en það
er ekki raunhæft að gera það úr
fjarlægð. Sama munu aðrir lykil-
starfsmenn Arnarlax gera. Samtals
flytja því um 30 manns til Bíldu-
dals í sumar. En þetta er bara
byrjunin og við erum ekki einir.
Um alla Vestfirði og Austfirði eru
eldisfyrirtæki sem eru tilbúin að
takast á við og leika sitt hlutverk í
þeirri þróun sem hafin er og skap-
að getur bjarta framtíð í sjálfbær-
um vestfirskum sjávarbyggðum.
Fiskeldi og sjálfbær-
ar sjávarbyggðir
Eftir Kristian B.
Matthíasson
Kristian B. Matthíasson
» Fiskeldi á Vest-
fjörðum og mögu-
leikar til uppbyggingar.
Höfundur er stjórnarformaður
Arnarlax ehf.
Gigaset
Símtæki
A120
Upplýstur skjár. Númerabirting
og númeraminni. Fáanlegt í
svörtu og hvítu.
Tækifærisverð:
5.310 kr. stgr.
(Fullt verð: 6.245 kr.)
SIEMENS
Expressó-kaffivél
TK 53009
Býr til ýmsa kaffidrykki með
einstakri bruggtækni. Malar
baunir. 15 bara þrýstingur.
Losanlegur vatnstankur.
Tækifærisverð:
82.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 109.900 kr.)
SIEMENS
Kæli- og frystiskápur
KG 36VNW20
Hvítur. „crisperBox“ -skúffa sem
tryggir lengur ferskleika
grænmetis og ávaxta.
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm.
Tækifærisverð:
99.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 129.900 kr.)
SIEMENS
Uppþvottavél
SN 45M205SK
13 manna. Fimm kerfi.
Hljóð: 44 dB (re 1 pW).
Barnalæsing.
Tækifærisverð:
129.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 169.900 kr.)
Orkuflokkur
HÆSTA EINKUNN Ap
ríl
20
13
Ap
ríl
20
13
SIEMENS
Þvottavél
WM 12B261DN
Vindur upp í 1200 sn./mín.
Tekur mest 6 kg.
Tækifærisverð:
89.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 119.900 kr.)
Orkuflokkur
6
Tækifæri
Mars 2014
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Öryggisgler