Morgunblaðið - 21.03.2014, Page 65
65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - is-band@isband.is - www.isband.is
Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að taka niður pantanir.
Opið alla virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Ford F350 XL 4x4 Dísel Verð 8.590.000kr án vsk 6.845.000kr
Ford F350 XLT 4x4 Dísel Verð 9.290.000kr án vsk 7.403.000kr
Ford F350 Lariat 4x4 Dísel Verð 10.290.000kr án vsk 8.200.000kr
Ford F350 King Ranch 4x4 Dísel Verð 10.690.000kr án vsk 8.518.000kr
Ford F350 Platinum 4x4 Dísel, Verð 10.790.000kr án vsk 8.598.000kr
GMC 3500 Sierra 4x4 Dísel, Verð 8.990.000 kr, án vsk 7.164.000kr
GMC 3500 Sierra SLE 4x4 Dísel, Verð 9.790.000 kr, án vsk 7.800.000kr
GMC 3500 Sierra SLT 4x4 Dísel, Verð 10.290.000 kr, án vsk 8.200.000kr
GMC 3500 Denali 4x4 Dísel, Verð 10.790.000 kr, án vsk 8.598.000kr
Nýr og enn öflugri en áður,
Dísel 440hö,
öflugur pallbíll
Nýtt útlit að utan
sem innan,
stórglæsilegur pallbíll
2015
Við sérpöntumallar gerðirbíla frá USA
og Evrópu
Nýr Ford F350 Nýr GMC 3500
2015
Malín Brand
malin@mbl.is
Þýska fyrirtækið Hamann Mot-
orsport breytti fyrsta BMW-bílnum
árið 1986 en þá var M3 E 30 tekinn
og honum breytt allverulega. Hann
var „tjúnaður“ heil ósköp og útkom-
an var 348 hestafla bíll sem náði 273
kílómetra hámarkshraða og hröð-
unin úr 0 í 100 var 5,1 sekúnda.
Þar sem þetta kom svona vel út
hefur Hamann breytt öllum gerðum
af BMW síðan og sá nýjasti fær
hvert hjarta bílaunnenda til að slá
hraðar. M6 Sport Coupé (F13 gerð-
in) hefur verið gerður að einum öfl-
ugasta Gran Turismo-bíl veraldar.
Hann er 620 hestöfl (við 760 Nm)
og er ofurbíll svo ekki sé meira
sagt.
MIRR6R vekur athygli
Á síðustu bílasýningu í Genf
kynnti Hamann MIRR6R í fyrsta
skipti. MIRR6R vísar til mirror,
spegiláferðar bílsins. Vélarhlífin í
MIRR6R-útfærslunni er úr carbon
fibre og vegur aðeins 9,5 kíló-
grömm. Áferðin, annars staðar en á
vélarhlífinni er mött og dökkgrár
liturinn svíkur engan. Bíllinn er
lækkaður um 35 millimetra og út
um púströrið berst tónlist. Það er
að segja hljóð sem er eins og tónlist
í eyrum bílaáhugafólks.
Hann er ekki bara fallegur held-
ur skilar hann sínu. Í keppni hafa
bílarnir náð frábærum tíma á braut-
inni. Það sem breytingin skilar er
rúmlega 10 prósent meira afl og
tog, auk 60 viðbótarhestafla og 80
Nm. Hann er 4,2 sekúndur upp í
hundrað kílómetra hraða og með
breytingunni reynir Hamann á bíl-
inn til hins ýtrasta.
Svartar 21" felgur með mattri
áferð fanga athyglina undir eins og
dekkin eru alveg spes, Vredestein
Ultrac Vorti R og eru klæðskera-
sniðin fyrir þennan bíl.
Myndirnar tala nú sínu máli og
eru meðfylgjandi myndir birtar með
leyfi Hamann Motorsport.
Fegurð Það er djarft að tefla saman spegilgljáandi lakki og mattsvörtum
felgum en samsetningin gengur frábærlega upp á BMW M6 MIRR6R.
Hamann Mirror breyttur BMW M6
620 hestafla villidýr frá BMW kynnt í Genf
Kraftur 6-línan frá BMW er ekkert slor en þegar Hamann Motors hafa vélað þar um verður út-
koman hreint ótrúleg, bæði að útliti og upplifun. 620 hestöfl spila þar býsna stórt hlutverk.
Straumlínur Öll hönnun MIRR6R útgáfunnar af BMW M6 ber þess vitni að
loftflæðið er bílnum í vil. Hraðinn stafar af honum, jafnvel í kyrrstöðu.