Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 80
80 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Ég fæ mér líklega eitthvað gott að borða í tilefni dagsins.Góðnautasteik kemur sterklega til greina, “ segir Davíð Guð-jónsson háskólanemi, sem fagnar 21 árs afmæli sínu í dag.
„Ég á ekki von á að elda hana sjálfur, ætli ég fari ekki út að borða, á
einhvern góðan stað. En ég er ekki búinn að ákveða hvert.“
Davíð nemur viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík, hann er
þar á fyrsta ári og lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskólanum í
fyrra. Hann lætur vel af náminu. „Þetta nám á vel við mig, það er
kostur hvað það er opið og hægt að fara út í margt. Ég er ekki búinn
að velja mér sérsvið, en það verður líklega eitthvað fjármálatengt.“
Davíð segist að öllu jöfnu ekki gera mikið úr afmælisdeginum, en
hafi þó gert undantekningu á því í fyrra þegar hann fagnaði tvítugs-
afmæli sínu. Hann bindur talsverðar vonir við að vinir sínir veki sig í
dag með afmælissöng og gómsætri tertu og staðhæfir að það geri
þeir gjarnan við sérstök tilefni.
Davíð er Garðbæingur, en þar í bæ hefur hann búið sín alla sína
ævi og er þar í góðu yfirlæti hjá foreldrum sínum, eins og hann
kemst sjálfur að orði. „Ég hef ekki hugsað mér að yfirgefa bæinn og
ef ég flyt eitthvert, þá verður það bara innan Garðabæjar. Maður
yfirgefur ekki konungsríkið sjálft,“ segir afmælisbarn dagsins.
annalilja@mbl.is
Davíð Guðjónsson háskólanemi 21 árs
21 árs afmælisbarn Davíð unir hag sínum vel í Garðabæ, þar hefur
hann búið alla sína tíð og segist hvergi annars staðar vilja vera.
Góð nautasteik og
afmælissöngur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Vestmannaeyjar Kolbrá fæddist
4. júlí kl. 14.38. Hún vó 4164 g og var
53 cm löng. Foreldrar hennar eru
Matthildur Halldórsdóttir og Njáll
Ragnarsson.
Nýir borgarar
Skagaströnd Katrín Sara fæddist
13. júní kl. 17.55. Hún vó 4490 g og var
55 cm löng. Foreldrar hennar eru
Péturína Laufey Jakobsdóttir og
Reynir Lýðsson.
S
igurbjörn fæddist í
Reykjavík 21.3. 1964 og
ólst upp í Laugarnes-
hverfi. Hann gekk í
Laugarnesskóla og
Laugalækjarskóla og síðan í FB.
Hann hefur m.a. sótt námskeið í
sálgæslufræðum á meistarastigi hjá
Endurmenntun HÍ í samvinnu við
guðfræðideild HÍ.
Á unglingsárum var Sigurbjörn í
sumarvinnu hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur. Hann var sölumaður
hjá Heklu hf. árið 1982 og starfaði á
skrifstofu KFUM og KFUK 1983-
84. Þá hóf hann störf hjá Heildversl-
un Guðmundar Arasonar við inn-
flutning á smíðajárni og sinnti þar
skrifstofu- innheimtu- og sölustörf-
um 1984-91, í fullu starfi fyrstu fjög-
ur árin en síðan í hálfu starfi.
Sigurbjörn var jafnframt fram-
kvæmdastjóri Gídeonfélagsins á Ís-
landi 1986-98, var forseti félagsins
2001-2004 og sótti m.a. aðalfund og
alþjóðamót félagsins í Kansas City
1990 og í Orlando 1993.
Sigurbjörn var forstöðumaður í
sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi
hluta úr 16 sumrum 1989-2004 og
aftur 2011, var framkvæmdastjóri
KFUM og KFUK í tengslum við 100
ára afmæli þeirra síungu æskulýðs-
félaga 1998-2000, framkvæmdastjóri
og meðhjálpari Laugarneskirkju
2000-2010 og umsjónarmaður starfs
eldri borgara þar 2006-2014. Hann
Sigurbjörn Þorkelsson, rithöfundur og ljóðskáld – 50 ára
Við störf í Vatnaskógi 2011 Sigurbjörn með sonum sínum, Þorkatli Gunnari, Geirlaugi Inga og Páli Steinari.
Boðar von og kærleika
Á Kambi Skarðsheiðar Sigurbjörn og Laufey í fjallgöngu sumarið 2013.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is