Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 81
var ráðgjafi og fyrirlesari á vegum
Vinnumálastofnunar ríkisins frá
miðju ári 2010 og 2011.
Sigurbjörn hefur sinnt ritstörfum
í fjölda ára. Tuttugasta og önnur bók
hans er einmitt að koma út þessa
dagana, greinasafnið, Kjarni máls-
ins, sem hefur að geyma 140 af þeim
um 170 greinum sem birst hafa eftir
hann í Morgunblaðinu á árunum
2004-2014. Fyrra greinasafn hans
sem ber yfirskriftinna, Góðan dag-
inn, kom út 2004. Í því er 91 valin
grein af þeim 135 greinum hans sem
birtust í Morgunblaðinu á árunum
1984-2004.
Meðal annarra rita hans má nefna
ljóðabækurnar, Sjáðu með hjartanu;
Eilíft líf; Ástríður; Sítenging; Svalt;
Lífið heldur áfram og Aðeins eitt líf.
Þá má nefna bænabækurnar Í fylgd
frelsarans; Í skugga vængja þinna,
og Vef mig vængjum þínum, og
barnabækurnar, Kærleikurinn
mestur; Bjössi fer í Vatnaskóg;
Prakkarastrik Bjössa; Ingi finnur
jólin og Afmæli undirbúið.
Sigurbjörn hefur flutt fjölda fyrir-
lestra og erindi, m.a. um mannleg
samskipti, fyrirgefninguna, ellina,
dauðann, bænina og margt fleira.
Hann hefur leitt guðsþjónustur í af-
leysingum í Laugarneskirkju í fjölda
ára og flutt fjöldann allan af prédik-
unum í kirkjum landsins síðustu 25
árin eða svo. Hann hefur lesið upp
ljóð, verið fundarstjóri og flutt hug-
vekjur og ræður hjá félagasam-
tökum við ýmis tilefni og leitt bæna-
stundir.
Sigurbjörn hefur um árabil setið í
nefnd sem sér um starf 18-99 ára
karla á vegum Aðaldeildar KFUM.
Hann er félagi í Rithöfunda-
sambandi Íslands frá árinu 2000.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurbjörns er Laufey
Geirlaugsdóttir f. 6.5. 1963, söng-
kona, stjórnandi Karlakórs KFUM
og bókari hjá GA- Smíðajárni.
Foreldrar hennar voru Geirlaugur
K. Árnason, f. 24.8. 1926, d. 13.7.
1981, deildarstjóri hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins, rakari, organisti og
söngstjóri frá Akranesi, og Svein-
björg H. Arnmundsdóttir, f. 15.2.
1927, d. 16.2. 2010, verslunarkona,
húsfreyja og sumarbúðastjóri í sum-
arbúðum KFUM og KFUK í Ölveri,
einnig frá Akranesi .
Synir Sigurbjörns og Laufeyjar
eru Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson,
f. 23.4. 1986, íþróttafréttamaður hjá
Morgunblaðinu, áður hjá 365 og
RÚV og ritari í stjórn Vatnaskógar;
Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson, f.
30.11. 1989, rafvirki og starfsmaður í
tölvudeild OLÍS og formaður stjórn-
ar sumarbúðanna í Kaldárseli, og
Páll Steinar Sigurbjörnsson, f. 26.1.
1995, nemi við Verzlunarskóla Ís-
lands, handboltamaður í Fram og
vaktstjóri hjá Bauhaus.
Foreldrar Sigurbjörns voru: Þor-
kell Gunnar Sigurbjörnsson f. 3.6.
1912, d. 28.11. 2006, verslunarmaður
í Reykjavík, fyrsti forseti Gídeon-
félagsins á Íslandi og heiðursfélagi
KFUM, og Steinunn Pálsdóttir f.
3.8. 1924, d. 12.3. 2006, húsfreyja af
Guðs náð með meiru. Hún sat m.a. í
stjórn sumarbúða KFUK í Vindás-
hlíð í 18 ár.
Úr frændgarði Sigurbjörns Þorkelssonar
Sigurbjörn
Þorkelsson
Steinunn Guðbrandsdóttir
húsfr og fiskverkak. á Akri
Þorkell Helgason
sjóm. á Akri í Rvík (v. Bræðrab.st.)
Margrét Þorkelsdóttir
húsfr. í Rvík
Steinunn Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Pálsson
fyrrv. sóknarpr. í
Hallgrímskirkju
Fabúla
tónskáld
Páll Sigurðsson
prentari í Rvík og einn af stofnendum
knattspyrnufél. Vals
Anna Þ.
Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
Kristín Jóhannesdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Sigurðsson
vitavörður og stýrim. Í Rvík
Sólveig Ólafsdóttir
ljósm. á Valdastöðum og í Rvík
Bjarni Jakobsson
trésmiður á
Valdastöðum í
Kjós og í Rvík
Gróa Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
verslunarm. og forseti
Gideonfélags Íslands
Hanna Sigurbjörnsdótir
húsfr. í Rvík
Sigurbjörn Sveinsson
læknir
Sólveig Sigurbjörnsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurbjörn Björnsson
öldrunarlæknir
Hjalti Sigurbjörnsson
b. á Kiðafelli
Sigurbjörn Hjaltason
b. á Kiðafelli
Kristín Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Þorkell Halldórsson
verkam. í Rvík
Salome Þorkelsdóttir
fyrrv. forseti Alþingis
Sigurður Þorkelsson
fyrrv. ríkisféhirðir
Kristín Þorkelsdóttir
myndlistarmaður
Þorkell Jóelsson
hornleikari í
Sinfóníuhljómsveit
Íslands
Sigurbjörn Þorkelsson
kaupm. í Vísi og einn
stofnenda KFUM og
Gideonfélags Íslands
Dr. Björn Sigurbjörn-
ss. fyrrv. framkvæm-
dastj. FAO í Vín og
ráðuneytisstj.
Unnur Steina Björnsd.
læknir og sérfr. í
ofnæmisfræði
Friðrik Sigurbjörnsson
skrifstofustj. HÍ
Þorvaldur Friðriksson
fornleifafr. og fréttam.
á RÚV
Áslaug Sigurbjörnsd.
hjúkrunarfr. í Rvík
Sigurbjörn Magnúss.
hrl. í Rvík
ÍSLENDINGAR 81
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Jón Andrésson Hjaltalín, skóla-stjóri á Möðruvöllum, fæddistá Stað í Súgandafirði 21.3.
1840. Hann var sonur Andrésar
Hjaltasonar sem var víða prestur en
síðast í Flatey á Breiðafirði. Móðir
Jóns var Margrét, dóttir Ásgeirs Ás-
geirssonar, bónda á Arngerðareyri í
Nauteyrarhreppi, og Maríu Páls-
dóttur.
Andrés prestur var sonur Hjalta
Jónssonar, prófasts á Stað í Stein-
grímsfirði, og k.h., Sigríðar Guð-
brandsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Jóns var Margrét Guð-
rún, dóttir Jóns Þorsteinssonar
Thorstensen, landlæknis og alþm. í
Nesi við Seltjörn, þess er flutti emb-
ættið til Reykjavíkur er hann byggði
sér búðarhús í túni Hlíðarhúsa
(Doktorshúsið við Ránargötu) og
k.h., Elínar Stefánsdóttur Thor-
stensen, f. Stephensen, húsfreyju.
Jón lauk stúdentsprófi frá Lærða
skólanum 1861 og guðfræðiprófi frá
Prestaskólanum 1864. Hann var
aldrei þjónandi prestur heldur
stundaði hann kennslu og ritstörf í
Reykjavík 1864-66 og í Lundúnum
og Kaupmannahöfn 1866-71. Hann
varð svo kallaður undirbókavörður
við Advocates Library í Edinborg
1871 og við University Library í Ed-
inborg 1879.
Jón var skipaður skólastjóri
Gagnfræðaskólans á Möðruvöllum í
Hörgárdal sumarið 1880, flutti með
skólanum til Akureyrar 1902 en lét
af störfum sumarið 1908, skömmu
fyrir andlát sitt.
Jón var konungkjörinn alþm.
1887-99. Hann var einlægur og
frumlegur fræðimaður, var afkasta-
mikill rithöfundur, m.a. á ensku, um
menningu norrænna manna til forna
og um landnám Íslands og menn-
ingu hér á þjóðveldisöld, gaf út
Orðasafn íslenzkt og enskt 1883 og
Enska lestrarbók 1897, og tók sam-
an mikla bókaskrá fyrir Advocates
Library. Hann gekk í söfnuð Swe-
denborgs-manna sem aðhylltust dul-
speki sænska vísindamannsins og
verkfræðingsins Emanuels Sweden-
borg og þýddi tvö rita hans.
Jón lést 15.10. 1908.
Merkir Íslendingar
Jón A.
Hjaltalín
90 ára
Margrét Eyjólfsdóttir
85 ára
Guðrún Georgsdóttir
Steinþór Steingrímsson
Þórunn Ólafía
Sigurðardóttir
80 ára
Birna Hrólfsdóttir
Einar Einarsson
Guðrún Hrönn
Hilmarsdóttir
Hallgrímur Pétursson
Jóhanna M. Einarsdóttir
Svanfríður Valdimarsdóttir
Ýrr Bertelsdóttir
75 ára
Aðalsteinn Davíðsson
Auður Ásta Jónasdóttir
Sigríður Jóna
Kjartansdóttir
Sigurður Þórðarson
70 ára
Bergþóra Einarsdóttir
Ester Jakobsdóttir
Ingibjörg J. Jónsdóttir
Kolbrún Thomas
Sigurður Kristjánsson
60 ára
Helga Guðnadóttir
Sigrún Ársælsdóttir
Sigurður Jóhannsson
Sigurður Óli Guðbjörnsson
Sigurður Steinþórsson
Örn Sigurðsson
50 ára
Anna Sigríður Einarsdóttir
Ásgerður Svava
Gissurardóttir
Hugrún Ósk Heiðdalsdóttir
Kambiz Vejdanpak
Lára Kristín Jónsdóttir
Margrét Hallgrímsdóttir
Njáll Hákon Guðmundsson
Páll Kristinn Guðjónsson
Rannveig Halldórsdóttir
Runólfur Elís Axelsson
Sigurður V. Friðriksson
Sveinn Mikael Sveinsson
Þórdís Jónsdóttir
Þórunn Ásdís Óskarsdóttir
40 ára
Alexandra Viðar
Anna Björg Jónsdóttir
Dariusz Brodowski
Elísabet Th. Stefánsdóttir
Halldór Gunnar
Hálfdánarson
Helena Björk Björnsdóttir
Jóhann Indriði Kristjánsson
Maríanna Björg
Sigurðardóttir
Slawomir Stanislaw
Brzozowiec
Theodór Bender
Yvonne Williams
30 ára
Ari Þórðarson
Atli Freyr Kolbeinsson
Áslaug Sigmarsdóttir
Bjarni Pétursson
Fernando de Jesus C.
Goncalves
Freydís Dögg
Steindórsdóttir
Guðrún Jóna
Hreggviðsdóttir
Helga Dóra Magnúsdóttir
Jónas Steinmann
Sigrún Jóhannsdóttir
Sveinbjörn Magnússon
Vilborg Bjarkadóttir
Wojciech Maciej
Kwiatkowski
Þórarinn Már Árnason
Til hamingju með daginn
30 ára Valgeir ólst upp á
Eskifirði en hefur, ásamt
fjölskyldunni rekið sölu-
turninn Ungó í Keflavík.
Maki: Þorgerður Sigur-
björnsdóttir, f. 1982, hús-
freyja.
Börn: Sædís Lind, f.
2000; Laufey Lind, f.
2004, og Björn Ólafur, f.
2006.
Foreldrar: Laufey Sigríð-
ur Kristjánsdóttir, f. 1962,
og Eggert Ólafur Einars-
son, f. 1966.
Valgeir
Magnússon
30 ára Krummi ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófum í kvikmyndagerð
við Prag Film School í
Tékklandi og starfar við
klippingar og fleira hjá
Skjáeinum.
Systkini: Haukur Karls-
son, f. 1975, og Ari Jóns-
son, f. 1996.
Foreldrar: Kristín Hauks-
dóttir, f. 1951, sýningar-
stjóri í Þjóðleikhúsinu, og
Jón Óskar Valgeirsson, f.
1955, húsasmiður.
Hrafn
Jónsson
30 ára Sonja býr í Hafn-
arfirði, er lærður útstill-
ingahönnuður og er nú
dagmóðir.
Maki: Elvar Hrafn Aðal-
geirsson, f. 1986, starfar
hjá Opnum kerfum.
Börn: Sigfús Kári Elvars-
son, f. 2006, og Dagný
Lilja Elvarsdóttir, f. 2008.
Foreldrar: Guðbjörg
Árnadóttir, f. 1952, klínik-
dama, og Sigfús Jóhann-
esson, f. 1952, skoð-
unarm. hjá Aðalskoðun.
Sonja Dögg
Sigfúsdóttir
DÚKA www.duka.is
KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322
SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
20% afsláttur
af baðlínunni
frá Koziol á
Kringlukasti