Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Tékkneski rithöfundurinnMilan Kundera skrifar íÓbærilegum léttleika til-verunnar að hundar njóti
ekki mikilla forréttinda fram yfir
menn, en ein þeirra séu mjög mik-
ilvæg: líknardauði sé í þeirra tilfelli
ekki bannaður með lögum, þeir eigi
rétt á að deyja með líkn.
Kvikmyndin Hunang fjallar um
unga stúlku, sem hefur atvinnu af
því að hjálpa fólki að komast yfir
móðuna miklu. Hún er kölluð Miele,
sem merkir hunang, en heitir Irene
í raun og hæfir það nafn kannski
betur starfinu því að svo hét gyðja
friðarins í grískri goðafræði.
Myndin gerist á Ítalíu. Við fylgj-
umst með Miele við störf sín. Hún
fer út fyrir landsteinana til að ná í
eitur, sem er ætlað til að lóga hund-
um eins og fram kemur á umbúð-
unum (óvænt og sennilega óafvituð
vísun í orð Kundera). Hún fer inn á
heimili farlama fólks, fársjúks og
dauðvona, sem vill fá líkn frá kvöl-
um sínum, en getur ekki gert það
nema að fara á bak við lögin. Hún
kemur fram við fólkið af virðingu,
talar varlega og gætir þess að sjúk-
lingurinn lyfti sjálfur glasinu með
eitrinu og drekki úr því. Að baki
henni eru einhvers konar huldu-
samtök, en fyrir
utan tengilið,
sem felur henni
verkefni, sjást
þau ekki í mynd-
inni.
Starf Miele er
óhugnanlegt, en
þó vaknar engan
veginn sú tilfinn-
ing að hún sé for-
hertur morðingi, frekar að hún
hlaupi í skarðið þar sem þjóðfélagið
hafi brugðist af ótta við bannhelgar.
Sjálf lítur Miele, sem flosnaði upp úr
læknanámi, svo á að hún sé að vinna
hugsjónastarf. Starfið tekur á, en
hún hefur sín áhugamál og vini og
virðist í jafnvægi.
Einn góðan veðurdag er hún send
til eldri manns, sem er mun spræk-
ari en viðskiptavinir hennar fram að
því. Á daginn kemur að ekkert amar
að honum, hann er bara orðinn leið-
ur á lífinu og leitar sér aðstoðar
vegna þess að hann vill deyja með
snyrtilegum hætti.
Þessi uppskrift passar ekki inn í
heimspeki Irene. Hún hjálpar dauð-
vona fólki og mikið fötluðu, en ekki
fílhraustu fólki bara vegna þess að
því finnst ekki lengur skemmtilegt
að lifa.
Í Hunangi er tekið á veigamiklum
spurningum með grípandi hætti.
Spurningin um líknarmorð hefur
lengi verið til umfjöllunar. Í Banda-
ríkjunum fór læknirinn Jack Ke-
vorkian um, hjálpaði fólki að deyja
og var kærður fyrir að fremja líkn-
armorð. Hann fékk viðurnefnið
doktor Dauði.
Líknarmorð eru lögleg í Benelux-
löndunum. Á nokkrum öðrum stöð-
um er löglegt að veita aðstoð við
sjálfsmorð. Í Hunangi er sýnt
hvernig hægt er að komast hjá
banni við líknarmorðum, en þá verð-
ur líknardauði forréttindi hinna efn-
uðu. Spurningin um það hvers
vegna takmarka eigi „réttinn“ til að
fá aðstoð við að fremja sjálfsmorð í
stað þess að um sé að ræða „þjón-
ustu“ sem hver sem er geti veitt sér
hafi hann efni á því sprengir hins
vegar umræðuna.
Myndin er að mörgu leyti vel
gerð. Hún er fyrsta myndin sem
leikkonan Valeria Golino, sem virð-
ist hafa leikið í þremur til fjórum
myndum á ári undanfarin þrjátíu ár
og margir ættu að muna eftir úr
kvikmyndinni Rain Main, leikstýrir
í fullri lengd. Um þessar mundir er í
tísku að velta áhorfendum upp úr
öllum subbuskap í helstu smá-
atriðum bara vegna þess að það er
hægt. Golina fer hina leiðina og
klippir fyrir síðasta andvarpið og
leyfir heilabúi áhorfandans að taka
við. Það vill gleymast að sú aðferð er
oft áhrifaríkari en blóðslettuleiðin.
Margir litlir hlutir gera myndina
sérstaklega eftirminnilega og má
þar sérstaklega nefna atriði á
skemmtistað þar sem Irene daðrar
við strák í gegnum rúðu við dunandi
danstónlist.
Rómverjinn Jasmine Trinca, sem
í útliti minnir dálítið á leikkonuna
Rachel Ward, leikur aðalhlutverkið
með miklum bravúr. Hún fær að
fara upp og niður tilfinningaskalann
og gerir það af öryggi. Af öðrum
leikurum ber helst að nefna Carlo
Cecchi, sem stendur sig svo vel í
hlutverki hins lífsleiða Carlos Gri-
maldis að of mikið návígi gæti gert
lífsleiðann smitandi.
Miele veitir ekki afdráttarlaus
svör, en hún er sterkt innlegg í
deiluna um líknardauða.
Hundalíf Jasmine Trinca og Carlo Cecchi í hlutverkum í ítölsku myndinni Hunang, sem fjallar um líknarmorð.
Réttlægri en hundar
Bíó Paradís
Hunang bbbmn
Leikstjóri: Valeria Golino. Leikarar:
Jasmine Trinca, Carlo Cecchi, Libero De
Rienzo, Vinicio Marchioni, Iaia Forte.
Ítalía, Frakkland. 96 mín.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Valeria Golino
Tónleikar til styrktar Fjölskyldu-
hjálp Íslands verða haldnir í kvöld á
Café Rósenberg, Klapparstíg 25-27.
Tónlistarmenn á ólíkum aldri og úr
ýmsum áttum munu flytja frum-
samda tónlist á tónleikunum. Þeir
sem koma fram eru Björgvin Gísla-
son, Bellstop, HEK, Dj. flugvél og
geimskip, gímaldin og Skúli
mennski. Tónlistarmennirnir gefa
vinnu sína og er miðaverð 1.500 kr.
Ágóði af miðasölu rennur óskiptur
til Fjölskylduhjálpar Íslands. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21.30.
Leikið til styrktar
Fjölskylduhjálp
Styrkur Dj. flugvél og geimskip.
Morgunblaðið/Eggert
Lækjargötu og Vesturgötu