Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 87
MENNING 87
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
-
Kristján Ólafsson hrl.
Lögg. fasteignasali
414-4488
Sigurður Rúnar
Sölufulltrúi
sigurdur@hofudborg.is
825-0089
Heimir Bergmann
Sölufulltrúi
heimir@hofudborg.is
630-9000
Höfuðborg fasteignasala • Hlíðasmára 2, 6. hæð • 414-4488
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 23. MARS FRÁ KL. 16:00-16:30
Falleg og rúmgóð 4ra-5 herb. þakíbúð í hjarta Reykjavíkur alls 175,9 m2 skv. nýjum
eignaskiptasamningi. Íbúðin er í virðulegu og vel viðhöldnu húsi við
Klapparstíg 29. Um er að ræða sögufrægt hús byggt af V. Poulsen 1927
sem rak þar fyrirtæki sitt til áraraða. Laus strax. Verð 61,5 millj.
Upplýsingar veitir Heimir í síma 630 9000.
Fyrir ákveðna
kaupendur
Vantar í 107 Rvík
5 herb. íbúð / hæð/ raðhús. Sérinngang. Helst
tvö baðherb. Verð allt að 65 milj.
Vantar 2ja-3ja herb. í 101
helst með sérinngang
Má vera hæð, lítið hús sem hægt er að gera
tvær litlar íbúðir. Staðgreisla fyrir réttu eignina.
Vantar 2ja-3ja herb.
í bryggjuhverfi/Grafarvogi
eða Grafarholt
með sérinngangi. Verðhugmynd 25 millj.
Upplýsingar veitir Heimir í síma 630-9000
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 23. MARS KL. 14.00-15.00
5 íbúða 2ja hæða raðhúsalengja 229 fm með bílskúr. Frábær staðsetning. Barnvænt hverfi. Sólríkur suðurgarður með hellu-
lagðri verönd. Göngufæri í leikskólann Akrar, Hofsstaðaskóla og Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Stutt í verslunarmiðstöðina
Smáralind og helstu verslanir og þjónustu fyrirtækja í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði. Leik- og sparkvöllur í enda götun-
nar. Hús og lóð fullfrágengin að utan með torfi og gróðri og fyrir framan húsin er hellulagt bílaplan með hitalögn. Húsin verða
afhent tilbúin til innréttinga í júní 2014 samkvæmt ítarlegri skilalýsingu. Upplýsingar veitir Sigurður Rúnar í síma 825 0089.
Klapparstígur 29 • Laus strax
Byggakur 2-10 • OPIÐ HÚS
Opnunarhátíð Alþjóðlegrar barna-
kvikmyndahátíðar í Bíó Paradís var
haldin í gær og voru börn hvött til að
mæta til hennar í ofurhetjubúning-
um þar sem opnunarmynd hátíðar-
innar, Antboy, fjallar um ungan
dreng sem bitinn er af maur og öðl-
ast við það ofurhetjukrafta.
Lalli töframaður skemmti börnum
á opnunarhátíðinni og Vigdís Finn-
bogadóttir, verndari hennar, flutti
ávarp líkt og Jón Gnarr borgarstjóri
sem setti hátíðina formlega.
Kvikmyndahátíð barnanna
stendur næstu vikuna.
Bíóhátíð
barnanna
Morgunblaðið/Eggert
Töfrar Lalli töframaður fór á kostum og hér aðstoðar ungfrú Tinna hann.Ofurhetjur Mörg börn mættu í ofurhetjubúningum og skemmtu sér vel.
Kvikmynd Benedikts Erlingssonar,
Hross í oss, er sýnd þessa dagana á
hinni árlegu og virtu hátíð nýrra
kvikmynda í New York; New Direc-
tors/New Films. Einn helsti kvik-
myndarýnir stórblaðsins The New
York Times, A.O. Scott, skrifaði um
kvikmyndina í útgáfu blaðsins í
gær og segir að í þessari „hnyttnu
en á stundum hræðilegu“ mynd sé
unnið með hin forvitnilegu en jafn-
fram flóknu bönd sem hafa þróast
milli manns og hests. Hann segir
hrossin græða minna á sambandinu
en mennirnir og á köflum sé ógn-
vekjandi að sjá hörkuna sem þau
eru beitt. „Þau eru limlest, neydd
til að synda í jökulköldu vatni og
stundum drepin, í kjölfar heimsku-
legra uppátækja,“ skrifar hann.
„En fólkið þjáist líka og við erum þá
látin hlæja. [Benedikt] hefur þurr-
an og nákvæman leikstjórnarstíl
sem þurrkar út skilin milli kómedíu
og tragedíu og leggur áherslu á
reisn ferfætlinganna og hversu
kjánalegir hinir svokölluðu herrar
þeirra eru í raun,“ skrifar rýnirinn.
Hrossið Kvikmyndin fjallar um samband
manns og hests og þykir rýni sumt skrýtið.
Eyðir skilum kóme-
díu og tragedíu
Áheitasöfnun Mottumars er við það
að ljúka en lokahóf átaksins er
haldið í Hörpu í kvöld, föstudag, og
hefst klukkan 19.30. Er það haldið
samhliða tvennum tónleikum til
heiðurs rokksveitinni Led Zeppelin
sem fara einnig fram þar í kvöld.
Verðlaun verða veitt fyrir feg-
ursta yfirskeggið og efstu þrjú sæt-
in í liða og einstaklingskeppni.
Tvennir tónleikar með tónlist
Led Zeppelin verða haldnir, kl. 20
og 23. Söngvarar eru Eiríkur
Hauksson, Eyþór Ingi og Stefán
Jakobsson. Tónlistarstjóri er Þórir
Úlfarsson. Sérstakir gestir eru
Birgir Haraldsson söngvari og Sig-
urgeir Sigmundsson gítarleikari.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Gítarleikarinn Jimmy Page skartaði
myndarlegu skeggi er hann lék með Led
Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma.
Áheitasöfnun
Mottumars lýkur