Morgunblaðið - 21.03.2014, Page 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Við bjóðum öll afmælisbörn
velkomin og gefum þeim fría
n
eftirrétt í tilefni dagsins.
afmaeli?
Attu´
Til hamingju!!!
H
ug
sa
sé
r!
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Ég nýt þess að stunda skvass
því þetta er besta alhliða
sportið sem ég hef kynnst.
Þar brennir maður flestum
kalorium, eykur vöðvastyrk
og vöðvaúthald ogmeiðsl eru
fátíð í skvassi (skv könnun
Forbes)
Erling Adolf Ágústsson
Skvass gæti verið fyrir þig
Frír prufutími
Skvass er skemmtileg íþrótt fyrir
fólk á öllum aldri.
Um er að ræða fjölbreytta
hreyfingu og mikla
brennslu.
Bóka þarf tíma
með fyrirvara. Víkingamálmsveitin Skálmöld
heldur í hljóðver í lok maí þar sem
hún mun taka upp þriðju breiðskífu
sína. Fyrri plötur sveitarinnar,
Baldur og Börn Loka, voru lofaðar
í hástert af málmrýni Morgunblaðs-
ins og aðdáendur sveitarinnar bíða
eflaust í ofvæni eftir þriðju skíf-
unni. Á fyrstu skífunni var rakin
saga víkingsins Baldurs og á þeirri
seinni var sótt í gnægtabrunn
ásatrúar.
Skálmeldingurinn Snæbjörn
Ragnarsson segist ekki vita hversu
hratt þeir félagar fari í upptök-
urnar en þeir séu þó komnir með
heilmikið efni og farnir að æfa það
upp og þétta. Platan muni að öllum
líkindum koma út á þessu ári.
Spurður að því hvort búið sé að
negla niður söguna sem sögð verð-
ur á plötunni svarar Snæbjörn því
til að hún sé í mótun. „Textarnir
koma alltaf eftir að lögin eru klár.
Af því við förum þessa leið, að hafa
konsept á plötunni, hvort sem það
eru sögur eða eitthvað annað, höf-
um við gert það þannig að við semj-
um konseptið og tónlistina sam-
hliða. Þegar konseptið er fullmótað
förum við að ákveða hvaða lag á að
tilheyra ákveðnum hluta af því og
svo er textinn lagður ofan á það,“
segir Snæbjörn. helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Málmmenn Skálmöld á æfingu í Eldborg í fyrra. Björgvin Sigurðsson
söngvari og gítarleikari og Snæbjörn Ragnarsson bassaleikari í vígamóð.
Skálmöld heldur
í hljóðver í maílok
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Hátt í 100 ungmenni í Háskóla-
kórnum og Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins (Ungfónía) flytja
Mansöng fyrir Ólafs rímu Græn-
lendings eftir Jórunni Viðar á
tvennum tónleikum; í Reykholts-
kirkju í kvöld og í Langholtskirkju
á laugardag.
Jórunn Viðar varð 95 ára í des-
ember síðastliðnum og eru tónleik-
arnir ekki síst haldnir til þess að
heiðra merkan frumkvöðul í tón-
listarlífi landsmanna. Mansöngur
Jórunnar hefur tvisvar áður verið
fluttur með píanói en verður nú í
fyrsta sinn fluttur í upprunalegri
gerð með strengjasveit.
Fágætt tækifæri
Ungfónía var stofnuð fyrir næst-
um áratug síðan af nemendum
sem þótti skorta tækifæri til þess
að öðlast reynslu við að spila með
hljómsveit. Stjórnandi sveitarinnar
er Gunnsteinn
Ólafsson.
„Ungfónía er
óháð tónlistar-
skólum og það fá
allir að vera með
sem vilja. Ég
var á sínum tíma
í þessari sveit en
hef verið í tón-
listarnámi er-
lendis frá 2008.
Gunnsteinn heldur vel utan um
hópinn og er duglegur að bjóða
okkur sem höfum verið úti í fram-
haldsnámi til þess að koma og
taka þátt í tónleikum Ungfóníu.
Þetta er náttúrulega frábært
tækifæri fyrir okkur sem erum að
stíga út í hinn stóra heim en það
er ekki sjálfgefið að fá að spila
með hljómsveit. Slík tækifæri eru
fágæt fyrir hljóðfæraleikara eins
og mig og ég er mjög þakklát fyrir
þessa reynslu,“ segir Geirþrúður
Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari, en
hún mun flytja einleik á tónleik-
unum, í fiðlukonsert eftir Mend-
elssohn.
Geirþrúður Ása stundaði nám
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og Listaháskóla Íslands og síðan í
Austurríki. Hún er nú við fram-
haldsnám í Bandaríkjunum.
Tónlist fyrir alla
Geirþrúður segir að allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi á
tónleikunum.
„Þetta er mjög aðgengileg tón-
list. Verkið eftir Jórunni er afar
fallegt sem og fiðlukonsertinn eftir
Mendelssohn en margir ættu að
kannast við hina og þessa kafla úr
honum til dæmis úr teiknimynd-
inni Fantasíu. Að lokum leikur
hljómsveitin sinfóníu nr. 9 eftir
Antonin Dvorak sem kölluð er Til
nýja heimsins. Þetta eru í raun allt
verk sem fólk hefur heyrt og gott
er að hlusta á.“
Tónleikarnir í Reykholtskirkju
verða í kvöld kl. 20.00 en í Lang-
holtskirkju á laugardag kl. 17.00.
Mansöngur Jórunnar
í upprunalegri gerð
Ungfónía og Háskólakórinn heiðra Jórunni Viðar
Hljómsveit Sinfóníuhljómsveit unga fólksins flytur ásamt Háskólakórnum mörg falleg verk.
Geirþrúður Ása
Guðjónsdóttir
Aukablað alla
þriðjudaga