Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Síða 2
Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.10. 2014 Svar: Nei, ég sef alveg. Ég held samt að hún komi hingað og þá er okkur vandi á höndum því heilbrigðiskerfið okkar er ekki nógu gott. Marta Rut Pálsdóttir 33 ára Svar: Það gerist ábyggilega á endanum. Ég er samt ekkert hrædd við hana núna. Máney Rós Jónatansdóttir 15 ára. Svar: Ég veit bara að ebólan er hættuleg og það hafa margir látist vegna hennar. En hvort hún kemur hingað veit ég ekki. Nathalie Sunna Róbertsdóttir 15 ára. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Svar: Ég hugsaði svolítið um veiruna þegar ég var í London því þar millilenda svo margir sem hafa verið í Afríku. En á Íslandi finnst mér ég vera öruggur. Bren Carruthers 29 ára frá Ástralíu. Morgunblaðið/Árni Sæberg SPURNING DAGSINS ÓTTAST ÞÚ AÐ EBÓLA BERIST HINGAÐ TIL LANDS? Snjallúr virðast vera það sem koma skal. Hin snjöllu úr mæla skrefa- fjölda, púls og veita not- anda ýmsar upplýsingar sem deila má um hvort eru gagnlegar eða ekki. Tækni 36 Í BLAÐINU Nú er von á nýrri Vísindabók Villa, er margar nýjar uppgötvanir og tilraunir að finna þar? Já, það verður fullt af glænýjum tilraunum, fleiri en í síðustu bók og svo kaflar um hitt og þetta sem er spennandi að velta fyrir sér. Sumt sem virkar flókið er bara mjög einfalt en svo eru líka hlutir sem okkur finnst óskaplega hversdagslegir en eru ótrúlega flókn- ir. Þetta er svo spennandi og gaman að velta hlutum fyrir sér og það er svo gam- an að tala við krakka um hvernig heimurinn okkar virkar og hvað þetta er mikið kraftaverk sem fylgir samt ákveðnum lögmálum. Hvernig verða snjókorn til? Hvað er andefni? Af hverju er nóttin björt á sumrin en morgunninn dimmur á veturna? Það þýðir að það sé erfitt að vakna á veturna en vonlaust að fara að sofa á sumrin. Allt þetta er svo skemmtilegt að hugsa um og á sér skýringar. Varst þú mikið að pæla í vísindum sem krakki? Já, ætli það hafi ekki komið í gusum. Ég átti hema í sveit þar sem voru engin götuljós svo ég sá stjörnurnar mjög vel og þá meina ég svona vel eins gerist bara fyrir utan þéttbýli, þegar maður sér svo margar að maður greinir varla stjörnumerkin. Það er ótrúlegt. En ég hef alltaf verið mjög forvitinn. Hvað þurfa krakkarnir að hafa í huga þegar þeir gera tilraunir? Passa að húsið springi ekki og að heimurinn eyðist ekki. Nei, nei, bara að hafa gaman af því sem þau eru að gera og skilja hvers vegna það gerist. Ef eitthvað á að sveiflast, hvers vegna sveifl- ast það? Ef eitthvað á að gjósa, hvers vegna gýs það? Ef eitthvað á að svífa, hvers vegna svífur það? Það stendur alltaf í bókinni hvað sé í gangi. Það er svo gaman að gera tilraunir saman. Eru krakkar ekki miklu skemmtilegri en fullorðnir? Jú, miklu skemmtilegri og eru forvitin. Það versta sem gerist þegar við verðum eldri er ef fólk hættir að vera forvitið og því fer að finnast hlutir bara venjulegir. Eins og t.d. að það skuli snjóa eða laufblöð falla af trjám. Það er ótrúlega spenn- andi. Það er líka gaman að skrifa vísindabækur fyrir börn því þær virka fyrir fullorðna líka – við búum öll í saman heiminum og höfum vonandi flest gaman af því að velta honum fyrir okkur. Þeir sem eru börn í dag eru það dýrmætasta sem við eigum. Það dýrmætasta sem til er í heiminum – því þau eru framtíðin. Þau munu ráða þegar ég verð orðinn gamall og þess vegna verðum við að leyfa þeim að vera forvitin alla ævi og gagnrýnin – þá verða þau miklu, miklu klárari en fullorðna fólkið í dag. Hvað er um að vera 19. október? Við Sveppi verðum með risa rokktónleika og skemmtun fyrir krakka í Há- skólabíói. Við héldum svona tónleika í febrúar líka og það var alveg frábært og meiriháttar gaman. Þetta verður mjög gaman. Gói verður leynigestur. VILHELM ANTON JÓNSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Kristinn Jakobsson knatt- spyrnudómari er kempa vik- unnar og gefur góð heilsuráð. Hann segir lykilinn að góðum árangri vera að setja sér tak- mark, nálgast það af fag- mennsku, hugsa vel um lík- amann, æfa, nærast og hvílast vel. Heilsa 25 Reglugerð 814 frá 2010 hafði mikil áhrif á aðgengi Vopnfirðinga að sundlaug. Heitt vatn rann beint úr holu í laugina í 65 ár og þar syntu menn að vild allan sólar- hringinn. Nú er öldin önnur, þótt sundlaugarvörðurinn segist ekki viss um að huglæg girðing haldi öllum frá þegar laugarsvæðið sé í raun lokað. Landið og miðin 12 Dómhildur Arndís Sigfúsdóttir kaupir frekar fáar en vandaðar flíkur. Dóm- hildur hefur lagt það í vana sinn að fjárfesta í klassískum flíkum sem endast lengi. Tíska 40 Vilhelm Anton Jónsson, sem flestir þekkja sem Villa naglbít en þau yngstu eflaust sem Vísinda-Villa, er margt til lista lagt. Hvort sem er að leika, syngja, stýra spurn- ingaþætti eða gefa út bækur. Önnur vísindabók frá Villa er væntanleg í lok októ- ber og mun hann ásamt félaga sínum Sveppa halda veglega rokktónleika 19. október fyrir krakka og fjölskyldur þeirra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Megum ekki hætta að vera forvitin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.