Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 13
Seiðmagnaður súlustaður íslenskra jökla Stykkishólmur í skemmtilegu ljósi. Vatnasafnið sem bandaríska listakonan Roni Horn kom upp í gamla bókasafninu í Stykk- ishómi fyrir nokkrum árum er magnað. Óhætt er að hvetja alla sem leggja leið sína til bæjarins fallega á Þórsnesi við Breiða- fjörð að koma við í húsinu glæsilega sem blasir við efst á kletti niður við höfnina. Horn kom fyrir vatnssýni úr 24 jöklum hér á landi í glærum súlum; verkið, innsetn- ingin, er ekki flókið að sjá en slík nálægð við jöklana er áhrifamikil og skemmtilegt að gera sér að leik að rýna gegnum súlurnar á næsta mann eða út um gluggann. Í húsinu eru í raun þrjú söfn; vatns, orða og veðurfregna. Í hliðarherbergi má skoða ýmsar bækur Horn sem allar hafa orðið til á Íslandi auk þess að hlusta á úrval frásagna fólks af veðri. Á vef safnsins segir: „Á ár- unum 2005 til 2006, að undirlagi Roni Horn, tóku Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, bróðir hennar, fornleifafræðingurinn Uggi Ævarsson, og faðir þeirra, Ævar Kjart- ansson útvarpsmaður, viðtöl um veðrið við um það bil hundrað einstaklinga frá Stykk- ishólmi og nágrenni. Veðrið vitnar um þig, setur þessa vitnisburði fram sem einskonar sameiginlega sjálfsmynd lands þar sem veðr- ið leikur stórt hlutverk í daglegu lífi fólks.“ VILTU SJÁ VATN ÚR NOKKRUM HELSTU JÖKLUM ÍSLANDS Í EINU OG SAMA HERBERGINU? MUNDU ÞÁ, Í NÆSTU FERÐ Á SNÆFELLSNES, AÐ KOMA VIÐ Í VATNASAFNI RONI HORN Í STYKKISHÓLMI. VARLA VERÐUR NOKKUR MAÐUR SVIKINN AF HEIMSÓKN Í ÞAÐ LISTRÆNA SAFN. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson STYKKISHÓLMUR Hver er hvað? Má það vera að ég faðmi hér að mér Eyjafjallajökul? 12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Skrifstofa Sýslumannsins á Seyðis- firði er í þessu glæsilega húsi við Bjólfsgötu 7. Sennilega er leitun á opinberum kontór í jafn fallegum umbúðum. „Það er mjög gott að vinna í svona fallegu húsi og frábært að stjórnvöld skyldu láta gera það upp á sínum tíma,“ segir Jón Hall- dór Guðmundsson, skristofustjóri hjá embættinu. Stefán Th. Jónsson kaupmaður byggði húsið 1907. „Þetta hús varð tvímælalaust höfuðdjásnið í versl- unar- og útgerðarstórveldi þessa vel þokkaða athafnamanns,“ segir á upplýsingaskilti í húsinu. Ýmiskonar starfsemi hefur verið þarna í gegnum tíðina; auk verslana, fiskverkun, prentsmiðja, tann- læknastofa, Íslandsbanki var þar til húsa fyrir miðja síðustu öld, en ríkið eignaðist húsið árið 1990. Sýslu- mannsembættið hafði um tíma verið á neðri hæðinni en hefur nú allt hús- ið til umráða. Fyrir margt löngu var húsið klætt utan með bárujárni en þegar það var gert upp var það fært nær uppruna- legu horfi. Arkitektar við breyting- arnar voru Þóra Guðmundsdóttir og Björn Kristleifsson og óhætt að segja að sérlega vel hafi tekist til. SEYÐISFJÖRÐUR Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Höfuðdjásn Stefáns Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsókn- um um styrki vegna verkefna sem geta eflt nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs við Eyjafjörð. Sækja má um til 22. okt., úthlutað verður í nóvember. Viltu skapa eða þróa? Menningarráð Suðurlands hefur veitt Eldeimum 2,5 millj- ónir í styrki. „Safnabyggingin er byggð yfir hús, sem verið hefur undir ösku frá árinu 1973. Safnið segir og sýnir ein- staka jarðfræðisögu Vestmannaeyja,“ segir ráðið. Eldheimar fá styrk Since 1921 Lífræn og nærandi morgunfrú (calendulajurtin) veitir húð barnsins þíns þá vörn og umhyggju sem hún þarfnast. Fullkomin leið til að stuðla að heilbrigðri húð, allt frá fyrsta degi - í samhljómi við mann og náttúru www.weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek, barnaverslanir og heilsuverslanir um allt land Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaBabyIceland Mamma veit best!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.