Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Qupperneq 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Qupperneq 39
Flestir hafa séð þá Neil Armstrong og Buzz Aldrin stíga, fyrstir manna, fæti á tunglið. Myndböndin eru óskýr enda var árið 1969 þegar þeir félagar lentu. En upprunualegu myndböndin, þau sem fóru ekki um gervihnött sem varð til þess að gæðin minnkuðu, voru mjög skýr. Þau eru hinsvegar týnd og tröllum gefin og því þarf enn í dag að notast við óskýru myndirnar. NASA tók upp lendinguna til von- ar og vara ef sjónvarpsútsendingin myndi klikka. Þannig töpuðust engin gæði en árið 1969 þurfti að þjappa sjónvarpsmerkinu frá flauginni sam- an í lítið sjónvarpsmerki og við það töpuðust mikil gæði. Ef þetta hefði ekki verið gert hefði ekki verið hægt að sýna beint frá lendingunni. Í kringum 1990 fóru nokkrir áhugaljósmyndarar að spyrjast fyrir um þessar spólur og kom í ljós að þær var hvergi að finna. Fór af stað mikil leit en hún hefur ekki enn skil- að árangri. Upprunalegu mynd- böndin af fyrstu tungllendingunni eru því týnd og hefur þetta verið vatn á myllu þeirra sem trúa ekki að Bandaríkjamenn hafi sent mannað geimfar til tunglsins. TÖFF TÆKNISTAÐREYND Týndu sönnunargögnin Hér til vinstri má sjá hvernig er búið að vinna gamla myndbandið sem sent var út í sjónvörpum. Það hefði ekki þurft ef upprunalegu spólurnar væru til. 12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 * Tækniþekking er nauðsynleg nú á dögum.Við viljum að ungar stelpur hafi skilning oggetu til að smíðað sitt eigið app. Peta Clarke, Forsvarskona samtakanna Black Girls Code Fyrir rúmum 20 árum, eða árið 1995, kom Radd- skipuleggjarinn á markað hér á landi. Slagorð skipuleggjarans var: „Ef þú getur talað getur þú skipulagt.“ Taltölvan átti að hjálpa nútímafólki og öllum þeim sem höfðu knappan tíma til að gæta þess að gleyma ekki fundum, stefnu- mótum eða símanúmerum. Notand- inn þurfti að lesa minnispunkta, símanúmer, hugmyndir eða verk- efni dagsins inn á segulbandið og tækið kallaði svo punktana fram með því að notandinn ýtti á við- komandi hnapp. Fjórir hnappar voru á því fyrir hvert verkefni. Raddskipuleggjarinn virð- ist ekki hafa slegið í gegn hjá almenningi eða við- skiptafólki því hann er að- eins auglýstur í blöðunum þetta eina ár. GAMLA GRÆJAN Raddskipu- leggjarinn Karakterinn Louis Litt úr þáttaröðinni Suits notast við diktafón til að muna hvar hann á að vera, hvert hann þarf að fara og við hvern hann þarf að tala. Raddskipuleggjarinn virkaði mjög líkt og diktafónn nema hann hafði fleiri möppur sem hægt var að kalla upp með ein- faldri aðgerð. Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins flutti ræðu í vikunni á Alþingi þar sem hún hvatti fólk til að eiga út- varp með langbylgju. „Ég velti því fyrir mér, í tengslum við svona atburði (eins og eldgosið í Holuhrauni) sem vel gætu magnast, hvort fólk á þessum slóðum, og víðar reyndar, eigi útvarp með langbylgju. Ég tel því miður að svo sé ekki og fæstir geri sér grein fyrir hversu mikið ör- yggistæki útvarp með langbylgju er. FM-sendar Ríkisútvarpsins ganga fyrir rafmagni, en ef rafmagnið fer af þeim eiga dísilvaraaflstöðvar við sendana að fara í gang. En komi upp þær aðstæður að ekki sé hægt að koma olíu á sendana verða þeir að sjálf- sögðu óvirkir. Verði rafmagnslaust, t.d. vegna náttúruhamfara, er því líklegt að á stórum landssvæðum verði almenningur að treysta á langbylgjusendingar útvarps til að fylgjast með upplýsingagjöf og fréttum. Á heimasíðu RÚV segir, með leyfi forseta, að ,,óvit- laust sé að hafa á heimilinu lítið ferðaútvarp knúið raf- hlöðu sem getur tekið á móti langbylgjumerki. Ég held að hér þurfi að kveða mun sterkar að orði og upplýsa al- menning mun betur en nú er gert. Ein aðalröksemdin fyrir tilveru RUV og þeim op- inberu útgjöldum sem því fylgja er öryggishlutverkið. Ég hef því verulegar áhyggjur af því að ef hér verða meiriháttar náttúruhamfarir geti fólk ekki reitt sig á Ríkisútvarpið, því langflest útvarpstæki sem fólk kaupir nú til dags taka aðeins á móti FM sendingum.“ ELÍN HIRST ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Elín Hirst spurði á Alþingi hvort heimili ættu lang- bylgjuútvörp enda væru þau öryggistæki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vantar útvörp með langbylgju Mophie Juice Pack Air Hleðsluhulstur fyrir iPhone 5 og 5s Létt hulstur sem ver símann þinn vel gegn höggum og orkuleysi. Verð12.990.- Kreafunk Bluetooth hátalarar. Dönsk hágæða framleiðsla. Nokkrir litir, Koma í fallegum viðarkössum, tilvalin tækifærisgjöf. Verð frá12.990.- Libratone ZIPP Léttur og einfaldur hátalari með innbyggðri rafhlöðu. AirPlay og PlayDirect tækni til að spila þráðlaust, jafnvel án WiFi nets. Verð84.990.- Tracks Air Þráðlaus hágæða heyrnartól, sem einnig er hægt að nota með snúru. 3 litir Verð 39.990.-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.