Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Síða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Síða 49
að Dagbjört hafði ekki verið með son sinn á brjósti. Gat það ekki þar sem hún hafði ný- lokið erfiðri krabbameinsmeðferð. Tyrklands- ferðin var farin til að halda upp á það en fjöl- skyldan var búsett í Danmörku. Að öllum líkindum var þetta því eina nóttin sem Daníel nærðist á brjóstamjólk. Kardiçali-hjónin féllu strax kylliflöt fyrir Daníel. „Það er varla hægt að hugsa sér fal- legra og betra barn. Hann grét aldrei meðan hann var í okkar umsjá,“ rifjar Iclal upp. „Við byrjuðum á því að leika okkur saman og ég spilaði fyrir hann Hnotubrjótinn eftir Tsjaj- kovskíj. Það líkaði honum vel. Þetta var mun auðveldara en mig óraði fyrir; engin vanda- mál.“ „Annað en börnin okkar!“ skýtur Esat sposkur inn í. Öðrum syninum, Emin, sem situr til borðs með okkur, er skemmt. Slysið vakti gríðarlega athygli í Tyrklandi og fjölmiðlar voru fljótir að gefa Daníel nafn- ið „kraftaverkabarnið“. „Skyldi engan undra,“ segir Iclal. „Börn eru það mikilvægasta í lífi okkar allra. Eins hörmulegt og slysið var og sorg aðstandenda Jóhanns og Dagbjartar mikil þá var Daníel ljósið í myrkrinu.“ Fjölmiðlar tjölduðu á tröppunum Símtölum rigndi yfir hjónin. Allir vildu vita hvernig „kraftaverkabarnið“ hefði það, sumar konur vildu gefa Daníel brjóst og aðrar ætt- leiða hann. „Tyrkneska þjóðin var greinilega djúpt snortin,“ segir Esat. Raunar fannst þeim áhugi fjölmiðla helst til mikill, blaðamenn og ljósmyndarar tjölduðu nánast á tröppunum hjá þeim í Izmir fyrstu dagana. „Þetta var frekar óþægilegt, sér- staklega þegar við fórum út úr húsi með drenginn. Nánast eins og paparazzi-stemning sem við áttum alls ekki að venjast.“ Enn eimir eftir af þessum áhuga. „Það kom kona til okkar á tónleikum í vor og spurði hvort við værum ekki örugglega hjón- in sem önnuðumst um Daníel litla. Hún vildi endilega vita hvernig hann hefði það,“ segir Iclal. Innan fárra daga komu aðstandendur Jó- hanns og Dagbjartar út að sækja Daníel litla. Traust vinátta tókst strax með þeim og Kardiçali-hjónunum. „Við erum afskaplega þakklát fyrir að Daníel skyldi lenda hjá svona góðu fólki,“ segir Halldóra Húnbogadóttir, amma Daníels. Eiginmaður hennar, Árni Ingi Stefánsson, tekur í sama streng: „Við fórum fjögur út, ég, Stefán Friðfinnsson, Gunnar Tryggvason, bróðir Dagbjartar, og Úlfhildur Áslaug Leifs- dóttir, eiginkona hans, sem tóku Daníel að sér. Við vorum hjá Kardiçali-hjónunum í hér um bil viku og þau reyndust okkur í alla staði afskaplega vel við þessar erfiðu aðstæður.“ Ert þú ekki afi Daníels litla? Hann bendir á að starf ræðismanns sé launa- laust og aðdáunarvert sé hversu mikið Kardi- çali-hjónin hafi lagt á sig fyrir Daníel. „Við margbuðum þeim að taka þátt í kostnaði meðan við vorum úti en þau máttu ekki heyra á það minnst. Þess vegna ákváðum við að bjóða þeim hingað í heimsókn,“ segir Árni. Til gamans má geta að Kardiçali-hjónin reka barnaskóla í Izmir og hafa nefnt eina stofuna í höfuðið á Jóhanni og Dagbjörtu. Árni og Halldóra segja hlýjuna raunar hafa náð langt út fyrir heimili Kardiçali-hjónanna. Fljótlega eftir að þau komu út var Árni að kaupa dagblöð, sem vitaskuld voru uppfull af fréttum um Daníel og slysið, þegar bláókunn- ug kona gaf sig á tal við hann. „Ert þú ekki afi Daníels litla?“ spurði hún. Þegar Árni svaraði játandi faðmaði hún hann innilega að sér. „Okkar reynsla af Tyrkjum er sú að þeir séu afskaplega hlýtt og gott fólk,“ segir Árni. Kardiçali-hjónin eru í góðu sambandi við fjölskyldu Daníels og hafa nú í tvígang komið til Íslands að hitta hana. Þá hafa aðstand- endur Daníels farið utan til að hitta þau, síð- ast voru Árni og Halldóra í Tyrklandi í sum- ar ásamt Gunnari, Úlfhildi og börnum þeirra. Sá stutti elst upp í góðu yfirlæti hjá Gunn- ari og Úlfhildi, ásamt þremur börnum þeirra. Kardiçali-hjónin segja frábært að sjá hann vaxa og dafna í þeim fríða systkinahópi og „kraftaverkabarnið“ sé augljóslega í mjög góðum höndum. „Daníel hefur ekkert breyst, bara stækkað,“ segir Iclal hlæjandi. Þetta er fjölskylda mín! Gunnar Tryggvason og fjölskylda tengjast Tyrklandi traustum böndum og hann er nú heiðurskonsúll Tyrklands á Íslandi. „Mér finnst þetta fólk vera fjölskylda mín í dag. Ég lít á Árna sem bróður minn,“ segir Esat og klappar vini sínum á öxlina. „Ekki óraði mig fyrir því að þetta ræðismannsstúss mitt myndi leiða mig í þessa átt. En svo lengi lærir sem lifir. Úr því þetta hörmulega slys þurfti að eiga sér stað er alla vega jákvætt að það hafi stuðlað að þessari ómetanlegu vin- áttu. Þegar Guð lokar einum dyrum opnar hann gjarnan aðrar.“ Daníel Ernir Jóhannsson, annar frá vinstri, ásamt uppeldissystkinum sín- um, Dýrleifu Láru, Vésteini og Leifi Steini Gunnarsbörnum og velgjörð- arfólki sínu, Kardiçali-hjónunum. *Það ervarlahægt að hugsa sér fallegra og betra barn. Hann grét aldrei meðan hann var í okkar umsjá. Foreldrar Daníels, Jóhann Árnason og Dagbjört Þóra Tryggvadóttir, létust bæði í bílslysinu í Tyrklandi. 12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.