Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 55

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 55
miklu á síðustu fimm árum. Nú eru alltaf ferðamenn hér, meira að segja á veturna. Fyrst þegar ég kom hér að vetrarlagi voru engir á ferðinni. Í fyrra fannst mér það sláandi hversu margir ferðamenn voru hér í febr- úar. Annað sem hefur breyst er að maður sér sífellt betur hversu gráð- ugir Íslendingar eru. Nú kemur maður að Mývatni og það á að rukka mann fyrir að taka ljós- myndir. Sama má segja um Kerið, það er kominn söluskúr og þarf að greiða fyrir aðgang. Þetta er nýtt og mér finnst þetta afskaplega ugg- vænleg þróun. Ég get kosið að fljúga til Parísar í staðinn fyrir að koma hingað og þar rukkar mig enginn fyrir að taka mynd af Eiffel- turninum. Ferðamenn eru vitaskuld góðir fyrir Ísland, þjóðin þurfti á þeim að halda til að koma sér út úr krepp- unni. En þið getið valið, þið þurfið ekki að eyðileggja allt bara til þess að fá ferðamenn.“ – Finnst þér jafn áhugavert að vera hér á veturna og sumrin? „Mér finnst hvort tveggja frá- bært. Fyrir mér er Ísland svart land á sumrin og hvítt á veturna, fyrir svarthvítan ljósmyndara gæti það ekki verið betra!“ Alltaf á sömu stöðunum Í nýju bókinni fjallar fyrri hlutinn um eftirlætissvæði ljósmyndarans, sem hann kallar „zen-garðinn“ sinn. Í seinni hlutanum má sjá ummerki manna. „Ég hef lengi sagt að Ísland sé zen-garðurinn minn en svo fór ég að sjá að á sumum myndanna var líka garður manna og því varð ég að skipta bókinni í tvo hluta. Mér þótt áhugavert að kalla mannamyndinar sögur – en þeir sem skoða þurfa að lesa sínar sögur út úr þeim. En zen-garðurinn er það sem hann er.“ – Hann er svartur og ríkur að stemningu, fullur af andstæðum … „Já … Ég fer alltaf á sömu stað- ina að mynda. Líklega gæti ég gert heila bók með myndum sem ég hef tekið við Dyrhólaey og Vík. Ég verð að segja að það hefur valdið mér vonbrigðum að íslenskir bókaútgefendur hafa ekki verið reiðubúnir til að vinna með mér.“ Bækur Paoluzzos hafa verið gefnar út af forlögum í Mið-Evrópu. Þegar hann er spurður að því hvaða bæk- ur séu á hönnunarstigi hjá honum segist hann gjarnan vilja setja sam- an eitt yfirlitsverk með bestu mynd- unum frá ferlinum. „Ég hef svo far- ið í nokkrar ferðir til Írlands, hef gert skissu að bók og fer nú í að leita að útgefanda. Það er auðveld- ara að selja litmyndabækur en ég myndaði í svarthvítu á Írlandi. Svo ferðaðist ég um Bandaríkin í tvo mánuði í fyrravetur og tók þá bæði í lit og svarthvítu og verð að viðurkenna að hvort tveggja er áhugavert.“ Dyrhólaey, 1997. Ljósmyndir/Marco Paoluzzo Reykjavík, 2013. 12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.