Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Side 57
12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Fjölskyldusýningunni fjör- ugu, „Trúðleik“, lýkur um helgina. Hægt er að sjá síð- ustu sýninguna um trúðavin- ina Skúla og Spæla á sunnudaginn kl. 14. Sýningin hæfir eldri áhorfendum og börnum niður í 4-5 ára. 2 Börnum, foreldrum, ömm- um, öfum og öðrum for- ráðamönnum er boðið að koma í Þjóðminjasafnið á sunnudag kl. 14. Þar verður hægt að fræðast um þjóðsagnaverur, atburði og fyrirbæri íslenskra þjóðsagna. Björk Bjarnadóttir mun segja sögur og svara spurningum um huldufólk og álfa. 4 Kvikmyndin „Gone girl“, í leikstjórn hins vinsæla Davids Lynch, fjallar um dularfullt mannshvarf. Stórskotalið leikara fer með hlutverk í myndinni en þar má nefna Ben Affleck, Rosa- mund Pike, Neil Patrick Harris og fleiri. 5 Sýningin „Umbreyting“, eftir Bernd Ogrodnik brúðulistamann, verður sýnd á sunnudag og næstu tvo sunnudaga í Þjóðleikhúsinu. Sýn- ingin sem Bernd býður upp á er ferðaútgáfa og fjölskylduvænni útgáfa sýningarinnar sem hefur verið sýnd víða um heiminn. Eingöngu verður um þessa þrjá sýningardaga að ræða. 3 Kristín Rúnarsdóttir verð- ur með listamannaspjall á sunnudag kl. 15 og leiðir gesti í gegnum sýningu sína, „Leikfléttur“, sem sýnd verður í sýn- ingasal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. MÆLT MEÐ 1 Það á ef til vill við um ungt barnlaust fólk en alls ekki alla. Það sem við þurfum eru fjöl- breyttar húsagerðir. Helmingur íbúða í Reykjavík í dag er í hefðbundnum fjölbýlis- húsum. Við þurfum að varast að byggja ein- göngu fjölbýlishús á næstu árum,“ segir Bjarni. Lýðræði og raddir borgarbúa „Lýðræðinu er þannig háttað að kosningar eru á fjögurra ára fresti. Menn gera áætlanir fram í tímann en að fjórum árum liðnum kem- ur iðulega nýr meirihluti sem vill vinna hlut- ina eftir sínu höfði og fylgir ekki eftir áætl- unum fyrri meirihluta. Þessu þyrfti að breyta. Menn þurfa að fylgja eftir áætlunum og meta með reglubundnum hætti hvernig miðar að settu marki. Tilfærsla flugvallarins stendur borginni ekki fyrir þrifum á allra næstu árum, en líklega mun hann að lokum vera færður. Innanlandsflug er mikilvægt fyrir höfuðborg- ina okkar og flestir flugfarþegar eiga erindi í eða nærri miðborginni. Erfitt hefur reynst að finna annan stað í stað Vatnsmýrarinnar. Töluverð uppbygging er áætluð umhverfis flugvöllinn á næstu árum sem verður að telj- ast jákvætt. Flugvallarmálið er mjög flókið mál sem finna þarf lausn á áður en langt um líður. Nú er unnið að endurskoðun svæð- isskipulags höfuðborgarsvæðisins. Ég hef miklar væntingar til þeirrar vinnu,“ segir hann. „Það hefði verið skynsamlegt þegar efna- hagslægðin skall yfir okkur árið 2008 að nota tímann til að vinna að rannsóknum og stefnu- mótun um æskilega framtíðarbyggð, skoða hvað við höfum gert vel og hvað illa. Það er mikilvægt að kanna vilja og reynslu fólks og fyrirtækja með reglubundnum hætti. Það þarf að gera viðhorfskannanir reglulega til að styrkja stefnumótun og gera borgina betri. Við viljum ekki ganga þvert á vilja borgarbúa. Borgir eru alltaf að breytast. Reykjavík á eftir að breytast mjög mikið á næstu árum og von- andi verður það í samræmi við vandaða stefnu- mótun,“ segir Bjarni að lokum. Bjarni Reynarsson segir það einkar mikilvægt að kanna vilja og reynslu fólks og fyrirtækja með reglubundnum hætti hvað framtíðarbyggð varðar. Morgunblaðið/Eggert Stiklað er á þróun borga á Vesturlöndum og skemmtilegt myndefni er til stuðnings. Hér má sjá Kaupmannahöfn árið 1910 og rústir Rómaborgar. Í þriðja og stærsta hluta bókarinnar má kynna sér skipulagssögu Reykjavíkur. Hér má sjó þróun hennar og mynd frá 1924 af prúðbúnu fólki við Hlemm.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.