Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 68

Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 68
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4 Sigvaldi Jóhannesson, matreiðslu-maður í mötuneyti Tækniskólans í Reykjavík, er einn fjölmargra veiði- manna hérlendis sem eldar jólamatinn úr því sem hann hefur veitt eða skotið. Sjálf- ur ólst hann upp með veiðistöng í hendi en hóf þó ekki skotveiðar fyrr en fyrir sjö árum. Í ár verður boðið upp á rjúpur, gæs og önd yfir jólin og hlakka fjölskyldumeð- limir mikið til. „Veiðar eru stór hluti af lífi mínu. Ég er mikið í laxveiði á sumrin auk þess sem skotveiðar hafa bæst við síðustu árin. Segja má að rjúpan sé fastur réttur á jólaborði fjölskyldunnar auk þess sem önd og gæs skipa oft stóran sess þar. Auðvitað elda ég líka þennan klassíska hamborgarhrygg enda finnst konunni og börnunum hann alltaf jafn góður.“ GÆSAPOTTRÉTTUR Í UPPÁHALDI Uppáhaldsréttur Sigvalda er þó gæsa- pottréttur sem hann segir sérstaklega ljúffengan. „Þetta er einfaldlega geð- veikur pottréttur. Ég elda hann oft um jólin og bara alltaf þegar tækifæri gefst til. Hann er í sjálfu sér einfaldur í fram- kvæmd þótt það taki smá tíma að elda hann. Bláberjasultan gefur dásamlegt bragð ásamt villisveppaostinum og grænmetinu. Með pottréttinum ber ég yfirleitt fram heimagert rauðkál og rótar- grænmeti.“ VILLIBRÁÐIN ER HOLL OG GÓÐ Þegar Sigvaldi er ekki að elda ofan í svanga framhaldsskólakrakka sér hann um matreiðslu í ýmsar veislur, bæði stórar og smáar, undir nafninu Matur ehf. „Villibráðarveislur eru mjög vinsælar á þessum árstíma og þar vinn ég allt frá grunni, reyki til dæmis sjálfur svartfuglinn sem ég veiði, skýt og úrbeina hreindýrið, gref gæs- ina og laxinn og laga gæsalifrarkæfuna sjálfur frá grunni. Þar elda ég alltaf úr- val rétta úr íslenskri villibráð og vekja réttirnir alltaf jafn mikla lukku. Íslenska villibráðin er sérstaklega góð, holl og fitulítil og býður upp á óendan- lega möguleika í matreiðslu.“ UPPÁHALDS GÆSAPOTTRÉTTURINN 1 laukur 2 gulrætur Ferskt rósmarín, nokkrar greinar Ferskt garðablóðberg, nokkrar greinar 2 gæsalæri 2 gæsabringur 1 villisveppaostur 2 matskeið bláberjasulta Smá púrtvín Kjúklingakraftur, 11/2 teningur Smælki (litlar kartöflur) 1 dl rjómi Maizena-mjöl Grænmeti og gæs er brúnað á pönnu. Salti og pipar er stráð yfir allt saman. Vatni bætt út í og látið flæða rétt yfir hrá- efnið og soðið í tvær klukkustundir. Allt hráefnið sigtað í sér pott og gæsin skorin í bita út í. Villisveppa- ostur skorinn í litla bita og bætt út í ásamt bláberjasultu, kjúk- lingakrafti og smá púrtvíni. Rjóma bætt út í og þykkt með maizenamjöli. Smælkinu bætt út í sósuna. Borið fram með rauðkáli og rótar- grænmeti. ■ starri@365.is FITULÍTIL „Íslenska villibráðin er sérstaklega góð, holl og fitulítil og býður upp á óend- anlega möguleika í matreiðslu." JÓLAVEISLA ÚR ÍSLENSKRI NÁTTÚRU JÓL VEIÐIMANNSINS Fjölmargir veiðimenn nýta jólahátíðina til að elda gómsæta rétti úr veiði sumarsins og haustsins. Villtur lax, rjúpa, gæs og önd eru meðal þeirra hráefna sem sjást á borðum veiðimanna. Sigvaldi ásamt tengdaföður sínum og hundinum Boss eftir góða veiði á grágæs og stokkönd. Einiberjagrafið dádýr á veislubakka. Sigvaldi Jóhannesson, matreiðslumaður og veiðimaður, ásamt hundinum Boss eftir góðan veiðidag. Úrval af villibráð; reyktur svartfugl, gæsalifrarkæfa, grafin gæs og krónhjörtur. Íslenskt hreindýr sem Sigvaldi skaut, borið fram með rauðkáli, waldorf-salati, rótargrænmeti og önd. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Gæsalifrarkæfan hans Sigvalda er ljúffeng. Grafin gæs sem Sigvaldi hefur veitt og grafið sjálfur. IÐA ZIMSEN Vesturgata 2a 101 Reykjavík sími 511-5004 Hinsegin bókavaka á laugardaginn kl. 18 í IÐU Zimsen Vesturgötu 2a Sjón og Jónína Leósdóttir lesa úr og ræða nýútkomnar bækur sínar auk þess sem lesið verður úr fleiri verkum. Kynnir kvöldsins er Þorvaldur Kristinsson. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir! Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is FÁTÆKT Styrktu verkefni Barnaheilla og sendu SMS með textanum „jol“ í síma 903 1510 - 903 1520 - 903 1550 fyrir 1.000, 2.000 eða 5.000 krónur. www.jolapeysan.is 12 ára drengur á höfuðborgarsvæðinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.