Skessuhorn - 18.12.2013, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Nefndin þakkar
fyrir sig
VESTURLAND: „Hjartans
þakkir til fyrirtækja, félaga og
annarra velunnara sem lögðu
til styrki til Mæðrastyrks-
nefndar Vesturlands fyrir þessi
jól. Án ykkar stuðnings hefði
þetta ekki verið mögulegt.
Óskum ykkur og skjólstæð-
ingum okkar gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. Kær
kveðja frá stjórn Mæðrastyrk-
nefndar Vesturlands,“ segir í
tilkynningu.
Verkefnastjóri í
mannréttinda-
málum
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs Akraness 12. desember
sl. var samþykkt að ráða Önnu
Láru Steindal núverandi fram-
kvæmdastjóra Rauða krossins
á Akranesi sem verkefnisstjóra
mannréttindamála hjá Akranes-
kaupstað. Um er að ræða ráðn-
ingu til níu mánaða. Anna Lára
mun fylgja eftir verkefnum sem
Rauði krossinn á Akranesi hef-
ur sinnt fyrir Akraneskaup-
stað en Rauði krossinn hyggst
draga verulega úr starfseminni
á næsta ári og leggja áherslu á
kjarnastarfsemi Rauða kross-
ins, s.s. sjálfboðastörf. Í tilkynn-
ingu frá Akraneskaupstað segir
að bærinn og Rauði krossinn á
Akranesi hafi átt í farsælu sam-
starfi um árabil. Hafi RKÍ sinnt
ýmsum samfélagsverkefnum
fyrir kaupstaðinn, meðal ann-
ars þjónustu við innflytjendur.
Anna Lára Steindal hefur verið
framkvæmdastjóri Rauða kross-
ins á Akranesi síðastliðin 7 ár.
–þá
Félag eldri borg-
arar flytja í Búbót
SNÆFELLSBÆR: Félag
eldri borgara í Snæfellsbæ tók
í notkun nýtt húsnæði á dög-
unum og hefur það fengið
nafnið Búbót. Húsnæðið fékk
félagið afhent í vor og síðan
hefur verið unnið að stand-
setningu þess. Í Búbót, sem er
á Snoppuvegi í Ólafsvík, mun
starfsemi félagsins verða og
er ætlunin að þar verði opið á
þriðjudögum og fimmtudög-
um klukkan 13-16. Þá ætla
félagsmenn að koma saman
og vinna að áhugamálum sín-
um. Á opnunardeginum komu
margir gestir til að skoða hús-
næðið og þiggja veitingar, auk
þess þeir skoðuðu margt fall-
egra muna sem leynast í hill-
unum. Það er því aldrei að vita
hvað hægt er að fá í Búbót ef
kíkt er í heimsókn til þessa
hressa og glaða félagsskapar
sem greinilega er margt til
lista lagt. –þa
Kirkjuhvoll fær
nýtt hlutverk
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs Akraneskaupstaðar 11.
desember sl. var samþykkt að
fela bæjarstjóra að ganga til
samninga við Skagaferðir ehf.
um leigu á hinu sögufræga
húsi, Kirkjuhvoli. Skagaferðir
ehf. er í eigu þeirra Elinbergs
Sveinssonar, Hafdísar Bergs-
dóttur og Hildar Björnsdótt-
ur. Fyrirtækið hyggst reka
gistiaðstöðu í Kirkjuhvoli og
kaffihús auk þess að vera með
menningartengda viðburði í
húsinu. –mm
Hafna lóða-
beiðni um sjálfs-
afgreiðslustöð
AKRANES: Á fundi bæj-
arráðs Akraness á dögun-
um var tekið fyrir erindi Atl-
antsolíu dags. 2. desember sl.
þar sem óskað er eftir lóð við
Kalmansbraut fyrir sjálfsaf-
greiðslustöð. Bæjarráð hafn-
aði á fundinum beiðni Atl-
antsolíu um umrædda lóð en
fól framkvæmdastjóra um-
hverfis- og framkvæmdasviðs
að finna hentuga lóð í sam-
ræmi við skipulag, fyrir starf-
semi af þessu tagi. Atlantsolía
hefur sem kunnugt er ítrek-
að sótt um lóð á Akranesi, en
ekki hefur ennþá fundist lóð
fyrir fyrirtækið. –þá
Síminn
leitar eftir
endursöluaðila
GRUNDARFJ: Síminn leit-
ar nú að endursöluaðila í
Grundarfirði þar sem Hrann-
arbúðinni hefur verið lokað
eftir 45 ára verslunarrekst-
ur. Verslunina ráku hjónin
Gunnar Kristjánsson og Jó-
hanna H. Halldórsdóttir og
höfðu gert um áratugi. Sig-
urður Svansson, viðskipta-
stjóri endursölusamstarfs hjá
Símanum, segir unnið að því
að finna nýjan endursölu-
aðila Símans í bænum. „Þetta
er stór staður og miðsvæðis á
Snæfellsnesi og því finnst okk-
ur mikilvægt að halda þjón-
ustunni í Grundarfirði,“ segir
Sigurður. Þar til samið hefur
verið við nýjan þjónustuaðila
bendir hann á þjónustu Sím-
ans bæði í Ólafsvík og Stykk-
ishólmi, hjá VÍS í Ólafsvík og
Bókaverzlun Breiðafjarðar í
Stykkishólmi. Samhliða því
að auglýsa eftir endursölu-
aðilum fyrir Síminn vill fyr-
irtækið þakka þeim Jóhönnu
og Gunnari fyrir gott og far-
sælt samstarf í gegnum árin.
–mm
Fimmtudaginn 12. desember kom
stjórn Menningarsjóðsins Fegurri
byggðir saman til fundar á Hótel
Hellissandi. Sjóður þessi varð til
þegar Landsbankinn yfirtók eign-
ir og starfsemi Sparisjóðs Hellis-
sands. Þá var varasjóði sparisjóðs-
ins ráðstafað til stofnunar sjóðs-
ins. Markmið menningarsjóðsins
er að veita styrki til framfara- og
menningarmála á því svæði sem
áður var Neshreppur utan Ennis.
Fyrsta verkefni hans var að kosta
og koma upp listaverkinu Skip-
inu eftir Jón Gunnar Árnason við
Klettsbúð á Hellissandi vestan við
bæjarskrifstofuhús Snæfellsbæj-
ar. Til þess verkefnis fór megin-
hluti þeirra peninga sem sjóðurinn
réði yfir. Stjórn sjóðsins hefur val-
ið þá leið að veita viðurkenningu
fyrir mikilsverð störf unnin í þágu
samfélagsins. Slíkar viðurkenning-
ar hafa verið veittar tvö undanfar-
in ár. Fyrrnefndur fundur var svo
haldinn til að veita viðurkenning-
ar í þriðja skiptið. Auk þeirra sem
heiðra skildi voru boðnir til fund-
arins fyrri viðurkenningarhafar.
Boðið var upp á góðar veitingar og
þeirra notið og jafnframt spjallað
um stöðu Menningarsjóðsins Feg-
urri byggðir, hvernig mætti efla
sjóðinn og styrkja. Minningarkort
sjóðsins eru til afgreiðslu í Lands-
bankanum í Ólafsvík.
Að loknu góðu spjalli afhenti
Þórhalla Baldursdóttir formaður
stjórnar Menningarsjóðsins Feg-
urri byggðir, þeim Kay Wiggs og
Ómari Lúðvíkssyni viðukenning-
arskjal: Kay fyrir áratuga starf við
tónlistarkennslu og kórstjórn og
Ómari fyrir stuðning við þá starf-
semi með þökk fyrir óeigingjarnt
starf í þágu samfélagsins. Þá af-
henti Þórhalla einnig Reyni Ingi-
bjartssyni viðurkenningarskjal fyr-
ir áhuga hans á góðri kynningu og
gerð og útgáfu landa- og göngu-
korta af Snæfellsnesi.
-fréttatilkynning
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra hef-
ur að höfðu samráði við ríkisstjórn-
ina ákveðið að heimila hvalveið-
ar fram til 2018. Heimildin miðast
við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
hverju sinni næstu fimm árin. Sam-
kvæmt ráðgjöf Hafró fyrir næsta ár
verður leyfilegt að veiða 229 hrefn-
ur á landgrunnssvæði og 154 lang-
reyðar. Ákvörðunin er í samræmi
við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra
nýtingu lifandi auðlinda hafsins og
með hliðsjón af ályktun Alþingis
um hvalveiðar frá 10. mars 1999.
Samkvæmt niðurstöðum nýlegra
hvalatalninga þá er um 20.000 lang-
reyðar og að minnsta kosti 30.000
hrefnur að finna á stofnsvæðun-
um við Íslandsstrendur. Ráðgjöf
Hafró er minna en 1% af stofn-
stærð beggja tegunda og vel innan
þeirra marka sem almennt er mið-
að við að tryggi sjálfbærar veiðar
úr hvalastofnum. Báðar hvalateg-
undirnar sem Íslendingar nýta eru
á válista Alþjóðlegu náttúruvernd-
arsamtakanna (IUCN).
hlh
Hvalveiðar verða heimilar
næstu fimm árin
Stjórnarfólk í menningarsjóðnum og handhafar viðurkenninga úr honum. F.v.
Skúli Alexandersson, Þórhalla Baldursdóttir, Kay Wiggs, Ómar Lúðvíksson, Reynir
Ingibjartsson og Lydia Rafnsdóttir.
Hlutu viðurkenningar úr Menningar-
sjóðnum Fegurri byggðir