Skessuhorn - 18.12.2013, Qupperneq 80
80 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Maðurinn sem við tölum við rekur
litla fiskverkun í Hafnarfirði ásamt
bróður sínum. Þeir eru í harkinu.
Kaupa fisk á mörkuðum og verka
fyrir svipula markaði erlendis. Síð-
an er hann mikill áhugamaður um
knattspyrnu og heldur þá að sjálf-
sögðu með liði úr heimabænum.
Það er Víkingur Ólafsvík. Helgi
Kristjánsson fylgist með því af lífi
og sál. Hann skráir söguna í fortíð
og nútíð og birtir á vinsælli blogg-
síðu sem hann heldur úti á netinu.
Síðustu misserin hefur áhuginn á
sögunni og varðveislu hennar kom-
ið fram á fleiri sviðum. Helgi held-
ur utan um safn gamalla ljósmynda
frá Ólafsvík, Hellissandi og Rifi
sem hann sýnir á fésbókarsíðu sinni
á netinu. Fólk skrifar upplýsing-
ar við þær og sendir honum gaml-
ar myndir úr fórum sínum. Safnið
stækkar ört.
Ólsari sem fór suður
Við hittum Helga Kristjánsson á
heimili hans í Fossvogi í Reykjavík.
„Ég er fæddur og uppalinn í Ólafs-
vík. Fæddist í kjallaranum á Hjarð-
artúni 3 þar í bæ. Í Ólafsvík átti ég
heima fyrstu 32 árin í mínu lífi, fyr-
ir utan þrjá vetur sem ég vann í
Reykjavík í Búnaðarbankanum og
var í Versló. Ég flutti þaðan 1990
og þá til Reykjavíkur. Eftir skóla-
göngu fór ég á sjóinn eins og flestir
ungir menn í Ólafsvík á þeim tíma.
Svo var ég að vinna hjá bænum á
sumrin, spilaði knattspyrnu með
Víking Ólafsvík, vann við smíð-
ar, á bæjarskrifstofunni og Lands-
bankanum og fór á vertíðir. Þá var
ég á Garðari II SH 164, sem í dag
er Magnús SH frá Rifi sem brann
uppá Skaga í haust. Þar var ég fimm
vertíðir með Einari Kristjónssyni.
Síðan fór ég eina vertíð með Óttari
Guðlaugssyni á Auðbjörgu SH 197.
Eftir það fór ég suður.“ Helgi býr
í Reykjavík ásamt Oddnýju Björgu
Halldórsdóttur konu sinni. „Við
eigum eina dóttur saman sem heitir
Helga Björg og fermist í vor. Kon-
an mín átti fyrir dótturina Birgittu.
Hún á tvo fimm ára tvíburadrengi,
svo ég er orðinn afi.“
Á meðan Helgi bjó í Ólafsvík
var hann um 16 ára skeið leikmað-
ur með heimaliðinu í knattspyrnu.
Reyndar hélt þátttakan í knatt-
spyrnunni áfram eftir að hann kom
suður. „Ég spilaði 16 leiktímabil
með Víking Ólafsvík, frá 1975 til
1990. Þá um haustið lagði ég skóna
á hilluna og leið mín lá til höfuð-
borgarsvæðisins. Tveimur árum
eftir að ég kom suður réði ég mig
sem framkvæmdastjóra hjá knatt-
spyrnudeild Vals. Þar var ég í tæp
sex ár. Sá tími var mjög skemmti-
legur.“
Í sjávarútvegi
síðustu 15 ár
Helgi hóf störf í sjávarútvegi eftir
að hann lét af störfum sem fram-
kvæmdastjóri hjá Val. Það var
kannski rökrétt í ljósi þess að hann
var fæddur og uppalinn í sjávar-
plássinu Ólafsvík. „Jóhannes bróð-
ir minn er skipstjórnarmenntað-
ur. Hann hafði verið stýrimaður á
togara sem var seldur. Hann réði
sig á tvo togara til viðbótar en báð-
ir voru seldir jafnhraðan. Að lokum
stóð hann uppi og vissi ekki hvað
hann ætti af sér að gera. Þá stakk
einhver upp á því að það væri ráð
að hefja saltfisksverkun. Ég var þá
að vinna við bókhald hjá Glugga-
og hurðasmiðju SB í Hafnarfirði.
Ég sá strax að ef Jóhannes ætlaði að
fara að verka saltfisk þá yrði hann
að hafa mig með sér. Mín sérgrein
var pappírsvinnan en hann var ekk-
ert inni í slíku. Við störtuðum svo
saltfiskverkuninni í febrúar 1998 og
skírðum í höfuðið á móður okkar –
fiskverkunin Björg.“
Fyrirtækið hefur síðan siglt
gegnum stormi og stórsjói íslensks
efnahagslífs og lifað bæði kreppu
hér heima og miklar sviptingar á
erlendum mörkuðum. „Það er nú
búið að ganga á ýmsu gegnum tíð-
ina. Við erum þó enn til og enn
að verka saltfisk þó við höfum líka
fært okkur yfir í ferska fiskinn upp
á síðkastið. Í ferskfisksútflutning-
num höfum við verið í svokölluð-
um gljáfiski. Þá er fiskurinn haus-
aður og slægður og settur í frauð-
plastskassa og sendur með roði,
beinum og öllu saman beint í flug.
Þetta er þó lítill markaður sem við
höfum svona með hinu.“
Erfið staða á
saltfisksmörkuðum
Síðustu misserin hafa erlend-
ir markaðir fyrir íslenskan salt-
fisk verið mjög erfiðir. „Það má
segja að saltfisksmarkaðurinn hafi
gersamlega hrunið um áramót-
in 2011/2012. Ástandið á Spáni og
Íta líu sem eru mikilvægustu mark-
aðslöndin er þó eitthvað að bragg-
ast núna. Það hefur líka orðið um
20% neysluaukning í Portúgal en
verðin þar eru hins vegar lág. Þar
dæla Norðmenn sínum fiski inn.
Gæði norska fisksins eru ekki jafn
mikil og á þeim íslenska en Portú-
galarnir horfa á verðin. Það má
sennilega líka segja það hreint út að
við Íslendingar verðlögðum okkur
út af þeim markaði. Okkar vara var
of dýr. Það er mitt mat.“
Fiskverkunin Björg er ein af þeim
fiskvinnslum hér á landi sem spjar-
ar sig án þess að eiga aflaheimild-
ir eða stunda útgerð. „Fyrirtækið
Helgi Kristjánsson frá Ólafsvík:
Verkar og selur fisk, sinnir knattspyrnunni og safnar
og birtir sögulegar ljósmyndir úr heimabyggð
Helgi Kristjánsson við tölvuna og gamlar ljósmyndir heima í stofu þaðan sem hann birtir ótrúlegustu gersemar fyrir augum
fólks á netinu.
Ólafsvíkurþorp 1890-1900. Mynd í eigu Árna Jóns Þorgeirssonar. Höfnin í Ólafsvík áður en frekari hafnarframkvæmdir hófust um 1963.
Mynd: Viðar Ingi Pétursson.
Fjaran og Ólafsbrautin í kringum 1960. Mynd: Garðar Geir Sigurgeirsson. Kaupfélagið Dagsbrún sem seinna brann. Mynd: Magnús Arnar Einarsson.