Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2013, Side 86

Skessuhorn - 18.12.2013, Side 86
86 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013 Á haustdögum síðustu voru 35 ár liðin frá því Gunnar Örn Guð- mundsson dýralæknir og kona hans Elísabet Haraldsdóttir fluttu á Hvanneyri og hafa búið þar síðan. Bróðurpartinn af þeim tíma hef- ur hann starfað við dýralækning- ar í Borgarfirði og hefur því góða yfirsýn á samfélagið. Þegar Gunnar Örn er spurður hvort ræturnar séu orðnar það sterkar í Borgarfirðin- um að hann teljist Borgfirðingur, segist hann kíminn á svip vera meiri Borgfirðingur en margur annar. Hann fæddist og ólst upp í Vest- urbænum í Reykjavík, er glerharð- ur KR-ingur eins og forfeðurnir og var stimplaður kommakrakki á uppvaxtarárunum. Fimm ára gam- all var hann sendur í sveit vestur á Snæfellsnes og á níu sumrum þar fékk hann brennandi áhuga á land- búnaði. Gunnar Örn og kona hans Elísabet kynntust ýmsu skemmti- legu á námsárum sínum í Vín í Austurríki og þegar þau bjuggu í Bæjaralandi í hálft annað ár, en hafa líka átt viðburðarrík ár á Hvann- eyri. Gunnar Örn kynntist nýrri hlið bændastéttarinnar, ef svo má segja, eftir að hann kom til starfa í Borgarfirðinum. Það var því um ýmislegt að spjalla þegar blaðamað- ur Skessuhorns tók hús af Gunnari Erni á Hvanneyri á dögunum. Lyklabörn Gunnar Örn er borinn og barn- fæddur Vesturbæingur. Hann kom í heiminn í nóvembermánuði 1948. Guðmundur J. Guðmundsson, faðir Gunnars Arnar, var þekktur verkalýðsleiðtogi, gjarnan kallað- ur Guðmundur jaki. Móðir Gunn- ars Arnars, Elín Torfadóttir fóstra, er á lífi og mjög ern, 86 ára göm- ul. Hún var meðal fyrstu útskriftar- nema frá Fóstruskóla Íslands á sín- um tíma. „Við áttum alla tíð með- an ég var að alast upp heima við Ljósvallagötuna. Þarna í kring voru margar götur sem mynduðu ramma utan um leiksvæði okkar krakkanna í hverfinu. Í minningunni var þetta draumaveröld, endalausir leikir hjá krakkagerinu í hverfinu. Við vorum auðvitað bara lyklabörn, báðir for- eldrarnir útivinnandi. Við krakk- arnir vorum í fótbolta, brennibolta, stökkum, hlaupum og ýmsum leikj- um. Það voru svo sterk hverfis- félög hjá okkur krökkunum í Vest- urbænum að ég keppti ekki sem félagsmaður í KR fyrr en lands- prófsveturinn. Þá keppti ég í sundi og sundknattleik og síðar einnig í handbolta.“ Var kræfur í jakahlaupi Í samtalinu við Gunnar Örn verður faðir hans að nokkru umtalsefni til að byrja með. Gvendur Jaki, eins og hann var kallaður, varð þjóðþekkt- ur maður. Vinsæll af alþýðu og ekk- ert síður af andstæðum sínum í pólitík en samherjum. Blaðamað- ur spyr Gunnar Örn hvernig jaka- nafnið hafi komi til. „Þegar hann var stráklingur í Miðbæjarskólan- um var frystihús þar sem skemmti- staðurinn Glaumbær kom seinna, núverandi Listasafn Íslands. Þá var ísinn brotinn af Tjörninni til að nota við kælingu á fiskinum. Pabbi og félagar hans stunduðu jakahlaup á Tjörninni og þótti hann kræf- ur í því. Þannig kom víst jakanafn- ið til.“ Guðmundur J. var eins og áður segir verkalýðsleiðtogi og al- þingismaður fyrir Alþýðubandalag- ið. „Hann var óskaplega umdeildur maður á þeim tíma sem við systk- ininu vorum að alast upp,“ segir Gunnar Örn sem er elstur í systk- inahópnum. „Þetta bitnaði á okkur krökkunum. Afi og amma í föður- ætt bjuggu vestur á Ásvallagötu og sinnti amma mér heilmikið með- an ég var í barnaskóla. Á leið til hennar tók maður oft á sig krók til að verða ekki fyrir barðinu á eldri strákum og reyndar líka fullorðnu fólki, vegna skoðana pabba. Á þess- um tíma var tínt til allt það versta gagnvart kommunum eins og pabbi var stimplaður. En pabbi var nátt- úrlega ekkert þannig, hann var mikill alþýðumaður og umburð- arlyndur gagnvart skoðunum ann- arra. Sem dæmi voru öll dagblöð- in keypt heima. Hann sagði að við yrðum að vita hvað aðrir væru að segja í pólitíkinni. Hann var ekk- ert að innprenta skoðanir í okkur börnin og aldrei talaði hann illa um sína andstæðinga. Pabbi var mild- ur og góður maður, blíðlyndur og skemmtilegur bæði heima og að heiman.“ Gunnar Örn segir að það hafi í raun verið skrítið að heim- ilið hafi verið svona vinstri sinn- að, því báðir foreldrarnir hafi kom- ið frá hörðum sjálfstæðisheimilum. „Föðurafi minn var t.d. glerharð- ur sjálfstæðismaður og KR-ingur, Guðmundur Halldór Guðmunds- son sjómaður frá Hjallkárseyri við Arnarfjörð.“ Fimm ára í sveit í Helgafellssveitina Á þessum tíma voru börn send í sveit og Gunnar Örn var ekki nema fimm ára þegar hann var fyrst send- ur í sveitina, til föðurfrænda sinna sem bjuggu tvíbýli á Staðarbakka í Helgafellssveit. Þessir frændur á Snæfellsnesinu voru reyndar frá Heyholti í Borgafirði sem er bú- jörð rétt neðan Svignaskarðs. „Það var náttúrlega lítið hægt að nota mig meðan ég var svona ungur, helst að ná í kýrnar og reka þær í hagann. Smám saman fór ég svo að sinna ýmsum verkum. Lítið var um lífsþægindi á þessum tíma, ekkert rafmagn, mór tekinn og þurrkað- ur til eldsneytis og allt heyjað með hestum þar sem hægt var að koma hestavélum við. Engi voru slegin þegar þurfti og mikill tími fór í slátt með orfi og ljá. Endalaust verið að rifja og raka með hrífunni. Mér leiddist talsvert til að byrja með, ekki síst annað sumarið, rigninga- sumarið 1955. Það sumar rigndi endalaust og veðrið var oft afskap- lega vont. Mér var ekki hleypt út úr húsi dögum saman, sjálfsagt var óttinn sá að ég gæti fokið í sjóinn. Það var mikið passað upp á að mað- ur færi sér ekki á voða. Húsfreyjan Rósa innprentaði í mig til dæmis að passa mig á mógröfunum, að detta ekki í þær. Þar væru líka skordýr sem hétu brúnklukkur sem væru stórhættulegar. Þær ættu það til að stökkva upp í krakka.“ Í fiski og á Eyrinni Gunnar Örn segir að eftir að farið var að treysta honum til fleiri verka hafi hann orðið áhugasamur og fundist sveitadvölin ómissandi. Þau urðu níu sumrin í Helgafellssveit- inni. „Mér lá orðið svo á að kom- ast í sveitina í sauðburðinn á vorin að ég fékk að taka prófin fyrr. Fór þá upp á skrifstofuna til skólastjór- ans og var prófaður þar. Svo kom ég seint í skólann á haustin. Fékk að vera í sveitinni þar til fyrri göng- ur og réttir voru afstaðnar.“ Aðspurður hvað hafi svo tek- ið við eftir að sveitadvölinni lauk, í kringum fermingaraldurinn, seg- ir hann að það hafi verið fiskvinna í fyrstu. „Pabbi hafði áður verið verkamaður hjá Bæjarútgerðinni og ég fékk líka vinnu þar. Svo fór ég á Eyrina eins og það var kallað. Þar voru landanir og uppskipanir úr skipunum. Ég vann hjá Togara- útgerðinni við landanir úr togurum og líka við uppskipanir hjá Hafskip- um. Þá var verið að skipa upp ýms- um varningi, stundum timbri og í önnur skipti sekkjavöru. Á Eyrinni var það þannig oft að menn mættu á morgnana og svo valdi verkstjór- inn hverja hann vildi fá í vinnu. Seinna sumarið mitt á Eyrinni vann ég hjá Eimskip. Þá komst ég í gengi eins og það var kallað. Við vor- um sex saman. Þessi vinna á Eyr- inni var náttúrlega bölvaður þræl- dómur, mikil líkamlega vinna. Allt unnið á höndum og borið í stroff- ur, gámarnir voru þá ekki komnir. En maður varð sterkur og stæltur af þessari vinnu.“ Námsleiði Þegar Gunnar Örn er spurður út í námsferilinn, barnaskólaárin í Melaskóla og gagnfræðaskólaárin í Hagaskólanum, segist hann hafa á stundum verið mjög áhugalítill fyr- ir náminu. „Gagnfræðaskólanám- inu var hægt að ljúka með gagn- fræðaprófi eftir fjóra vetur. Ég valdi samt að fara í landspróf á þriðja vetri til að komast í MR sem þá var eini menntaskólinn í Reykjavík. Mér hundleiddist í menntaskóla- num. Hafði áhuga á flestu öðru en náminu. Var mikið í íþróttunum, í sundinu og sundknattleiknum með KR, og svo í handbolta með Þrótti sem var jú upprunalega Vestur- bæjarlið.“ Þegar blaðamaður spyr Gunnar Örn hvernig hann hafi þá komist í gegnum áreiti unglings- áranna fer hann að hlægja. „Ja ég hef passað mig á að segja börnun- um mínum ekki frá þessum árum. Ég var ekki jafnþægur unglingur og þau voru,“ segir Gunnar og hlær. „En það dempaði mig mikið að ég var ekki nema 17 ára þegar ég byrj- aði að vera með konunni minni, Elísabetu Haraldsdóttur. Hennar faðir var Haraldur Ásgeirsson verk- fræðingur frá Sólbakka í Önund- arfirði og móðir hennar Halldóra Einarsdóttir, Guðfinnssonar frá Bolungarvík. Elísabet var á þessum tíma að byrja í listnámi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands.“ Fjölbreytt sumarstörf Gunnar Örn stundaði margvísleg störf á námsárunum, var til sjós, vann á loftpressu og við byggingu háspennumastra. Sumarið áður en hann hélt til náms í dýralækning- um vann hann í skipasmíðastöð í Málmey í Svíþjóð. Þau Gunn- ar Örn og Elísabet stefndu á fram- haldsnám erlendis þar sem þeirra námsgreinar voru ekki kenndar hér á landi. „Við vildum gjarnan bjarga okkur sem mest á eigin spýtur og fannst ekkert síðra að fara þangað sem íslenskir námsmenn voru ekki fjölmennir. Endirinn var sá að Vín í Austurríki varð fyrir valinu enda sú listaborg ágætur kostur fyrir Elísabetu,“ segir Gunnar. Það var þó annað sem kærustuparið unga ákvað til að hleypa heimdraga num. Það var að fara til verksmiðjustarfa til Málmeyjar í Svíþjóð vorið 1970. „Á þessum tíma var talsvert at- vinnuleysi í landinu eftir að síldin hafði brugðist fyrir norðan og aust- an land árin á undan. Á sama tíma vantaði fólk til verksmiðjustarfa í Svíþjóð. Stórir hópar Íslendinga fóru þangað. Ráðningarstjóri kom til Íslands í leit að starfsmönn- um frá sænsku skipasmíðastöðinni Kochums og ég var fenginn til að fylgja honum um landið. Það varð til þess að mér bauðst vinna í skipa- smíðastöðinni. Við Elsa ákváðum að fara saman til Svíþjóðar, enda fannst okkur við vera orðið fullorð- ið fólk og allir vegir færir. Foreldr- um okkar fannst þetta ekki sniðug tilhögun hjá okkur.“ Byrjunarörðugleikar í Vín Um haustið tók Gunnar Örn lest- ina frá Málmey í Svíþjóð til Vínar í Austurríki þar sem beið hans há- skólanám í dýralækningum. Elísa- bet hélt hins vegar heim á leið þar sem að hún átti eftir lokavetur- inn í Myndlista- og handíðaskól- anum. Hún kom síðan ári seinna í sitt háskólanám í listum í Vín. Þau Gunnar Örn áttu eftir að kynnast ýmsu nýju í Vín, m.a. nýju tungu- máli og menningu. „MR er þekktur skóli fyrir að leggja mikla áherslu á tungumálanám. Ég hélt ég stæði því þokkalega vel og ekkert væri að ótt- ast þar sem ég var búinn að fá skóla- vist. En ég gerði þau mistök að fara á öðrum degi mínum í Austurríki í skólann til að láta innrita mig. Þar hitti ég fyrir skrifstofustjórann frú Prack. Þegar ég brá fyrir mig ryð- gaðri menntaskólaþýskunni komst ég hvorki lönd eða strönd gagnvart frú Prack. Hún sagði, herra Guð- mundsson komdu hingað eftir þrjár vikur og þá tek ég þig inn í skól- ann ef þú talar þá þýsku. Með það fór ég heldur niðurlútur, enda hafði mér verið hafnað við innritun. Nú voru góð ráð dýr, hvað átti ég að gera? Ég fór þá út í sveit á býli þar sem voru íslenskir hestar. Þar náði ég að þjálfa mig í þýskunni. Þegar ég mætti svo þremur vikum síðar á skrifstofuna til frú Prack tók hún mér með kostum og kynjum. Upp frá því vildi hún allt fyrir mig gera og það var gott til hennar að leita. Hér býr alveg öndvegis- og hæfileikaríkt fólk Gunnar Örn Guðmundsson dýralæknir skautar yfir lífshlaupið og 35 ár í Borgarfirði Gunnar Örn Guðmundsson við heimili þeirra Elísabetar á Hvanneyri. Ljósm. þá Fjölskyldan samankomin fyrir nokkrum árum. Bárður Örn ásamt konu sinni Agnesi Hlíf Andrésdóttur, Sólveig Ragnheiður, Halldór Örn, Elísabet Haraldsdóttir og Gunnar Örn Guðmundsson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.