Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2013, Page 94

Skessuhorn - 18.12.2013, Page 94
94 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013 Áhugaljósmyndarar finnast víða og fer þeim fjölgandi eftir að stafræn ljósmyndatækni gerði slíkt áhuga- mál í senn ódýrara og auðveld- ara en áður. Þeir eru ekki endilega að ljósmynda í atvinnuskyni held- ur drífur áhuginn þá áfram. Mjög víða stunda áhugaljósmyndar- ar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín byggðarlög, atvinnusög- una, menningarsöguna og fleira. Samtímaskráning af þessu tagi er oft vanmetin. Í raun ætti að verð- launa þetta fólk með einhverjum hætti; gera það að launuðum bæj- arlistamönnum, því það er þetta fólk vissulega. Hér á Vesturlandi eru marg- ir sem stunda áhugaljósmyndun af kappi. Í jólablöðum Skessuhorns á liðnum árum hafa áhugaljósmynd- arar á Vesturlandi verið kynntir, einn á hverju ári. Við köllum þetta fólk samtímasöguritara, fólkið sem á í fórum sínum þúsundir mynda frá liðnum árum. Myndir sem varðveita annars glötuð augnablik. Fiktið kallar á betri græjur Sagnaritari samtímans að þessu sinni er Eyjólfur Matthíasson. Hann er 37 ára gamall, alinn upp á Hrafnabjörgum í Hvalfjarðar- sveit. Eyjólfur starfar sem smið- ur hjá Trésmiðjunni Akri á Akra- nesi. Hann flutti á Skagann fyrir nokkrum árum eftir að hafa byggt sér fallegt einbýlishús í Flatahverf- inu. „Ég byggði húsið sjálfur, það var svona „hobbý“ hjá mér í nokk- ur ár,“ segir hann. Eyjólfur segist hafa fengið áhuga fyrir ljósmyndun þegar hann eign- aðist fyrstu stafrænu myndavélina. „Þetta byrjaði þegar ég eignaðist litlu vélina, fyrir um tíu árum. Svo fór þetta af stað fyrir alvöru þeg- ar ég eignaðist betri vél, Canon 400D. Þegar maður fer að fikta meira í græjunum og lærir á þær, þá vill maður sífellt betri græjur. Ég er núna með Canon 50D og er að huga að því að uppfæra hana,“ segir hann. Eyjólfur er að mestu sjálfmenntaður í faginu. „Ég hef bara lært þetta með einhverju fikti. Svo hafa aðrir félagar í Áhugaljós- myndarafélaginu Vitanum kennt mér sitthvað líka. Ég fikta mig bara áfram þar til eitthvað gáfulegt kemur út úr þessu.“ Fuglarnir heilla mest Fuglar af öllum stærðum og gerð- um hafa heillað Eyjólf mest í ljós- mynduninni. Óhætt er að segja að hann hafi náð mörgum glæsileg- um myndum af fuglum í íslenskri náttúru. Í upphafi þekkti hann að- eins helstu fuglana úr sveitinni en í dag er hann farinn að þekkja fleiri tegundir. „Fuglarnir heilluðu mig. Það er frekar erfitt að mynda þá, sérstaklega ef þeir eru á flugi. Það getur tekið marga tíma að ná góðri mynd. En stundum fær maður góð- ar fyrirsætur. Þá hleypa þeir mér að og leyfa að láta mynda sig. Eitt sinn var hópur af snjótittlingum á bryggjunni en þegar ég nálgaðist fóru þeir allir nema einn. Hann var ótrúlega rólegur. Ég náði að taka myndir af honum með linsunni sem var á vélinni. Svo skipti ég um linsu og gerði það í tvígang en aldrei fór fuglinn,“ útskýrir hann. „Ég er með 400 mm linsu þegar ég tek myndir af fuglunum. Ég hef því lent í því að þurfa að bakka frá fyrirsætunum ef þær leyfa manni að koma nálægt. Ég næ ekki fók- us ef ég stend of nálægt með þessa linsu,“ bætir hann við. Eyjólfur tekur þó ekki einung- is myndir af fuglum. Hann hefur einnig myndað landslag og norð- urljósin. „Ég er eiginlega alltaf með vélina í sætinu í bílnum þegar ég fer eitthvað út. Stundum fer ég út eingöngu til að taka myndir. Ég er helst á svæðinu í kringum Akra- nes og inni í Hvalfirði. Ég hef samt farið með Vitanum í ferðir á Snæ- fellsnes og Reykjanes. Fyrr á árinu gerði ég mér ferð inn í Kolgrafa- fjörð til að reyna að ná myndum af örnum sem þar voru. Það tókst reyndar ekki, þeir vildu ekkert láta mynda sig. Ég náði bara öðrum ágætis myndum í staðinn.“ Eyjólfur hefur tekið þátt í þrem- ur samsýningum hjá Vitanum og hefur selt nokkrar af ljósmynd- um sínum. Auk ljósmyndaáhugans hefur hann einnig áhuga fyrir tón- list og glamrar aðeins á gítar en þó er það ljósmyndunin sem á hug hans allan. „Ég stefni á að halda áfram að taka myndir, er hvergi nærri hættur. Ég ætla bara að vera duglegri að taka þrífótinn með mér þegar ég fer út,“ segir Eyjólf- ur Mattíasson, sagnaritari samtím- ans. Hægt er að skoða ljósmyndir Eyjólfs á vefsíðunni flickr.com/ey- fim eða á Facebook síðu hans, und- ir nafninu Eyjólfur Photography. grþ Sagnaritari samtímans 2013 er Eyjólfur Matthíasson áhugaljósmyndari Eyjólfur Matthíasson er smiður og áhugaljósmyndari. Akraneshöfn og spegilsléttur sjórinn. Þessi fallega brandugla stillti sér upp fyrir Eyjólf. Myndin er tekin í Laugardalnum í Reykjavík. Brandugla á flugi, rétt fyrir utan Akranes. Eldsmiður að störfum á Norður- landamóti í eldsmíði sem haldið var sl. sumar á Akranesi. Grindhvalur sem villtist á land við Akranes. Hagi í Skorradal. Heiðlóa að verja hreiður sitt. Glæsilegur æðarkóngur á sundi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.