Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 15
FRÆÐIGREINAR / FARALDSFRÆÐI
kenni sem það hafði sjálft þegar það svaraði. Af
þessum ástæðum var ekki unnið tölfræðilega úr
þessum þætti og ekki fjallað um hann frekar hér.
Viðbrögð við einkennum hjartadreps: Nær allir
sem svöruðu eða 94,7% töldu frekar eða mjög lík-
legt að ef þeir fengju „skyndilegan verk/óþægindi
fyrir brjóstið sem leiddi út í vinstri handlegg“ staf-
aði það frá hjarta (Viðauki, spurning 12). Var
heldur stærra hlutfall í hópi 1 sem taldi það líklegt
en munurinn var ekki marktækur. Næst algengast
var að telja frekar eða mjög líklegt að slíkur verk-
ur kæmi frá vöðvum, en 14,5% voru á þeirri skoð-
un.
I spurningalistanum var lýst eftirfarandi ein-
kennum hjartadreps: „... þú fengir skyndilegan
verk/óþægindi fyrir brjóstið sem leiddi út í vinstri
handlegg og auk þess svitnaðir og yrði óglatt“.
Metið var hlutfall þeirra sem svöruðu að þeir
myndu bregðast við einkennunum með því að
leita læknis tafarlaust eða panta sjúkrabíl tafar-
laust (Viðauki, spurning 13). í heild voru 56,9%
sem myndu leita læknis tafarlaust og 30,3% sem
myndu panta sjúkrabíl tafarlaust, 66,1% merktu
við að minnsta kosti annan hvorn ofangreindan
lið. Menntun hafði ekki greinilegt spágildi fyrir
þessar breytur.
Þegar spurt var í hvaða símanúmer fólk myndi
hringja ef það þyrfti að komast undir læknishendi
tafarlaust voru 84,7% sem nefndu 112, voru í sam-
bandi við Securitas eða voru vistmenn á stofnun
þar sem læknir var innan seilingar. Gáfu 11,8%
ekkert svar. Þessi hlutföll sýndu ekkert samband
við menntun.
Þeir sem töldu sig kunna að beita hjartahnoði
og blæstri voru 20,2% svarenda. Þetta hlutfall var
marktækt hærra í hópi 1 en hópi 4 (tafla II).
Félagsleg tengsl: I heild voru 76,9% sem sögðu
að einhver nákominn veitti heilsu þeirra og líðan
athygli reglulega (Viðauki, spurning 16). Þetta
hlutfall sýndi ekki greinilegt samband við mennt-
un. Þegar skoðuð var sundurgreining á því um
hvaða aðila var að ræða kom í ljós að 91,3% til-
greindu maka, son/dóttur eða foreldri (Viðauki,
spurning 17), 12,4% nefndu heilbrigðisstarfsmann
og fór þetta hlutfall hækkandi með meiri menntun.
Fyrir hóp 1 var það 18,3% en 7,4% hjá hópi 4.
Sambandið var þó ekki marktækt.
A myndum 1 og 2 og töflu II sést að meira
menntaðir voru mun líklegri til að vera í persónu-
legum tengslum við lækna og hjúkrunarfólk og
njóta ráðlegginga varðandi heilsufar og/eða með-
ferð við sjúkdómum af hálfu lækna/hjúkrunar-
fræðinga sem það þekkir persónulega (Viðauki,
spurningar 18,19). Af þeim sem svöruðu þekktu
79,3% persónulega lækni og/eða hjúkrunarfræð-
ing og 50,9% nutu ráðlegginga varðandi heilsufar
og/eða meðferð við sjúkdómum af hálfu lækna/
hjúkrunarfræðinga sem það þekkir persónulega
(Viðauki, spurningar 18,19). Menntun hafði for-
spárgildi fyrir hvort tveggja. í fyrra tilfellinu var
samfellt hækkandi hlutfall frá hópi 4 (60,9%) til
hóps 1 (92,3%). Fyrir leitni var p<0,001. í síðar-
nefnda tilfellinu var hækkunin ekki eins mikil frá
hópi 4 til hóps 1 eða 50,9% til 69,9%. Einungis
reyndist marktækur munur milli hópa 4 og 1
(p<0,05) og leitnin var ekki marktæk (p=0,064).
Þess skal getið að mun stærra hlutfall hóps 4 gaf
ekkert svar við þessari spurningu (24,7%) en hóps
1 (7,6%).
Samskipti við heilbrigðisþjónustu: Einungis þrír
(1%) sögðust hafa þurft að fresta för sinni til lækn-
is síðustu 12 mánuðina vegna fjárskorts (Viðauki,
spurning 21) og því ekki um að ræða marktækan
mun á milli hópa. Stærra hlutfall meira menntaðra
hafði notað heilbrigðisþjónustuna á síðustu 12
mánuðum en sambandið var ekki marktækt (Við-
auki, spurning 22).
Mynd 3 og tafla II sýna að minna menntaðir
voru líklegri til að hafa heimilislækni og eiga
regluleg samskipti við hann (Viðauki, spurningar
24,25). Ekki var marktækur munur milli hópa en
fyrir leitniprófun var p<0,05. Meira menntaðir
voru hins vegar líklegri til að hafa regluleg sam-
skipti við lækna með aðra sérmenntun (Viðauki,
spurningar 24-26) en það samband var ekki mark-
tækt.
Fig. 1. Percentage of
respondants who replied
positively to the question:
Are you in personal
contact with a) doctor, b)
nurse. 95% confidence
interval shown.
Fig. 2. Percentage of
respondants who replied
positively to the question:
Have you for the past
year received advice
concerning health or
treatment for disease
from a doctor/nurse, with
whom you are in personal
contact? 95% confidence
interval shown.
Læknablaðið 2000/86 95