Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 24
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
Ofnæmi og astmi hjá
íslenskum börnum
Herbert Eiríksson1
Björn Árdal1
Björn Rúnar
Lúðvíksson2
Ásbjörn Sigfússon2
Helgi
Valdimarsson2
Ásgeir
Haraldsson'
Frá 'Barnaspítala Hringsins,
’Rannsóknastofu Háskóla
íslands í ónæmisfræöi.
Fyrirspumir, bréfaskipti:
Björn Ardal, Barnaspítala
Hringsins, Landspítalanum,
101 Reykjavík. Sími: 560 1000,
bréfsími: 560 1055, netfang:
bjorna@rsp.is
Lykilorö: ofnœmi, asttni, exetn,
ofnœmiskvef, börn.
Ágrip
Inngangur: Algengi astma og ofnæmissjúkdóma virð-
ist fara vaxandi á Vesturlöndum. Undirrót ofnæmis er
enn aðeins þekkt að hluta. Til að afla upplýsinga um
ofnæmi og astma á Islandi höfum við fylgt eftir úr-
takshópi barna sem fædd eru 1987.
Efniviður og aðferöir: Upphaflega voru 179 börn
skoðuð við 18-23 mánaða aldur (meðalaldur 20 mán-
uðir), af þeim var 161 endurmetið fjögurra ára og 134
við átta ára aldur. Sjúkdómarnir astmi, exem, ofnæm-
iskvef og fæðuofnæmi voru greindir með stöðluðum
spurningum, skoðun og húðprófum.
Niðurstöður: Fjörutíu og tvö prósent 20 mánaða
barna, 45% fjögurra ára barna og 34% átta ára barna
greindust með ofnæmi og/eða astma. Astmi og exem
voru ríkjandi við 20 mánaða aldur. Algengi og út-
breiðsla exems fór minnkandi með aldri og hjá átta
ára börnum hafði dregið úr algengi astma. Ekkert
barn greindist með ofnæmiskvef fyrir tveggja ára ald-
ur, en fjögurra ára höfðu 12 börn (7%) kvillann og
átta ára höfðu 14 börn (10%) einkenni ofnæmiskvefs.
Um fjórðungur barna með astma eða ofnæmi höfðu
fleiri en eitt ofnæmiseinkenni á hverjum tíma. Meiri-
hluti (213) þeirra barna sem greindust með astma eða
ofnæmi fyrir tveggja ára aldur voru orðin einkenna-
laus átta ára, en um helmingur átta ára barna með
þessa sjúkdóma höfðu verið án einkenna við tveggja
ára aldur. Liðlega þriðjungur átta ára barna með
astma eða ofnæmi hafði jákvætt húðpróf, oftast gegn
köttum. Sjötíu og þrjú prósent átta ára barna með
astma eða ofnæmi áttu foreldra eða systkini með of-
næmi.
Ályktanir: Astmi og ofnæmi eru algeng meðal ís-
lenskra barna eins og víða á Vesturlöndum. Einkenn-
in virðast breytileg eftir aldri. Athygli vekur að meiri-
hluti barna með ofnæmisvandamál á fyrstu tveimur
aldursárum varð einkennalaus fyrir átta ára aldur.
Hins vegar komu ofnæmiseinkenni rétt um helmings
átta ára barna fyrst fram eftir tveggja ára aldur. Þetta
bendir til þess að þau líffræðilegu ferli sem valda of-
næmiseinkennum kunni að vera breytileg eftir aldri.
Inngangur
Astmi og ofnæmi eru mikilvæg heilbrigðisvandamál
og algengi þeirra virðist fara vaxandi á Vesturlöndum
(1-4). Erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að þriðjung-
ur bama sýnir eitt eða fleiri ofnæmiseinkenni fyrir 11
ára aldur (1). Röskun af völdum þessara sjúkdóma er
því mikil fyrir fjölda barna, aðstandendur og þjóðfé-
lagið í heild.
ENGLISH SUMMARY
Eiríksson H, Árdal B, Lúðvíksson BR, Sigfússon Á,
Valdimarsson H, Haraldsson Á
Allergy and asthma in lcelandic children - an
epidemiological study
Læknablaðið 2000; 86: 102-7
Objective: The prevalence of allergy and asthma is in-
creasing in Western industrialized countries. The etiology
of allergy is multifactorial and only partly understood. In an
effort to gather information about asthma and allergy in the
pediatric population in lceland, we have evaluated on a
regular basis a cohort of randomly selected children born
in 1987.
Material and methods: The first part of the study in-
cluded 179 children at the age of 18-23 months (mean age
20 months). Of these, 161 children were re-evaluated at
fouryears of age and 134 at eight years. The evaluation in-
cluded a standardized questionnaire, clinical examination
and skin-prick tests. Asthma, eczema, allergic rhinocon-
junctivitis and food allergy were diagnosed according to
established criteria.
Results: At 20 months of age 42% of the children were
diagnosed with asthma or allergic disorders, 45% at four
years and 34% at the age of eight years. Initially asthma
and eczema were most common, but the prevalence and
severity of eczema had decreased at four years of age and
the prevalence of asthma decreased between four and
eight years. No child was diagnosed with allergic rhino-
conjunctivitis before two years of age but 7% of four year
olds and 10% at the age of eight years. A quarter of the
■children had at some stage symptoms compatible with
more than one allergic disorder. Two-thirds of the children
who were diagnosed with eczema and/or asthma before
two years of age, were symptom free at eight years.
Thirty-eight percent of eight year old children with allergic
symptoms had positive skin-prick tests to the allergens
used, most commonly to cats. Seventy three percent of
eight year old children with allergy and/or asthma, had a
first degree relative with a history of allergies.
Conclusions: As in other Western industrialized societies
asthma and allergic disorders are common health prob-
lems amongst children in lceland. However, the majority of
children with allergic manifestations during the first two
years of life, became symptom free before the age of eight
years. Conversely, 50% of eight year olds with asthma or
allergies were symptom free during the first two years of
their life. This suggests that the mechanisms causing aller-
gic symptoms may not be uniform in different age groups.
Key words: allergy, asthma, eczema, allergic rhinitis,
children.
Correspondence: Björn Árdal. E-mail: bjorna@rsp.is
102 Læknablaðið 2000/86