Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJDRW
Persónuvernd og vísindasiðferði
Umræður um persónuvernd og siðferði í vís-
indum hafa verið áberandi og ef til vill tekið
meira rými undanfarið en áður. Breytingar og ný
viðhorf á þessum sviðum hafa komið svo ört fram
nýverið að læknar sem og aðrir hafa haft fullt í
fangi með að fylgjast með í hverju nýjungarnar
felast. A haustdögum var lagt fram lagafrumvarp
sem felur í sér breytingar á persónuverndarlög-
unum. Nýverið hafa verið gerðar breytingar á
reglum um vísindasiðanefndir og skipan þeirra.
I Ijós hefur komið að þær kröfur og vinnuregl-
ur sem snúa að læknum og þeim öðrum sem hafa
hug á að framkvæma rannsóknir eru ekki nógu
skýrar. Hinar mikilvægu nefndir sem að þessum
málum koma, Tölvunefnd og Vísindasiðanefnd,
gegna hér lykilhlutverkum. Því er hér með lýst
eftir skýrum skilaboðum frá Tövunefnd og Vís-
indasiðanefnd. í hvað tilvikum á að leita eftir
leyfum, umsögnum og álitum þessara nefnda ef
fyrirhugaðar eru vísindarannsóknir á mönnum?
Hvemig og hvenær á að bera slíkar beiðnir fram,
með tilliti til framkvæmda rannsókna? Leiðbein-
ingar og nákvæm umsóknareyðublöð þessara að-
ila er það sem læknar og aðrir bíða eftir. Lækna-
blaðið hefur að undanförnu óskað eftir því við
höfunda, sem senda fræðigreinar til birtingar, að
þeir greini frá því hvort þeir hafi fengið leyfi
Tölvunefndar og vísindasiðanefnda vegna rann-
sókna sinna. Slíkra leyfa og umsagna er getið í
texta greinanna.
f þessu tölublaði birtist viðtal við Ingileifi
Jónsdóttur formann Vísindasiðanefndar þar sem
segir frá störfum nefndarinnar. Á öðrum stað í
blaðinu eru fyrirhugaðar breytingar á lögum um
persónuvemd kynntar stuttlega. Loks greinir
Árni Björnsson frá umræðu sem farið hefur fram
í blöðum og tímaritum víðsvegar um heiminn og
tengist siðfræði í vísindum, ekki síst læknavísind-
um og meðferð heilsufarsupplýsinga einstak-
linga.
VlLHjÁLMUR RAFNSSON
Höfundur er prófessor í heilbrigðisfræði við Háskóla íslands.
Frágangur
fræðilegra greina
Höfuiidur sendi tvær geröir
handrita ti! ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8, 200 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu lokaformi
greinar samþykkir og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver liluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða, höfundar, stofn-
anir, lykilorð
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Tötlur «g myndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að
vali höfunda.
Tölviiunnar niyndir «g griil'
komi á disklingi ásamt út-
prenti. Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu litnivnda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti. Taka skal
fram vinnsluumhverfi.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/laekna
bladid
Umræðuhluti
Skilafrestur er 20. undan-
farandi mánaðar, nema
annað sé tekið frarn.
Læknablaðið 2000/86 87