Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2000, Page 7

Læknablaðið - 15.02.2000, Page 7
FRÁ RITSTJDRW Persónuvernd og vísindasiðferði Umræður um persónuvernd og siðferði í vís- indum hafa verið áberandi og ef til vill tekið meira rými undanfarið en áður. Breytingar og ný viðhorf á þessum sviðum hafa komið svo ört fram nýverið að læknar sem og aðrir hafa haft fullt í fangi með að fylgjast með í hverju nýjungarnar felast. A haustdögum var lagt fram lagafrumvarp sem felur í sér breytingar á persónuverndarlög- unum. Nýverið hafa verið gerðar breytingar á reglum um vísindasiðanefndir og skipan þeirra. I Ijós hefur komið að þær kröfur og vinnuregl- ur sem snúa að læknum og þeim öðrum sem hafa hug á að framkvæma rannsóknir eru ekki nógu skýrar. Hinar mikilvægu nefndir sem að þessum málum koma, Tölvunefnd og Vísindasiðanefnd, gegna hér lykilhlutverkum. Því er hér með lýst eftir skýrum skilaboðum frá Tövunefnd og Vís- indasiðanefnd. í hvað tilvikum á að leita eftir leyfum, umsögnum og álitum þessara nefnda ef fyrirhugaðar eru vísindarannsóknir á mönnum? Hvemig og hvenær á að bera slíkar beiðnir fram, með tilliti til framkvæmda rannsókna? Leiðbein- ingar og nákvæm umsóknareyðublöð þessara að- ila er það sem læknar og aðrir bíða eftir. Lækna- blaðið hefur að undanförnu óskað eftir því við höfunda, sem senda fræðigreinar til birtingar, að þeir greini frá því hvort þeir hafi fengið leyfi Tölvunefndar og vísindasiðanefnda vegna rann- sókna sinna. Slíkra leyfa og umsagna er getið í texta greinanna. f þessu tölublaði birtist viðtal við Ingileifi Jónsdóttur formann Vísindasiðanefndar þar sem segir frá störfum nefndarinnar. Á öðrum stað í blaðinu eru fyrirhugaðar breytingar á lögum um persónuvemd kynntar stuttlega. Loks greinir Árni Björnsson frá umræðu sem farið hefur fram í blöðum og tímaritum víðsvegar um heiminn og tengist siðfræði í vísindum, ekki síst læknavísind- um og meðferð heilsufarsupplýsinga einstak- linga. VlLHjÁLMUR RAFNSSON Höfundur er prófessor í heilbrigðisfræði við Háskóla íslands. Frágangur fræðilegra greina Höfuiidur sendi tvær geröir handrita ti! ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver liluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða, höfundar, stofn- anir, lykilorð • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Tötlur «g myndir skulu vera á ensku eða íslensku, að vali höfunda. Tölviiunnar niyndir «g griil' komi á disklingi ásamt út- prenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með. Sérstaklega þarf að semja um birtingu litnivnda. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Taka skal fram vinnsluumhverfi. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: http://www.icemed.is/laekna bladid Umræðuhluti Skilafrestur er 20. undan- farandi mánaðar, nema annað sé tekið frarn. Læknablaðið 2000/86 87

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.