Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 77
LAUSAR STÖÐUR
REYKJALUNDUR
Deildarlæknir
Á Reykjalundi fer fram viðamikil endurhæfingarstarfsemi. Unnið er í þverfaglegum teymum. Áhugasamt starfs-
fólk. Góður starfsandi.
Starfseminni er sviðaskipt. Sviðin eru hjarta-, lungna-, miðtaugakerfis-, geð-, gigtar-, verkja-, hæfingar- og nær-
ingarsvið svo og svið atvinnulegrar endurhæfingar sem er í uppbyggingu.
Á Reykjalundi starfa sérfræðingar í endurhæfingarlækningum, gigtlækningum, geðlækningum, lyflækningum,
taugasjúkdómalækningum, lungnalækningum, hjartalækningum og heimilislækningum.
Laus er til umsóknar staða deildarlæknis. Staðan getur nýst sem hluti af námi í endurhæfingarlækningum og
heimilislækningum. Staðan getur einnig nýst til viðhaldsmenntunar fyrir sérfræðinga í heimilislækningum svo og
sem góð undirstaða fyrir nám í fleiri sérgreinum.
Staðan er laus nú þegar en umsækjandi getur hafið störf samkvæmt nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir
Hjördís Jónsdóttir lækningaforstjóri í síma 566 6200 eða netfangi: hjordisj@ reykjalundur.is
Áskrifendur
Lækna-
blaðsins
sem ekki greiða
áskriftargjald með
félagsgjaldi til LÍ
Einhverjir áskrifenda munu enn eiga
ógreidda reikninga fyrir áskrift að Lækna-
blaðinu árið 1999. Eru þeir beðnir að greiða
það hið fyrsta. Áskrift innanlands er kr.
6.840 en fyrir áskrifendur erlendis kr. 6.000,
þar sem þeir greiða ekki virðisaukaskatt.
Reikningar fyrir áskrift ársins 2000 hafa nú
verið sendir út, enda reiknað með því að
áskrift sé greidd fyrirfram.
Greiðsla
áskriftar að
Læknablaðinu
Hægt er að greiða áskrift að Læknablaðinu
með því að senda greiðslu beint til blaðsins
eða greitt með greiðslukorti frá VISA eða
Eurocard. Þeir sem búsettir eru erlendis
geta lagt greiðsluna inn á póstgíróreikning
nr. 516651.
Þeir sem vilja greiða með greiðslukorti
þurfa að hringja eða skrifa Læknablaðinu
og gefa upp kortanúmer og kennitölu.
Sími Læknablaðsins er
564 4104
og heimilisfangið:
Hlíðasmára 8,
200 Kópavogi
Læknablaðið 2000/86 147