Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 45
FRÆÐIGREINAR / ATVINNUSJÚKDÓMAR
Óþægindi frá stoðkerfi meðal
fískvinnslukvenna sem hættu störfum
Hulda Ólafsdótdr'
Vilhjálmur
Rafnsson2
Frá 'Vinnueftirliti ríkisins, at-
vinnusjúkdómadeild, 2Rann-
sóknastofu í heilbrigðisfræði
Háskóla Islands. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Hulda Ólafsdóttir,
Vinnueftirliti ríkisins, atvinnu-
sjúkdómadeild, Bfldshöfða 16,
112 Reykjavík. Sími: +322 772
7716, netfang: hulda.ol@
skynet.be
Greinin hefur áður birst í
Intemational Journal of Occu-
pational & Environmental
Health 2000; 6:44-9 og er birt
hér með góðfúslegu leyfi
rétthafa.
Lykilorð: fyrrverandi starfs-
menn, einkenni frá stoðkerfi,
spurningalisti, endurteknar
hreyfingar, einhœf vinna,
fiskvinnsla.
Ágrip
Inngangur: Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að óþæg-
indi frá hreyfi- og stoðkerfi meðal fiskvinnslukvenna
eru tíð. Óþægindin frá efri útlimum hafa orðið tíðari
með tilkomu flæðilína enda veija konumar lengri
tíma við einhæf störf eftir þessa tæknibreytingu. Til-
gangur rannsóknarinnar var að kanna algengi óþæg-
inda frá hreyfi- og stoðkerfi meðal kvenna sem hafa
hætt að starfa í fiskvinnslu og bera saman við algengi
óþæginda kvenna sem héldu áfram að vinna þar og
varpa þannig nokkm ljósi á hugsanleg áhrif hraustra
starfsmanna í þessari starfsgrein.
Efniviður og aðferðin Notaður var staðlaður nor-
rænn spurningalisti um óþægindi frá hreyfi- og stoð-
kerfi. Nafnalisti og heimilisföng starfsmanna fengust
hjá stjórnendum fiskvinnsluhúsanna og var Iistinn
sendur heim til fólksins. Samtals svöruðu 282 konur á
aldrinum 16-54 ára, sem er 71% svörun. Af þeim
hættu 28 konur störfum stuttu eftir að þær svömðu
en 254 héldu áfram í starfi. Notuð var Mantel-
Haenszel jafna þar sem efniviðnum var lagskipt eftir
aldri til að reikna út hlutfallslega áhættu (odds ratio,
OR) og 95% öryggismörk (confidence interval, CI).
Niðurstöður: Algengi óþæginda frá hreyfi- og stoð-
kerfi síðastliðna 12 mánuði var hærra meðal fyrrver-
andi fiskvinnslukvenna en meðal þeirra sem vom
áfram í starfi. Hlutfallstala vegna óþæginda frá fingr-
um, ökklum og úlnliðum sem hindruðu dagleg störf
síðastliðna 12 mánuði var 7,1 (95% CI 2,8-18,0); 5,3
(95% CI 1,3-21,5) og3,4 (95% CI 1,3-8,8).
Alyktanin Pær konur sem hættu að vinna í fiskvinnsl-
unni höfðu almennt tíðari óþægindi en hinar sem
héldu áfram að vinna. Hugsanlegt er að hér gæti
áhrifa hraustra starfsmanna. Þær konur sem hafa
mikil óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi hætta en hinar
halda áfram að vinna.
Inngangur
Óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi eru algeng meðal
islensku þjóðarinnar (1). Óþægindi frá hálsi og herð-
um og neðri útlimum vom algengari meðal fiskvinnslu-
kvenna en meðal annarra íslenskra kvenna (2).
Fiskvinnsla er aðal vömútflutningsgrein Islendinga
og skapar um 75% af vömútflutningstekjum þjóð-
arbúsins þótt einungis um 7% af vinnandi fólki í
fiskvinnslu og um 5% við fiskveiðar. Fyrir um það bil
12 árum hófust miklar tæknibreytingar í fiskvinnslu
með tilkomu svokallaðra flæðilína. Rannsókn sem birt
var 1998 sýndi að með tilkomu flæðilína varð breyting
á óþægindum meðal fiskvinnslukvenna. Hjá fisk-
ENGLISH SUMMARY
Ólafsdóttir H, Rafnsson V
Musculoskeletal symptoms among female
workers in fish-fillet plant who ceased or
continued working
Læknablaöiö 2000; 86: 121-5
Objective: An earlier study of workers in fish-filleting
plants in lceland showed high prevalence of musculo-
skeletal symptoms. The prevalence of symptoms of the
upper limbs is higher after introduction of the flow-line
since the women have a longer duration with repetitive
tasks. The overall aim of this study was to compare the
prevalence of musculoskeletal symptoms among women
working at the flow-line with symptoms among those who
had ceased to work there and to throw some light on the
selection process of workers from this industry.
Material and methods: The standardised Nordic Questi-
onnaire was used. Lists of names and addresses of the
plant workers were obtained from plant management.
Questionnaires were mailed to the home addresses of the
workers. The overall participation rate was 71 %. Two
hundred eighty two women aged 16-54 answered where
28 women had left the plants after answering the ques-
tionnaires and 254 were still working there. The Mantel-
Haenszel test was used and stratified by age and odds
ratio and 95% confidence intervals (Cl) calculated.
Results: The prevalence of musculoskeletal symptoms
during the previous 12 months was higher among former
than current workers. The Mantel-Haenszel odds ratio for
symptoms of the fingers, ankles and wrists hindering
•normal work during the previous 12 months prior to the
study was 7.1 (95% Cl 2.8-18.0), 5.3 (95% Cl 1.3-21.5)
and 3.4 (95% Cl 1.3-8.8) respectively.
Conclusions: The selection process of workers from the
fish-processing plants may be determined by the high
prevalence of musculoskeletal symptoms, a healthy
worker selection. There may be a causal relationship
between musculoskeletal symptoms and ceasing to work
at fish-processing plants.
Keywords: former workers, musculoskeletal symptoms,
questionnaire, repetitive work, fish processing.
Correspondence: Hulda Ólafsdóttir. E-mail:
hulda.ol@skynet.be
vinnslukonum sem unnu við flæðilínu hafði algengi
óþæginda aukist í olnbogum, úlnliðum og fingrum en
óþægindi frá ökklum höfðu minnkað samanborið við
konur sem unnu ekki við flæðilínu. Ályktað var að
ástæða hærra algengis óþæginda frá efri útlimum væri
Læknablaðið 2000/86 121
L