Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 39
FRÆÐIGREINAR / ATVINNUSJÚKDÓMAR
Aukin óþægindi frá efri útlimum meðal
kvenna í fiskvinnslu eftir tilkomu flæðilína
Ágrip
Hulda Ólafsdóttir 11 Tilgangur: Fyrri rannsóknir á algengi óþæginda frá
hreyfi- og stoðkerfi sýndu að fiskvinnslufólk hefur
Vilhjálmur tíðari óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfi en gerðist í
Rafnsson2’ samanburðarhópnum sem var úrtak íslensku þjóðar-
innar. Eftir rannsóknina 1987 hófust tæknilegar
breytingar í fiskvinnsluhúsum með tilkomu flæðilína.
Megintilgangur þessarar rannsóknar er að kanna
hvort ný tækni hafi breytt algengi óþæginda meðal
fiskvinnslufólks.
Efniviður og aðferðir: Staðlaður norrænn spurninga-
listi var notaður í báðum tilvikum.
Niðurstöður: Einhæfni og síendurteknar hreyfingar
hafa aukist með tilkomu flæðilína. Algengi óþæginda
er hærra meðal kvenna sem vinna við flæðilínur en
þeirra sem vinna í fiskvinnslu án flæðilína. Hlutfalls-
tala (odds ratio, OR) óþæginda var reiknuð með að-
ferðum Mantel-Haenszels og var 2,1 (95% öryggis-
mörk (confidence interval. CI) l,0-4,4) frá olnbogum,
1,9 (95% CI 1.1-3,2) frá fingrum og 1,7 (95% CI 1,0-
2,7) frá úlnliðum þegar spurt var um óþægindi síðast-
liðna sjö daga. Hlutfallstalan var minni en einn vegna
óþæginda frá ökklum og hnjám.
Alyktanir: Það má því álykta að ástæða hærra algeng-
is óþæginda frá efri útlimum meðal kvenna í fisk-
vinnslu sé tilkoma flæðilína sem hafa aukið einhæfni
og lengt viðveru kvenna við síendurteknar hreyfingar.
Frá " atvinnusjúkdómadeild
Vinnueftirlits ríkisins, 2)Rann-
sóknarstofu í heilbrigðisfræði,
Háskóla íslands. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Hulda Ólafsdóttir,
Vinnueftirliti ríkisins, Bflds-
höfða 16,112 Reykjavík. Sími:
+322 772 7716. Netfang:
hulda.ol@skynet.be
Greinin hefur áður birst í
Internalional Journal of
Industrial Ergonomics 1998;
21: 69-77 og er birt hér með
góðfúslegu leyfi rétthafa.
Lvkilorð: spurningalistakönn-
un, óþœgindi frá hreyfi- og
stoðkerfi, síendurteknar hreyf-
ingar við vinnu, fiskvinnsla,
flœðilína.
Inngangur
Árið 1987 var gerð rannsókn meðal fiskvinnslufólks
(1) þar sem lýst var óþægindum frá hreyfi- og stoð-
kerfi frá ýmsum líkamssvæðum. Algengi óþæginda
frá hálsi, herðum og neðri útlimum var hærra meðal
fiskvinnslufólksins heldur en gerðist í samanburðar-
hópnum sem var úrtak íslensku þjóðarinnar (1,2).
Ályktað var að þetta stafaði af álagi einhæfrar akk-
orðsvinnu (1).
Eftir að rannsóknin árið 1987 (1) var gerð hóf-
ust tæknilegar breytingar í fiskvinnsluhúsum með
tilkomu svokallaðra flæðilína víða um land. Haust-
ið 1993 var ákveðið að gera nýja rannsókn til að
kanna hugsanleg áhrif þessara tæknibreytinga.
Þátttakendur voru starfsmenn sömu frystihúsa og
árið 1987 auk starfsmanna fimm annarra frystihúsa
þar sem unnið var við flæðilínu. Algengi óþæginda
starfsfólks úr þessum tveimur rannsóknum eru nú
borið saman. Höfundar áttu engan þátt í þeim
breytingum sem áttu sér stað í fiskvinnslunni með
tilkomu flæðilína.
ENGLISH SUMMARY
Ólafsdóttir H, Rafnsson V
Increase in musculo-skeletal symptoms of upper
limbs among women after the introduction of the
flow-line in the fish-fillet plants
Læknablaðið 2000; 86: 115-20
Objectives: An earlier study of workers in fish-fillet plants
in lceland showed higher prevalence of musculoskeletal
symptoms as compared to a random sample of the lce-
landic population. Since that study a new manufacturing
process, the flow-line, has been introduced. The aim of
this study was to evaluate whether this new work situation
changed the prevalence of musculoskeletal symptoms
among the workers of the fish-fillet plants.
Material and methods: The same standardised Nordic
Questionnaire was used in both surveys.
Results: The monotony and the repetitiveness of the work
increased with the new technique. The resuits showed that
women had higher prevalence of symptoms of the upper
limbs when working at the flow-line than before. The Man-
tel-Haenszel odds ratio for symptoms of elbows, fingers
and wrists during the last seven days prior to the study
was 2.1 (95% confidence interval (Cl) 1.0-4.4), 1.9 (95% Cl
1.1-3.2)and 1.7 (95% Cl 1.0-2.7). The oddsratiofor knees
and ankles was less than one.
Conclusions: The higher prevalence of symptoms of the
upper limbs seems to be causally related to the increase
of monotonous and repetitive work in the fish industry.
Keywords: questionnaire, musculoskeletal symptoms,
repetitive work, fish-processing industry, flow-line.
Correspondence: Hulda Ólafsdóttir. E-mail:
hulda.ol@skynet.be
Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvort
nýjar vinnsluaðferðir hafi breytt algengi óþæginda
frá hreyfi- og stoðkerfi meðal fiskvinnslufólks.
Lýsing á vinnuaðstæðum
Aflað var upplýsinga um vinnuaðstæður með því að
skoða nokkra vinnustaðanna, teknar voru ljósmyndir
og rætt var við starfsmenn, fulltrúa verkalýðsfélaga,
verkstjóra og stjórnendur fiskvinnsluhúsanna.
Flæðilínur í fiskvinnsluhúsum byggjast upp á
röð færibanda. Fiskurinn fer með færiböndum frá
því hann er hausaður og þar til honum er pakkað.
Þegar fiskurinn hefur verið hausaður og flakaður í
vélum í vélasal flytjast flökin með færiböndum til
Læknablaðið 2000/86 115