Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 68
Nýjung frá MSD
Fyrsti leukotríenviðtækjablokkinn, sem
gefinn er einu sinni á dag við meðferð
á astma
Handa sjúklingum með astma
SINGULAIR (MONTELÚKAST, MSD)
Bætir stjórn á astma hjá sjúklingum, sem ekki eru vel meðhöndlaðir
með innöndunarbarksterum1
Stuðlar að því að fyrirbyggja astma sem áreynsla veldur1
Þolist vel, sambærilega og sýndarlyf1
Handhæg og einföld skömmtun fyrir svefn1
Fullorðnir
Ein 10 mg tafla fyrir svefn
Börn 6-14 ára
Ein 5 mg tuggutafla fyrir svefn (kirsuberjabragð)
Tilvitnun 1: Samþykkt Samantekt á eiginleikum lyfs 1998
SINGULAIR MSD, 970102; 97103
Tuggutöflur og töflur; R 03 D C 03
VIRKTINNIHALDSEFNI: Montelúkast sýra; 5 mg eða 10 mg. Ábendingar: Astmi. Skammtar: Skammtur handa fullorðnum, 15 ára og eldri, er ein 10 mg tafla daglega fyrir svefn. Skammtur handa
börnum, 6-14 ára að aldri, er ein 5 mg tuggutafla daglega fyrir svefn. Engin þörf er á skammtabreytingum hjá þessum aldurshópi. Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og virkni SINGULAIR hjá börnum
yngri en 6 ára. Engin þörf er á að breyta skömmtum hjá öldruðum, sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi, sjúklingum með væga til miðlungsalvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi eða vegna kynferðis.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum SINGULAIR.
Varnaðarorð og varúðarreglur: Ekki hefur verið sýnt fram á að SINGULAIR í inntöku sé virkt gegn bráðum astmaköstum. Þess vegna ætti ekki að nota SINGULAIR til að meðhöndla bráð astmaköst.
Sjúklingum á að ráðleggja að hafa viðeigandi lyf við bréðum astmaköstum tiltæk. Þótt skammta af samhliða gefnum innöndunarsterum eigi að lækka smám saman undir lækniseftirliti, ætti ekki að
skipta innöndunarsterum eða sterum til inntöku skyndilega út fyrir SINGULAIR. Við skammtalækkun á sterum (til ínntöku) hjá sjúklingum, sem fá astmalyf, þar á meðal leukótríenblokka, hefur í ein-
staka tilfellum komið fram eitt eða fleiri af eftirtöldum einkennum: eósínfíklafjöld, æðabólguútbrot, versnun lungnaeinkenna, hjartakvilli og/eða taugakvilli, sem stundum greinist sem Churg-Strauss
heilkenni en þau einkennast af eósínfíkinni íferð með kliniskum einkennum útæðabólgu. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að sanna orsakasamband við leukótríenblokka. er mælt með varúð og viðeigandi
klínísku eftirliti, þegar skammtalækkun á sterum (til inntöku) er íhuguð hjá sjúklingum sem fá SINGULAIR. Milliverkanin SINGULAIR má gefa með annarri meðferð, sem er venjulega gefin við fyrir-
byggjandi og langvinna astmameðferð. Meðganga og brjóstagjöf: Þungaðar konur eða konur með börn á brjósti einungis að nota SINGULAIR, ef það er talið nauðsynlegt. Aukaverkanir: SINGULA-
IR þolist almennt vel. Aukaverkanir, sem venjulega hafa verið vægar, hafa almennt ekki haft í för með sér að meðferð hafi verið hætt. í kliniskum rannsóknum voru aðeins kviðverkir og höfuðverkur
taldir tengdir lyfinu hjá > 1 % sjúklinga, sem meðhöndlaðir voru með SINGULAIR. Eftirtaldar aukaverkanir hafa verið skráðar eftir markaðssetningu SINGULAIRs; Ofnæmi, þar á meðal bráðaofnæmi,
ofsabjúgur, kláði og ofsakláði.
Pakkningar, verð (desember, 1999), afgreiðsla og greiðsluþátttaka: Tuggutöflur 5 mg: 28 stk. Verð: 5545 kr. 98 stk. Verð: 16650 kr. Töflur 10 mg: 28 stk. Verð: 5545 kr. 98 stk.
Verð: 16650 kr. Afgreiðsla: Lyfseðilsskylda. Greiðsluþáttaka: B. Handhafi markaðsleyfis: Merck, Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland.
Umboðsaðili á íslandi: Farmasia ehf, Siðumúla 32,108 Reykjavík.
TAFLA Á DAG . _ Ar _
SlNGULJUR (MONTELUKAST, MSD)
1 tafla á dag stuðlar að betri stjórn á astma.
C* MERCK SHARP & DOHME
FARMASÍA ehf.