Læknablaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 30
FRÆÐIGREINAR / KRABBAMEIN
Hvað hindrar konur í að mæta í
br j ós tamy ndatöku ?
Guðrún
Árnadóttir'
Friðrik H.
Jónsson'
Valgerður
Sigurðardóttir’
Dana Bovbjerg'
Heiðdís B.
Vald i m arsdótt i r'
Frá 'Háskóla íslands, 2leitar-
stöð Krabbameinsfélags ís-
lands, 3Mount Sinai School of
Medicine, New York.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Guðrún Árnadóttir,
félagsvísindadeild HÍ, Odda,
107 Reykjavík. Netfang:
gudruarn@hi.is
Rannsókn þessi er hluti af
stærri rannsókn, sem var
meistaraprófsverkefni Guð-
rúnar Árnadóttur við félags-
vísindadeild Háskóla íslands.
Par voru meðal annars könn-
uð áhrif fjölda persónubund-
inna þátta og viðhorfa til
brjóstamyndatöku og erfða-
prófa á brjóstakrabbameini.
Lykilorð: brjóstakrabbamein,
brjóstamyndataka, mœting,
forspárþœttir.
Ágrip
Tilgangur: Brjóstakrabbamein, ásamt lungnakrabba-
meini, er langalgengasta dánarorsök íslenskra kvenna
á miðjum aldri. Þrátt fyrir alþjóðlegan árangur reglu-
bundinnar brjóstamyndatöku við að finna brjósta-
krabbamein á for- eða byrjunarstigi, þegar mestar
líkur eru á lækningu, mæta íslenskra konur ekki
nægilega vel í myndatöku. Tilgangur þessarar rann-
sóknar var að kanna hvaða þættir hvetja eða letja ís-
lenskar konur til að mæta í myndatöku.
Efniviður og aðferðir: Konur á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, 40-69 ára, sem ekki höfðu greinst með
brjóstakrabbamein, voru valdar af handahófi (n=1000)
og var þeim sendur spurningalisti í pósti. Þátttakend-
ur (n=619) fengur spurningalista um: lýðfræðilegar
breytur, þekkingu á brjóstamyndatöku, mögulega
hvetjandi þætti (til dæmis hvatningu frá lækni) og
hindranir (til dæmis ótta við geislun) sem tengdust
mætingu, ásamt aðlögunarstigum að mætingu í
brjóstamyndatöku, það er foríhugun (precontempla-
tion), íhugun (contemplation), framkvæmd (action)
og viðhald (maintenance).
Niðurstöðun Konur á foríhugunarstigi voru hræddari
við geislun en konur á öðrun stigum. Þær ásamt
konum á íhugunarstigi óttuðust meira sársauka frá
myndavél og voru óánægðari með þjónustu leitar-
stöðvar Krabbameinsfélagsins. Hvatning frá einka-
lækni og þekking á því hvenær fara á í myndatöku
tengdust einnig jákvætt mætingu.
Alyktanir: Þessar niðurstöður gefa til kynna að lækn-
ar geti gegnt mikilvægu hlutverki í að hvetja konur til
að mæta í brjóstamyndatöku. Með því að upplýsa
konur um gildi myndatökunnar og að ræða við þær
um áhyggjur þeirra af geislun og sársauka væri hugs-
anlega hægt að auka þátttöku. Þjónusta á leitarstöð-
inni virðist einnig geta haft áhrif á það hvort konur
halda áfram að mæta í myndatöku.
Inngangur
Brjóstakrabbamein er langalgengasta krabbamein
sem greinist meðal íslenskra kvenna (1). Jafnframt er
það, ásamt lungnakrabbameini, algengasta dánaror-
sök íslenskra kvenna á miðjum aldri (Krabbameins-
skrá 1999, munnlegar upplýsingar). Nýgengi brjósta-
krabbameins hefur aukist verulega hér á landi und-
anfarna áratugi eins og víðast hvar annars staðar í
Vestur-Evrópu, en dánartíðni hefur hins vegar að
mestu haldist óbreytt (1,2). A árunum 1956-1960 voru
fimm ára heildarlífslíkur kvenna sem greindust með
brjóstakrabbamein 48%. Tímabilið 1980-1985 voru
ENGLISH SIIMMARY
Árnadóttir G, Jónsson FH, Sigurðardóttir V, Bovbjerg D,
Valdimarsdóttir HB
Predictors of mammography adherence among
lcelandic women
Læknablaðið 2000; 86:108-14
Objective: In lceland, breast cancer is a second only to
lung cancer as a cause of women's cancer related deaths.
Despite the widely-recognized utility of mammography for
detecting breast cancer at early stages when it is most
curable, many lcelandic women do not adhere to mammo-
graphy screening recommendations. The aim of the pre-
sent population-based study was to identify factors that
facilitate and hinder women's adherence to mammography
screening in lceland.
Material and methods: A randomly selected sample of
lcelandic women between the ages of 40-69 years, not
previously diagnosed with breast cancer (n=1000), were
recruited to the study by mail. Participants (n=619) com-
pleted questionnaires assessing: demopgraphic variables,
knowledge of screening guidelines, possible facilitators
(e.g., physician recommendation) and barriers (e.g. con-
cern about radiation) to adherence, as well as stages of
mammography screening adoption (precontemplation,
contemplation, action and maintenance).
Results: Women in the precontemplation stage were more
afraid of radiation than women on other stages. They as
well as women on contemplation stage were more afraid
that mammography would be painful, and less satisfied
with previous service at the mammography screening
■center. Doctors' recommendations, as well as women's
knowledge about mammography screening guidelines,
were positively related to mammography adherence.
Conclusions: These findings suggest that physicians may
have an important role in motivating women to follow
mammography screening recommendations. Educating
women about mammography screening guidelines and
addressing their concern about radiation and pain may
increase mammography adherence further. Service at the
mammography screening center may also improve ad-
herence.
Key-words: breast cancer, mammography, screening
adherence, predictors.
Correspondence: Guðrún Árnadóttir. E-mail: gudruarn®
hi.is
þær komnar í 68% og í 71% á árunum 1985-1990 (2).
Lífslíkur kvenna sem greinast með brjóstakrabba-
mein hafa þannig aukist, einkum vegna tilkomu
bættrar greiningartækni, sem leiðir til þess að sjúk-
108 Læknablaðið 2000/86