Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 72

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 72
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING með tilliti til sögu, hafi þær ekki fengið þessa ráðgjöf í tengslum við fósturmissi eða fæðingu barns. Erfðaráðgjöf er veitt af Jóhanni Heiðari Jóhannssyni lækni, en í sérstökum lilfellum er leitað til annarra sérfræðinga. Kynning á fósturgreiningu Þegar ómskoðanir eru kynntar, er gott að byrja á að segja að flest börn fæðist heilbrigð en það sé þó ekki sjálfgefið. Um 3% nýfæddra barna hafa einhvern galla, misalvarlegan. Ómskoðun er mikilvæg rann- sókn sem hefur þann tilgang að athuga heilbrigði fóstursins og finna alvarleg vandamál á meðgöngu. Um leið er athugað hvað fóstrin eru mörg, meðgöngulengd reiknuð og væntanlegur fæðingar- dagur fundinn, fylgjustaðsetning athuguð og legvatnsmagn. Hvaða ómskoðanir og rannsóknir eru í boði í dag Öllum konum er boðin ómskoðun við 18-20 vikna meðgöngu, að auki er öllum konum eldri en 35 ára boðin legvatnsrannsókn til greiningar á litningagerð fósturs. Frá því í janúar 1999 hefur öllum konum eldri en 35 ára og konum með sögu um litningagalla eða hjartagalla fósturs verið boðin 11-13 vikna ómskoðun til mælingar á hnakkaþykkt fósturs til að meta líkur á litningagöllum. Margar konur hafa kosið að hafna legvatnsrannsókn hafi líkindamatið verið hagstætt og hefur legvatnsrannsóknum því fækkað í kjölfar hnakkaþykktarmælinganna (mynd 1). Hvaða ómskoðanir og rannsóknir verða væntanlega í boði Öllum konum verður boðin ómskoðun við 11-13 vikna meðgöngu og blóðprufa frá móður til lífefna- mælinga vegna samþætts líkindamats á litninga- göllum. Öllum konum eldri en 35 ára sem vilja fóstur- greiningu en ekki líkindamat verður boðin legvatns- rannsókn til greiningar á litningagerð fósturs. Öllum konum verður boðin ómskoðun við 18.-20. viku eins og áður. Ómskoðun við 11-13 vikur Þessi skoðun er einkum ætluð til þess að bæta greiningu á litninga- og/eða hjartagöllum á fóstur- skeiði hjá yngri konum. Skoðunin kemur ekki í staðinn fyrir legvatnsástungu en gefur tölfræðilegar líkur á tilvist litningagalla. Þannig er hægt að meta hvort ástæða sé til að gera litningarannsókn hjá ungum konum. Fóstrið er skoðað eins vel og unnt er á þessum tíma með tilliti til: • meðgöngulengdar • fjölda fóstra Mynd 1. Fósturgreining og ómun í meðgöngu (1). • heilbrigði þess og • hnakkaþykktar vegna líkindamats á litningagöllum Hnakkaþykkt er svart svæði (vökvi) undir húð á hnakka fóstursins. Öll fóstur hafa einhvern vökva á þessu svæði við 11-13 vikur, en ef vökvasöfnunin er aukin eru líkur á litninga- og/eða hjartagalla auknar. Mælingarnar eru settar í tölvuforrit á meðan konan er í ómskoðuninni og fæst niðurstaða strax. Niður- staða er gefin sem tölulegar líkur á þrístæðu 21, til dæmis 1:670, en þá er eitt fóstur af 670 með sömu mælingar með þrístæðu 21 en 669 eru heilbrigð. Annars vegar er gefið líkindamat miðað við aldur konunnar og hins vegar miðað við aldur konu, stærð fósturs og hnakkaþykktarmælingu. Niðurstaðan gæti þá verið að líkur væru minni en aldur móður segir til um eða meiri. Komi í ljós að líkur á litningagalla eru meiri en 1:300 stendur til boða að greina litningagerð fósturs annað hvort með fylgjusýnatöku eða leg- vatnsástungu. Rannsóknin gefur örugga niðurstöðu um litningagerð fóstursins. Hins vegar felur rann- sóknin í sér hættu á fósturláti sem er um það bil 1:100-1:200 eftir legvatnsástungu, en 1:50-1:100 eftir fylgjusýnatöku. Ómskoðun við 18-20 vikna meðgöngu Þar sem flestir þekkja vel til 18-20 vikna óm- skoðunarinnar, verður ekki fjallað nánar um hana. Hins vegar er rétt að benda á að þessi skoðun hefur verið aðalskoðunin hingað til og flestir þeir fóstur- gallar sem hafa fundist á meðgöngu, hafa greinst við þessa skoðun. Ekki gera allir sér grein fyrir því að leitað er eftir svokölluðum vísum (soft markers) sem geta bent til litningagalla hjá fóstri. Ef tveir vísar eða fleiri eru fyrir hendi hjá fóstrinu eða einn vísir er fyrir hendi hjá eldri konu stendur til boða greining á litningagerð fóstursins. Þessir vísar geta verið á nýrum, í hjarta, í heila, í görnum og ennfremur aukin hnakkaþykkt. Einir sér er talið að þessir vísar hafi litla þýðingu og þarfnist ekki nánara eftirlits síðar á meðgöngu. Ef einhverjir foreldrar kjósa að sleppa snemmómskoðun og fara einungis í 18-20 vikna ómskoðun, þá er mikilvægt að benda þeim á að ekki 460 Læknablaðið 2001/87 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.