Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2001, Side 19

Læknablaðið - 15.10.2001, Side 19
FRÆÐIGREINAR / ÍFARANDI SVEPPASÝKINGAR Blóðsýkingar og sveppasýkingar hjá aðrar ífarandi börnum á Islandi Lena Rós Ásmundsdóttir1, Þórólfur Guðnason2, Fjalar Elvarsson', Helga Erlendsdóttir3, Jóhann Heiðar Jóhannsson4, Ingibjörg Hilmarsdóttir3, Magnús Gottfreðsson3,5 Ágrip Inngangur: Tíðni ífarandi sveppasýkinga fer vaxandi víðast hvar í hinum vestræna heimi. Fyrirburar og ónæmisbæld börn eru í hættu á að fá blóðsýkingar af völdum sveppa og í kjölfarið dreifðar sýkingar. Sýk- ingar af þessum toga hafa í för með sér háa dánar- tíðni. Pær hafa ekki verið rannsakaðar hjá börnum hérlendis. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár allra barna 16 ára og yngri á Islandi er greindust með blóðsýkingar og/eða dreifðar sýkingar af völdum ger- og myglusveppa á árunum 1980-1999. Niðurstöður krufninga og vefjarannsókna voru einnig kannaðar. Skráðar voru upplýsingar um áhættuþætti, einkenni, meðferð og afdrif sjúklinga. Allir tiltækir sveppa- stofnar voru ræktaðir og næmi þeirra fyrir sveppalyfj- um kannað. Niðurstöður: Alls greindust 18 börn með 19 ífar- andi sveppasýkingar á þessu 20 ára tímabili. Tólf blóðsýkingar greindust hjá 11 börnum og jókst ný- gengið marktækt á rannsóknartímabilinu úr 0,28 í 1,90 sýkingar á 100.000 börn á ári (p=0,037). Tæpur helmingur barna með blóðsýkingu voru fyrirburar. Öll böm með sannaða blóðsýkingu voru með djúpa æðaleggi og flest höfðu fengið næringu í æð, sýklalyf og barkstera. Candida albicans ræktaðist í níu tilvik- um af 12 (75%). Prjú börn af 11 fengu dreifða sýk- ingu. Til viðbótar greindust þrjú börn með dreifða Candida sýkingu við krufningu eða vefjarannsókn. Að auki fengu tvö börn heilahimnubólgu af völdum Candida albicans án sannaðrar blóðsýkingar. Tvö börn greindust með ífarandi sýkingar af völdum myglusveppsins Aspergillus fumigatus og læknuðust þau bæði. Þrjú börn af þeim 16 sem fengu ífarandi Candida sýkingar létust. Alyktanir: Þessi rannsókn á ífarandi sveppasýk- ingum hjá börnum er sú fyrsta er nær til heillar þjóð- ar. Veruleg hækkun hefur orðið á nýgengi sveppasýk- inga í blóði hjá börnum hérlendis á síðastliðnum 20 árum. Greining alvarlegra sveppasýkinga er oft tor- veld og neikvæð blóðræktun útilokar ekki dreifða sýkingu. í ljósi hækkandi nýgengis og hárrar dánar- tíðni er mikilvægt að hafa umræddar greiningar í huga hjá mikið veikum börnum. 'Læknadeild Háskóla íslands, ;Barnaspítali Hringsins, 3sýklafræöideild Landspítala Hringbraut, ^Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði, 'lyflækningadeild Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Magnús Gottfreðsson, lyflækningadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími 560 1000; netfang: magnusgo@landspitali.is Lykilorð: blóðsýkingar, börn, nýburar, sveppasýkingar. ENGLISH SUMMARY Ásmundsdóttir LR, Guðnason Þ, Elvarsson F, Erlends- dóttir H, Jóhannsson JH, Hilmarsdóttir I, Gottfreðsson M Fungemia and other invasive fungal infections in lcelandic children. A nationwide study Læknablaðið 2001; 87: 783-90 Introduction: Invasive fungal infections are increasing in incidence. Among those who are at increased risk of fungal blood stream infections (fungemia) and dissemi- nated fungal infections are premature infants and immuno- suppressed children. These infections are associated with high morbidity and mortalíty. Invasive fungal infections have not yet been studied in lceland. Material and methods: We studied all cases of fungemia and/or disseminated fungal infections in lcelandic children (<16 years) during a 20 year period. Histopathology reports and autopsies were reviewed. Information on predisposing factors, symptoms, treatment and outcome was collected. All obtainable fungal blood stream isolates were subcultu- red and their susceptibility to common antifungals deter- mined. Results: In the 20 year period from 1980-1999, 19 episodes of invasive fungal infections were diagnosed in 18 infants and children in lceland. Twelve episodes of fungemia occured in 11 children and the nationwide annual incidence increased from 0.28 to 1.90 cases/100,000/year (p=0.037) during the study period. Half of the children were premature infants. All patients had a central venous catheter at the time of blood culture and most had received intravenous antibiotics or corticosteroids. Candida albicans was the most commonly isolated species (nine of 12 episodes, 75%). In addition to patients with fungemia, three children were diagnosed with dissemi- nated fungal infection by histology or autopsy. Two cases of fungal meningitis, without fungemia, were identified. Furthermore, two children had invasive infections with Aspergillus fumigatus and both patients survived. Three children (3/16; 19%) with invasive Candida-infections died. Conclusions: In this study of invasive fungal infections among lcelandic children we demonstrate that the incidence of fungemia has risen significantly in the past 20 years. Diagnosis of invasive fungal infections can be complicated and negative blood cultures do not exclude disseminated infection. Given the high attributable mortality, timely diagnosis and aggressive treatment is extremely important. Key words: blood stream infections, fungemia, invasive fungal infections, children, neonates. Correspondence: Magnús Gottfreðsson. E-mail: magnusgo@landspitali.is Læknablaðið 2001/87 783

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.