Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2001, Page 42

Læknablaðið - 15.10.2001, Page 42
Flokkun eftir verkun: Lyf við offitu (ATC-flokkun A08AB01). Lyfjaform og útlit: Hylki. blágrœn með áletrun „ROCHE' og „XENICAL 120'. Virk innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 120 mg orlístat. Lyfhrif: Orlístat er krðftugt, sértœkt og langverkandi lyf sem hamlar virkni lípasa í meltingarveginum. Það verkar í maga og smágirni með því að mynda samgilt tengi við virka serín setið á lípasa í maga og lípasa frá brisi. Óvirka ensímið getur því ekki hýdrólýserað fitu úr fœðunni, á formi þríglýseríða, yfir í fríar fitusýrur og elnglýseríð. Ábendingar: Xenical er œtlað ásamt hitaeiningaskertu fœði til meðferðar hjá offitusjúklingum með þyngdarstuðul (BMI= þyngd(kg)/hœð(m) hœð(m)) hœrri eða jafn og 30 kg/mJ (BMI) eða yfirþyngdar-sjúklingum (BMI 28 kg/m2) með tengda áhœttuþœtti. Meðferð með orlístati œtti einungis að hefja ef megrunarfœði eingöngu hefur leitt til minnst 2,5 kg þyngdartaps á 4 vikum. Meðferð með oriístati á að hœtta eftir 12 vikur ef sjúklingi hefur ekki tekist að losa sig við a.m.k. 5% af líkamsþyngd sinni reiknað frá upphafi lyfjameðferðar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur af oriistati er eitt 120 mg hylki, sem á að taka rétt fyrir, með eða allt að einni klst. eftir máltíð. Sé máltíð sleppt eða hún án fitu á að sleppa að taka lyfið inn. Sjúklingurinn á að vera á fœði sem inniheldur öll nauðsynleg nœringarefni, en aðeins fœrri hitaeiningar en hans daglega þörf segir til um og œtti um 30% hitaeininganna að vera úr fitu. Mœlt er með ríkulegri neyslu ávaxta og grœnmetis. Daglegri neyslu fitu, kolvetna og próteins skal dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ekki hefur verið sýnt fram á að oriístat skammtar stœrri en 120 mg þrisvar á dag bœti árangur. Áhrif orlístats leiða til aukningar á fitu í saur, strax 24-48 klukkustundum eftir inntöku. Þegar meðferð er hœtt verður fituinnihald hœgða yfirleitt aftur eins og það var fyrir meðferð, innan 48-72 klukkustunda. Upplýsingar um öryggi og verkun eftir 2 ára notkun eru ekki fyririiggjandi, því œtti meðferð með orlístati ekki að vara lengur en í 2 ár. Sérstakir sjúklingahópar: Áhrif orlístats hjá sjúklingum með lifrar- og/eða nýrnabilun, börnum og öldruðum sjúklingum hafa ekki verið rannsökuð. Börn: Oriístat er ekki œtlað til notkunar handa bömum. Frábendingar: Langvinnt vanfrásogsheilkenni. Gallteppa. Brjóstagjöf. Þekkt ofnœmi fyrir orlístati eða einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Orlístat er ekki ráðlagt til notkunar á meðgöngu. Sérstök varúð og varúöarreglur varöandi notkun: í klínískum rannsóknum var minnkun líkamsþyngdar við orlístat meðferð minni hjá sjúklingum með fullorðinssykursýki heldur en hjá sjúklingum sem ekki voru með sykursýki. Þegar orlístat er tekið getur nákvœmt eftirlit með sykursýki lyfjameðferð verið nauðsynlegt. Meðferð með orlistati getur hugsanlega truflað frásog fituleysanlegra vítamína (A, D, E, K). Flestir sjúklinganna. sem fengu meðferð með orlistati í allt að 2 ár í klínískum rannsóknum voru með A-. D-, E- og K-vítamín og betakarótíngildi sem voru Innan eðlilegra marka. Til að tryggja fullnœgjandi nœringu á að ráðleggja sjúkllngum á megrunarfœði að neyta fœðu sem inniheldur ávexti og graen- meti og íhuga skal neyslu fjölvítamína. Vítamín á að taka minnst 2 klst. eftir gjöf orlístats eða að kvöldi fyrir svefn. Ráðleggja skal sjúklingum aö halda sig við það matarœði sem mœlt er með (sjá kafla um skammta). Hœtta á meltingartruflunum (sjá kafla um aukaverkanir) getur aukist þegar orlístat er tekið með fituríkri fœðu (t.d. fœða með 2000 hitaeiningum á dag, þar sem > 30% hitaeininga úr fitu jafngildir > 67 g af fitu). Daglegri fituneyslu œtti að dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ef orlístat er tekið með einstakri fiturikri máltíð, geta líkur á meltingartruflunum aukist. Milliverkanir: Samtímis gjöf orlístats og fíbrata, akarbósa, biguaníða eða lyfja sem valda lystarleysi er ekki ráðlðgð ef rannsóknir á milliverkunum eru ekki fyrirliggjandi. Þegar warfarín eða önnur segavarnarlyf eru gefin ásamt orlístati (stórir skammtar og langtíma meðferð) á að fylgjast með blóðstorkugildum. Engar milliverkanir við dígoxín, fenýtóin, getnaðan/arnartöflur, nífedipín, nífedipín forðalyf, eða alkóhól hafa komið fram. Pravastatín: Ef oriístat er gefið sjúklingum sem taka pravastatín aukast (skammtaháð) aukaverkanlr pravastatíns, þ.á.m. rákvöðvasundrun, vegna aukinnar blóðþéttni pravastatíns. Það getur þurft að breyta skammti pravastatíns. Vitamin og betakarótín: Taka þarf tillit til minnkunar á frásogi D- og E-vítamíns og betakarótíns (sjá kafla um sérstðk varúð og varnaðarorð varðandi notkun). Meðganga og brjóstagjöf: Notkun orlístats á meðgöngu er ekki ráðlögð. Enn sem komið er eru ekki fullnœgjandi upplýsingar fyririiggjandi um tóku orlístats hjá þunguðum konum til þess að meta hugsanleg áhrif orlístats á því að valda afbrigðileika i fóstri eða eituráhrifum. Þar sem ekki er vltað hvort orlístat berst í brjóstamjólk á ekkí að nota orlístat við brjóstagjöf. y Áhrif á akstur og stjórnun vélknúinna tœkja: Ekkert hefur komlð fram sem bent gœti til að lyfið hafi áhrif á hœfni til aksturs eða stjórnunar vólknúinna tœkja. inir af völdum orlístats eru aðallega frá mettingar- ári voru algengustu aukaverkanirnar fitublettir frá ). hœgðavottur með vindgangi (24% sjúklinga); bráö (22% sjúklinga), fitugar/selgfljótandi hœgðir; (20% hœgðir (12% sjúklinga), aukln hœgða-losun |(11% ) stjórn á hœgðum (8% sjúkllnga). Tíðni aukaverkana minnkaði meö langtímanotkun orlístats. Aörar meðferðortongaar aukaverkanir sem komu fram við tíðni > 2% ogl með tíðnl >1% yfir lyfleysu voru: Meltingarfœri: Kvlöverkir/-óþœgindi, vindgongur, lr. verkir/óþœglndi í endaþarmi, tannkvillar og ni: Sýkingar í efri öndunarfœrum. sýkingar í neöri >rfi. Höfuðverkur. Kynfœri: Tiðatruflanir. Ged Kvíði. Sýkingar í þvagrás, Aukaverkanir: Auka\ vegi. Á fyrsta meðf< endaþarmi (27% sjúklir þörf fyrir hœgða-losi sjúklinga), þunnfljótant sjúklinga) og vangeta þunnfljótandi hœgðir. linar tannholdskvillar. Öndum öndunarfœrum. Miðtaugi. Almennar: Þreyta. Þvagfc Ofskömmtun: Ekki hefur verlð greint frá ofskömmtun orlístats. Elnstakir 800 mg skammtar og endurteknir skammtar allt að 400 mg þrlsvar á dag i |5 daga hafa verið prófaðir bœði hjá fólki sem er ínnan eðlilegra þyngdarmarka og hjá offitusjúklingum. án marktœkra aukaverkana. Auk þess hafa 240 mg skammtar þrisvar á dag verið gefnir offitusjúklingum í sex mánuðl. Eigi umtalsverð ofskömmtun orlístats sér stað, er mœlt með því að fylgst só með sjúklingnum í sólarhring. Rannsóknir á dýrum og mönnum hafa bent tll þess að öll áhrif á líkamann af völdum hömlunar á Ðpasa gangi hratt til baka. Pakkningar og hámarksverð í smásölu frá U. 2001: Hylkl 120 mg: 42 stk. (þynnupakkað); 5.490 kr.; 84 stk. (þynnupakkaö): 9.783 kr. Greiðslufyrirkomulag: Tryggingastofnun rikisins tekur ekki þátt í greiðsu lyfsins nema sjúklingur hafi lyfjaskírteini. Elli- og örorkulífeyrisþegar með lyfjaskirteini greiða að hámarki 1.250 krónur fyrir lyfið, en aðrlr að hámarki 4.500 krónur. Afgrelöslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Heimilt er að ávisa lyflnu til 100 daga notkunar í senn. Heimlldir: 1) Sjöström L, Rissanen A. Andersen T, et al. Randomlsed placebo- controlled trial of orlistat for weight loss and prevention of weight regain In obese patients. Lancet 1998; 352; 167-73. 2) Hollander PA. Elbeln SC, Hirsch IB. et al. Role of orlistat in the treatment of obese patlents wlth type 2 diabetes. Diabetes Care 1998; 21 (8): 1288-94. 3) WHO. Prevention and management of the global epldemic of obesity. Report of the WHO Condultation on Obesity (Geneva. 3-5 June, 1997). Geneva: WHO. Megrunarlyf viö offitu XENICAL o r I í s t a Fyrir þá sem þurfa að léttast t Xenical veldur þýðingarmiklu þyngdartapi hjá offitusjúklingum*, og yfirþyngdar- sjúklingum** með tengda áhœttuþœtti, sem eru á megrunarfœði:12 Þeir léttast helmingi hraðar og helmingi meira ef þeir taka Xenical í stað lyfleysu. * þyngdarstuðull (BMI) > 30 kg/rrf ** með þyngdarstuðul (BMI) >28 - 30 kg/rrf Fylgikvillar offitu3: Verulega aukin áhœtta (yfir Þreföld áhœtta) Sykursýki (gerö 2) Gallblöðrusjúkdómar Hœkkaöar blóöfitur Insúlínviðnám Mœöi Kœfisvefn Töluvert aukin áhœtta (tvö- til Þreföld áhœtta) Kransœöasjúkdómur Háprýstingur Slitgigt í hnjám Þvagsýrudreyri/-gigt Lítillega aukin áhœtta (allt aö tvöföld áhœtta) Brjóstakrabbamein eftir tíöahvörf Legslímukrabbamein Risfilkrabbamein Óeðlileg hormónaframleiösla í œxlunarfœrum Fjölblööru-eggjastokksheilkenni Minnkuö frjósemi Mjóbaksverkir Aukin áhœtta viö svœfingu Fósturgallar sem tengjast offitu móður Hylki 120 mg: 42 stk.; 84 stk. 1 hylki 3svar á dag með mat Roche Thorarensen Lyf Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 530 7100 Hoffmann - La Roche

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.