Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2001, Qupperneq 47

Læknablaðið - 15.10.2001, Qupperneq 47
FRÆÐIGREINAR / PERSÓNUGREINING í GAGNAGRUNNI Þetta stenst ekki. Dulkóðun í eina átt merkir ekki að ekki sé til lykill. Dulkóðun í eina átt merkir ein- ungis að erfitt eða reiknifrekt er að rekja sig beint til baka frá fastanúmeri að kennitölu eða nafni. Með því að taka þessa skilgreiningu inn er verið að koma aftur með hugmyndina að „verulegan tíma og mann- afla“ þurfi til. Þeirri hugmyndafræði var tölvunefnd þegar búin að hafna enda er hún ekki hluti að tilskip- un ESB. Þvert á móti ber að taka mið af öllum þeim aðferðum sem með sanngirni má hugsa sér líklegt að ábyrgðaraðili eða hvaða annar aðili sem er kynni að beita til að bera kennsl á einstaklinginn (8). Embættismenn ríkisins, sem falið er að framfylgja þessum lögum, halda því sumir fram að í skilningi laganna sé um ópersónugreinanleg gögn að ræða. Sumir gagnrýnendur hafa kallað þetta flatjarðar- kenninguna: ef lagatexti fullyrðir að jörðin sé flöt þá er hún flöt í skilningi laganna. Par sem gagnagrunns- lögin segi að dulkóðun í eina átt merki umbreytingu persónuauðkenna í fastanúmer sem ekki sé hægt að rekja til baka með greiningarlykli að þá sé ekki til lykill í skilningi laganna. 1.6. Viðurkennt að lykill er enn til Bæði Kári Stefánsson og heilbrigðishópur gagna- grunnsdeildar íslenskrar erfðagreiningar hafa nýlega staðfest að lykill er til. í viðtali við Kára Stefánsson í New Scientist 15. júlí 2000 (11) segir hann varðandi samtengingu erfðaupplýsinga við heilsufarsuplýsing- ar: „Once we have identified a family with one of these diseases, what we will do is to go to those people and ask them to give us blood so that we can isolate DNA.... When we do this, we will ask for their permission to cross-reference their names with the help of the health-care database. But in order to do this, we will have to get their explicit, signed consent. (NS:) Does this mean that you can identify individuals from the database? No. The information in the database will be encrypted and the keys will be kept by the Data Protection Commission of Iceland." Kári Stefánsson viðurkennir því að til séu lyklar og segir að þeir verði í vörslu Persónuverndar. Lykl- arnir eru sagðir vera í vörslu annars aðila en þess sem hefur gögnin. Þeirri hugmyndafræði hafði tölvunefnd þegar hafnað þegar hún sagði það „engu máli skipta, hvort sá aðili, sem upplýsingarnar hefur undir hönd- um, hefur aðgang að greiningarlyklinum eða ekki.“. I grein í Morgunblaðinu 27. febrúar 2001 (12) segir heilbrigðishópur ÍE að heilsufarsupplýsingar verði gerðar ópersónugreinanlegar: „Mjög háþróaðar tæknilausnir hafa verið hannað- ar og verða notaðar til að þrídulkóða kennitölu einstaklinga í eina átt. Hver dulkóðun er gerð eftir sérstökum dulkóðunarlykli sem stenst afar strangar tæknilegar öryggiskröfur. Til að afkóða kennitöluna og persónugreina þannig heilsufars- upplýsingar sem einnig eru kóðaðar og dulkóðað- ar þyrfti að nota alla þrjá lyklana í réttri röð. Svo að slíkt geti ekki gerst er gert ráð fyrir að dulkóð- unarlyklarnir verði í höndum þriggja mismunandi aðila (heilbrigðisstofnananna sjálfra, Persónu- verndar og IE). Þessi sjálfvirka þrefalda dulkóðun brenglar kennitölur þannig að mögulegt verður að uppfæra gögn einstaklinga þegar þau koma í MGH (Miðlægan Gagnagrunn á Heilbrigðis- sviði), án þess þó að þau verði nokkurn tíma per- sónugreinanleg eftir að þau eru afrituð úr sjúkra- skýrslum. Þrátt fyrir slíkar öryggisráðstafanir sem fullyrða má að séu einstakar í sögu íslenskra vís- indarannsókna draga jafnvel aðilar, sem kunnugir eru vísindarannsóknum af þessu tagi, í efa að gögnin verði í raun ópersónugreinanleg." Hér viðurkennir einnig starfshópur ÍE að til eru lyklar að upplýsingunum og að unnt er að persónu- greina einstaklinga með því að beita lyklunum. Að segja að „afar strangar tæknilegar öryggiskröfur“ séu gerðar merkir væntanlega að „verulegan tíma og mannafla“ þyrfti til að brjóta kóðann. Vel má vera að svo sé en þeirri hugmyndafræði hafnaði tölvunefnd og hún kemur málinu ekki lengur við, enda er sú hug- myndafræði ekki hluti af tilskipun ESB. 1.7. Persónugreinanleg gögn Eftir að hafa rakið þessa sögu er niðurstaða mín sú að vissulega sé til lykill eða lyklar sem hægt er að nota til að persónugreina einstakling. Engu máli skiptir, hvort sá aðili, sem upplýsingarnar hefur undir hönd- um, hefur aðgang að greiningarlyklinum eða ekki og hvort greiningarlykillinn er í einum hluta eða fleiri. Ekki er hægt að fallast á að dulkóðun í eina átt geri upplýsingar ópersónugreinanlegar sem ekki er hægt að rekja til baka með greiningarlykli. Sú forsenda lokaútgáfu frumvarpsins og gagnagrunnslaganna að ekki sé hægt að ljúka upp grunninum með lykli stenst því ekki. Enda staðfesta nú Kári Stefánsson og sérfræðingar ÍE það að til er lykill. Sú forsenda frumvarpsins og laganna að ekki sé hægt að rekja sig til baka með lykli er því ekki rétt. Gögnin eru því persónugreinanleg samkvæmt gagna- grunnslögunum (1) og samkvæmt persónuverndar- lögunum (13) sem bæði byggja á tilskipun ESB (95/46/EC). Island er nú þjóðréttarlega skuldbundið skilyrðum og skilgreiningum tilskipunar ESB. Ef ís- land ætlar að uppfylla þær skuldbindingar ber að afla fyrirfram samþykkis fyrir flutning gagna í gagna- grunn á heilbrigðissviði. Margföld dulkóðun í eina átt breytir engu um það. í lögunum (1) og í frumvarpinu og greinargerð með því (9) er því haldið fram, eins og fram kemur í þessum skilgreiningum, að dulkóðun í eina átt sé að- ferð til að gera upplýsingar um persónugreinanlegan Læknablaðið 2001/87 811
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.