Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 81

Læknablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 81
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 11 María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Faraldsfræðí í dag Sjúklingasamanburðarrannsóknir IV Söfnun gagna Áður en nokkur gagnasöfnun hefst er nauðsynlegt að skilgreina nákvæmlega sjúkdómstilfellin (cases) og samanburðarhópinn (controls) eins og fjallað hefur verið um í fyrri pistlum um sjúklingasamanburðar- rannsóknir (SSR). Síðan er safnað upplýsingum um áreitið, áhættuþáttinn eða hugsanlega orsök sjúk- dómsins annars vegar en um útkomuna eða sjúk- dóminn og birtingarform hans hins vegar. Einnig þarf yfirleitt að safna gögnum um raskandi þætti (con- founders) og þætti sem geta valdið milliverkunum (effect modification, interaction). Meginniðurstöður sjúklingasamanburðarrannsókna felast síðan í sam- anburði á tíðni áreitisins meðal þeirra sem hafa sjúk- dóminn og hinna sem hafa hann ekki. Upplýsingum um sjúkdómsástand er oft safnað úr fyrirliggjandi skrám, svo sem um krabbamein og at- vinnusjúkdóma. I slíkum skrám er yfirleitt að finna nokkuð greinargóð gögn um sjúkdóminn, svo sem sjúkdómsgreiningu, útbreiðslu eða stig sjúkdóms, og jafnvel meðferð og árangur eða afdrif sjúklingsins. Hins vegar innihalda skrámar almennt ekki upplýsing- ar um áreiti eða orsakir sjúkdómsins eða um aðra þætti sem geta haft áhrif á tilurð og framgang sjúkdómsins. Ef ekki eru til sérstakar skrár um þann sjúkdóm sem rannsóknin beinist að þarf að leita annarra ráða. Pannig má nota dánarvottorð, vottorð til Trygginga- stofnunar, og fleiri skjöl af svipuðum toga til að bera kennsl á einstaklinga sem hafa sjúkdóminn og afla nauðsynlegra gagna um hann. Hið sama gildir þó hér eins og um upplýsingar úr sjúkdómaskrám að alla jafna er þar aðeins að finna upplýsingar um sjúkdóm- inn eða útkomuna en ekki upplýsingar um áreiti eða hugsanlega áhættuþætti. í sumum tilvikum er nauðsynlegt að skoða sjúk- lingana sérstaklega eða gera ákveðnar rannsóknir eða mælingar til að afla upplýsinga um sjúkdóminn sem tiltekin sjúklingasamanburðarrannsókn beinist að. Söfnun upplýsinga um áreiti eða orsakir sjúk- dómsins krefst yfirleitt sérstakrar gagnaöflunar þar sem slíkar upplýsingar eru að jafnaði ekki skráðar í sjúkraskýrslur eða sérstakar sjúkdómaskrár. Þó eru undantekningar á því, svo sem ef áhættuþátturinn eða áreitið er algengt og þekkt að því að hafa áhrif á heilsufar eða ef áreitið tengist heilsu eða heilbrigðis- þjónustu. Upplýsingar um slík áreiti eða áhættuþætti, til dæmis reykingar, blóðflokk eða tiltekna lyfja- meðferð, er gjarnan að finna í sjúkraskrám. Eins má finna upplýsingar um suma starfstengda áhættuþætti í sérstökum skrám. Sem dæmi má nefna mælingar á geislun starfsmanna á röntgendeildum. Þó áreitið sé ekki beinlínis tengt heilsufari eða heilbrigðisþjónustu getur verið mögulegt að finna um það upplýsingar í skrám eða skjölum, svo sem skýrsl- um atvinnurekenda um vinnutíma starfsmanna (til dæmis flugtímar hjá flugmönnum) eða skýrslum fyrirtækja (til dæmis farsímanotkun einstaklinga). Þegar engar slíkar skrár eru fyrir hendi þarf að afla upplýsinga sérstaklega um áreitið bæði meðal sjúkdómstilfella og samanburðareinstaklinga. Slíkt má gera með ýmsum hætti, til dæmis með því að nota spurningalista eða viðtöl. Ekki er alltaf mögulegt eða æskilegt að safna upplýsingunum beint frá þátttak- endum sjálfum, stundum er þeim aflað frá staðgengl- um (proxies), sem oftast eru aðstandendur þátttak- enda, eða frá læknum og öðru heilbrigðisstarfsólki sem annast hafa þátttakendur. Grundvallaratriði við gagnasöfnun í sjúklinga- samanburðarrannsóknum, óháð því hvaða aðferð er beitt, er að safna gögnunum með sama hætti meðal beggja hópanna. Ef þessa er ekki gætt getur það vald- ið skekkju í upplýsingunum (information bias) og þar með skekkju í niðurstöðunum. Upplýsingaskekkja getur átt sér margar rætur og er nokkuð misjafnt eftir eðli hverrar sjúklingasaman- burðarrannsóknar hver þeirra er mikilvægust. Skekkj- an getur átt rót sína að rekja til þess hvernig spurning- ar eru lagðar fyrir þátttakendur, hvemig spyrjendur eða aðrir sem safna gögnum em þjálfaðir og hve mikið þeir vita um sjúkdóminn, einnig getur skekkjan stafað af upplifun og hugmyndum þátttakenda um sjúkdóm- inn. Nokkur dæmi eru rakin hér á eftir. Minnisskekkja (recall bias) vísar til þess að sjúk- dómur getur haft áhrif á hve vel einstaklingar muna eftir áreitinu. Fyrir því geta verið líffræðilegar orsak- ir, svo sem ef um minnistap eða elliglöp er að ræða, eða aðrar orsakir, til dæmis verður sjúkdómur stund- um til þess að fólk reynir eftir mætti að rifja upp alla atburði sem það telur geta tengst sjúkdómnum. Frá- sagnarskekkja (reporting bias) er svipað fyrirbæri en á við þegar fólk kýs að segja frá reynslu sinni af áreit- inu á annan hátt ef það hefur sjúkdóminn en ef það hefur hann ekki. Einkum er hætt við þessu ef áreitið er tengt hegðun sem álitin er óæskileg eða jafnvel ólögleg, svo sem neysla fíkniefna. Spyrilskekkja (interviewer bias) verður til ef sá sem aflar upplýsinga um áreitið gerir það á mismun- andi vegu eftir því hvort um sjúkdómstilfelli eða sam- anburðareinstakling er að ræða. Slík skekkja getur komið fram hvort sem notaður er spurningalisti, viðtal, eða leit í sjúkraskrám til að afla upplýsinga. Því er jafnan lögð áhersla á að þeir sem safna gögnum um áreiti viti ekki hvort viðkomandi þátttakandi hefur sjúkdóminn eða ekki (talað er um að blinda rannsakendur). Læknablaðið 2001/87 845
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.