Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 85

Læknablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 85
UMRÆÐA & FRETTIR / BROSHORNIÐ 19 Ferðaleiftur og leti Bjarni Jónasson Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið. Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjarni.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Rölt um Hornstrandir og Jökulfirði Hópur fólks á miðjum aldri og þar um bil, alls 20 manns, ákvað að fara í gönguferð um Vestfirði í ágúst síðastliðnum undir leiðsögn Eiríks fararstjóra. Áætl- unarstaðirnir voru Hlöðuvík á Hornströndum og Hesteyri, ásamt Grunnavík í Jökulfjörðum. Mark- miðið var að fara í gönguferðir út frá þessum stöðum og ganga síðan eða trússa á milli þeirra á átta dögum. Þarna voru, svo einhverjir séu nefndir, kollegarnir Friðrik Vagn, Sveinn og Bjarni og betri helmingar þeirra. Þá voru einnig með í för fjórar lífsglaðar kon- ur frá Akureyri, sem tilheyrðu föruneyti Friðriks Vagns. Á öðrum degi var gengið í Hælavík, um Hælavík- urbjarg og til baka í Hlöðuvík. Farið var um vegleys- ur eins og snarbrattar brekkur, urðir, móa, snjóskafla og einstigi. Ganga þessi stóð í rúmar 10 klukkustund- ir og kostaði suma blóð, svita og tár. Ein konan frá Akureyri fékk slæm sár á báða hælana og þurfti af þeim sökum sérstaka aðhlynningu læknis í hópnum tveimur dögum seinna. Svo vildi til að hópurinn var þá staddur í Læknishúsinu á Hesteyri. Það kom í hlut læknis að sunnan að búa um það sem eftir var af hæl- um konunnar, en hann hafði af einhverri óskiljan- legri ástæðu vaselíngrisjur með í farteskinu. í litlu samfélagi eins og gönguhópi fara lækningar, eins og þarna áttu sér stað, ekki leynt. Vegna athyglinnar og umhyggjunnar sem konan með löskuðu hælana varð aðnjótandi þurfti enga sérstaka næmni til að skynja vott af öfund og afbrýðisemi í garð hennar úr hópi lífsglöðu kvennanna að norðan, sem ekki þurftu á læknishjálp að halda. Þegar læknirinn var að festa síðasta plásturinn á konuna með hælana heyrðist ein tuldra: „Það er verstur andsk.... að það skuli ekki vera neitt að manni.“ Ertu læknir ? Þjóðverjinn Dieter var 65 ára gamall og hafði dvalist á Islandi í tæpt ár. Hann hafði meðal annars unnið sem kaupamaður til sveita og þekkti því orðið allvel til á Fróni. Hann skildi meira að segja hrafl í íslensku. Dieter hafði einsett sér að ganga á Vestfjörðum með sínum hætti. Hann gekk alltaf staflaus síðastur í röðinni og valdi yfirleitt aðra staði en þorri hópsins til að fara yfir ár og læki. Hann var allan tímann ótrú- lega vel dúðaður og í þeirri einmuna blíðu sem ein- kenndi alla ferðina svitnaði samferðafólkið sumt hvert af því einu að horfa á manninn. Hann hafði mikinn áhuga á landi og þjóð og það var bókstaflega ekki hægt annað en að lenda í samræðum við hann ef maður lenti aftarlega í gönguröðinni. Hægt er að full- yrða, að á þeim átta dögum sem ferðin stóð varð Dieter margs vísari um hagi samferðamanna sinna. Á síðasta degi var gengin gömul póstmannaleið frá Grunnavík yfir á Snæfjallaströnd. Þjóðverjinn gekk aftastur eins og venjulega og undirritaður næst- aftastur. „Hvað starfar þú, Bjarni?,“ spurði Dieter á sinni auðskildu og ágætu ensku. „Ég er læknir, heim- ilislæknir,“ svaraði ég, minnugur þess að hafa stund- að töluverðar lækningar í ferðinni, sem voru á flestra vitorði. Maðurinn horfði undrandi á viðmælanda sinn og virtist ekki vera með á nótunum. „General practitioner, Allgemeiner Arzt, Hausarzt," bætti ég við og reyndi að tína til allt sem mér datt í hug til að skýra málið. Dieter var nú orðinn eitt spurninga- merki í framan. „Ertu læknir, í alvöru?,“ hváði hann og virtist vera öllum lokið, „og ég sem hélt að þú hefðir verið að grínast.“ („Are you really a doctor. I thought it was a joke.“) Stuttu síðar tróð ég mér framar í röðina. Augnskoðun Tékki, sem hélt að sjónin væri að versna, fór til augn- læknis. Læknirinn skoðaði augun fyrst og prófaði síð- an sjónina á hefðbundinn hátt. Hann bað Tékkann að lesa stærstu stafina fyrst og svo minnkaði letrið. CRKBNWXSKZY ... „Geturðu lesið þetta?,“ spurði læknirinn. „Hvort ég get. Ég þekki meira að segja manninn!“ Leti Maður kom til læknis til að fá úr því skorið af hverju hann væri ekki jafn duglegur til verka heima við og áður. Þegar læknirinn hafði skoðað manninn sagði sá síðarnefndi: „Jæja læknir, segðu mér nú umbúðalaust á hreinni íslensku hvað að mér gengur.“ „Ef þú vilt að ég tali tæpitungulaust eins og Árni Björnsson þá er ekkert annað að þér en leti.“ „Nú já,“ sagði maðurinn. „Værir þú ekki til í að segja mér hvernig það hljómar á læknamáli, ef konan færi að spyrja mig hvað þú hefðir sagt.“ Læknablaðið 2001/87 849
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.