Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 6

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 6
AVANDIA® ROSIGLITAZON - Ný aðferð við meðhöndlun sykursýki af tegund 2 LÆKKAÐUR BLÓÐSYKUR Avandia® minnkar insúlínþol, verndar R-frumur briskirtilsins og bætir langtímastjórnun blóðsykurs.12) Avandia® Rósiglítazón. Lyf við blóðsykurhækkun, ATC flokkur: A10 BG 02 Rósiglitazón er sérhæfður viðtakablokki sem binst PPARg (peroxisomal proliferator activated receptor gamma) kjarnaviðtaka og tilheyrir sykursýkislyfjum af tiazólidindiónflokki. Það dregur úr blóðsykurshækkun með því að draga úr viðnámi insúlíns i fituvef, beinagrindarvöðvum og lifur. Lyfjaform: Filmuhúðaðar töflur (4 mg og 8 mg). Abendingar: Rósíglítazón er einungis ætlað i samsettri meðferö til inntöku við sykursýki af tegund 2 hjá sjúklingum með ófullnægjandi blóðsykurstýringu þrátt fyrir hámarksskammt sem sjúklingurinn þolir af annað hvort metformíni eða súlfónýlúrealyfi einu sér til inntöku:-með metformíni einu sér hjá offitusjúklingum. með súlfónýlúrealyfi einu sér hjá sjúklingum sem sýna óþol við metformíni eöa þar sem metformin er frábending. Skammtar og lyfjagjöf: Venjulega hefst rósiglitazónmeðferð á 4 mg/dag. Frábendingar: Ekki má nota rósíglitazón hjá sjúklingum með: þekkt ofnæmi fyrir rósíglitazóni eða einhverju hjálparefnanna í töflunum eöa hjartabilun eða sögu um hjartabilun (I.- IV. stig NYHA) eða skerta lifrarstarfsemi. Rósíglítazón á heldur ekki að nota samhliða insúlini.Varnaðarorð og varúðarreglur: Ekki er fyrirliggjandi klínísk reynsla af notkun rósíglítazóns með tveimur öðrum sykursýkilyfjum til inntöku.Ekki ætti að nota rósiglitazón sem eins lyfs meðferð.Vökvauppsöfnun og hjartabilun: Rósíglitazón getur valdið vökvauppsöfnun sem getur aukið eða komið af stað hjartabilun. Fylgjast þarf með visbendingum og einkennum um hjartabilun hjá sjúklingum, einkum þeim sem eru með skerta hjartastarfsemi. Hætta á meðferð með rósíglítazóni ef hjartastarfsemi versnar á einhvern hátt. Aukin tiðni hjartabilunar hefur sést i klinískum rannsóknum þegar rósíglítazón er notað með insúlíni. Þvi skal ekki nota rósiglitazón með insúlíni. Einnig var oftar greint frá hjartabilun hjá sjúklingum með sögu um hjartabilun, hjá öldruðum og hjá sjúklingum með væga eða miðlungi mikla nýrnabilun. Þar sem bólgueyöandi gigtarlyf (NSAID) og rósiglítazón tengjast vökvauppsöfnun, getur samhliða gjöf þeirra aukið líkur á bjúg. Eftirlit með lifrarstarfsemi: Stöku sinnum hefur verið greint frá vanstarfsemi lifrar eftir að lyfið kom á markað. Þvi er ráðlegt að fylgst sé reglulega með lifrarensímum hjá sjúklingum í rósíglítazónmeðferð. Rannsaka ætti lifrarensím hjá öllum sjúklingum áður en meðferð með rósíglítazóni hefst. Ekki ætti að hefja meðferð með rósíglitazóni hjá sjúklingum með hækkuð grunngildi lifrarensíma (ALT > 2.5x efri mörk eðlilegra gilda) eða aðrar vísbendingar um lifrarsjúkdóm. Eftir að meðferð meö rósiglítazóni er hafin er ráðlegt að fylgst sé með lifrarensímum á tveggja mánaða fresti fyrstu 12 mánuðina og reglulega eftir það. Ef ALT gildi hafa hækkað upp i >3x efri mörk eðlilegra gilda meðan á meðferð með rósiglítazóni stendur, skal meta að nýju gildi lifrarensíma eins fljótt og auðið er. Ef ALT gildi halda áfram að vera >3x efri mörk eðlilegra gilda, skal hætta meðferð. Ef sjúklingur þróar einkenni sem benda til vanstarfsemi lifrar, sem m.a. getur lýst sér með ógleði af óþekktum orsökum, uppköstum, kviðverkjum, þreytu, lystarleysi og/eða dökkleitu þvagi, ætti að rannsaka lifrarensim. Ákvörðun um hvort halda eigi áfram að meðhöndla sjúklinginn með rósiglítazóni á að taka út frá klínisku mati byggðu á rannsóknarniðurstöðum. Veröi vart gulu á aö hætta lyfjameöferð. Þyngdaraukning: í klíniskum rannsóknum á rósiglitazóni komu fram merki um þyngdaraukningu. Þvi ætti að fylgjast náið með þyngd. Blóðleysi: Meðferð með rósiglitazóni tengist lækkuðum blóðrauðagildum. Hjá sjúklingum með lág blóðrauðagildi fyrir meðferð er aukin hætta á blóðleysi meðan á meðferð með rósiglitazóni stendur. Aðrir: Konur fyrir tiðahvörf hafa fengið rósiglitazón í kliniskum rannsóknum. Þótt borið hafi á hormónaójafnvægi í forklíniskum rannsóknum, hefur ekki orðið vart neinna marktækra aukaverkana sem tengjast truflunum á tíðablæðingum. Afleiðing betra insúlinnæmis getur lýst sér i þvi að egglos hefjist aftur hjá sjúklingum sem ekki hafa haft egglos vegna insúlinviðnáms. Sjúklingar ættu að vera meðvitaðir um hættuna á þungun og ef sjúklingur óskar eftir að verða bamshafandi eða ef þungun verður. á að hætta meðferð. Rósíglítazón hefur ekki verið rannsakað hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi og því er ekki mælt með þvi fyrir þessa sjúklinga.Gæta skal varúðar þegar paklitaxel og rósiglítazón er gefið samhliða. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: I in vitro rannsóknum sést að rósiglitazón umbrotnar aðallega fyrir tilstilli CYP2C8 og er CYP2C9 þar aðeins minni háttar ferli. Ekki fundust neinar milliverkanir sem máli skiptu þegar digoxín, CYP2C9 ensimhvarfefnið warfarín, CYP3A4 ensímhvarfefnin nífedipín, etínýlestradiól eða noretíndrón voru gefin samhliða rósiglitazóni. Meðganga og brjóstagjöf: Rósíglitazón ætti ekki að nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota rósíglitazón. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Engin þekkt áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Aukaverkanir, sem grunur leikur á eða líklegt þykir að tengist meðferð og greint hefur verið frá oftar en einu sinni hjá sjúklingum sem fá rósíglitazón ásamt súlfónýlúrealyfjum eða metformini i tviblindum rannsóknum, eru taldar upp hér að neðan eftir liffæraflokki og tiðni þeirra.Tiðni erskilgreind sem: Algengar >1/100, <1/10; sjaldgæfar >1/1000, < 1/100. Rósiglitazón ásamt metformíni: Rauðkorn Algengar: Blóðleysi Umbrot og næringarferli Algengar: Blóðsykurslækkun. blóðsykurshækkun Sjaldgæfar: Fitudreyri. blóðsýring af völdum mjólkursýru, versnun sykursýki, kólesterólhækkun. Mið- og úttaugakerfi Algengar: Höfuðverkur Sjaldgæfar: Svimi Meltingarfæri Algengar: Niðurgangur, uppþemba, ógleði, kviðverkir, meltingartruflanir Sjaldgæfar: Uppköst, lystarleysi, hægðatregða Almennt Algengar: Þreyta. Rósiglítazón ásamt súlfónýlúrealyfjum: Rauðkorn Algengar: Blóðleysi Blóðflögublæðing og storknun Sjaldgæfar: Blóðflagnafæð Umbrot og næringarferli Algengar: Blóðsykurslækkun, blóðsykurshækkun, þyngdaraukning Sjaldgæfar: kólesterólhækkun, blóðfituhækkun, of mikið þriglýserið i blóði Geðfræðilegt Sjaldgæfar: Svefnhöfgi Mið- og úttaugakerfi Sjaldgæfar: Svimi, höfuðverkur, breytt húðskyn Öndunarfæri Sjaldgæfar: Andnauð Meltingarfæri Sjaldgæfar: Kviðverkir, uppþemba, ógleði, aukin matarlyst Húö og útlimir Sjaldgæfar: Hárlos, útbrot Almennt Sjaldgæfar: Þreyta, þróttleysi Nánari upplýsingar i Sérlyfjaskrá. Pakkningar og verð, 1. júlí 2002: 4 mgx28 stk./5.445 kr.-4 mgx56 stk./9.598 kr,- 8 mgx28 stk./8.004 kr. Afgréiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Greiðsluþátttaka: TR greiðir lyfið að fullu. Handhafi markaðsleyfis: GlaxoSmithKline. Þverholt 14, 105 Reykjavík, www.gsk.is. Heimildir: 1) Focensa V et al. Effects of Metformin and Rosiglitazone Combination Therapy in Patients With Type 2 Diabetes Mellitus. JAMA 2000:283:1695-1702.2) Wolfíenbuttel BHR et al. Addition of low-dose rosiglitazone to sulphonylurea theraphy improves glycemic control in Type 2 diabetic patients. Diabetic Medicine 2000:17:40-47.01.10.02.(a) rósiglítasón
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.