Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2003, Qupperneq 25

Læknablaðið - 15.03.2003, Qupperneq 25
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR tetraensýrur og hýdroxýeikósatetraensýrur. Eikósan- óíðar hafa áhrif á fjölmörg lífeðlisfræðileg og meina- lífeðlisfræðileg viðbrögð, svo sem viðnám æða, sega- myndun, gróningu sára og bólguviðbrögð en hafa yfir- leitt skamman helmingunartíma og verka staðbundið (8). Eikósanóíðar er myndast úr arakídónsýru nefnast díenóískir eikósanóíðar og í þeim flokki eru meðal annars prostaglandín E2, þromboxan A2 og leukó- tríen B4 (9). EPA getur líka virkað sem hvarfefni fyrir cýklóoxýgenasa og leiðir til myndunar tríenó- ískra eikósanóíða, svo sem prostacýklíns (prosta- glandín 13) sem hefur æðavíkkandi áhrif og hamlar kekkjun (þyrpingu) blóðflagna (10), og þromboxans A3 sem hvorki hefur teljandi æðaherpandi áhrif né hvetjandi áhrif á kekkjun blóðflagna (11). Þromb- oxan A2 sem myndað er úr arakídónsýru, hvetur hins vegar herpingu æða og kekkjun blóðflagna. EPA er einnig ákjósanlegt hvarfefni fyrir lípoxýgenasa og leiðir til myndunar leukotríens B5, sem hefur litla líffræðilega virkni (9,12,13). Á hinn bóginn er leuko- tríen B4 sem kemur frá arakídónsýru lykilboðefni fyrir þátttöku hvítra blóðfrumna í bólgu. Hlutfallsleg aukning styrks EPA og DHA miðað við arakídónsýru í frumuhimnum getur því breytt jafn- vægi díenóískra og tríenóískra eikósanóíða (mynd 2) og þar með haft hagstæð áhrif á meinalífeðlisfræðileg ferli í ýmsum sjúkdómum, til dæmis háþrýstingi, æða- kölkun og bólgusjúkdómum. Mýmargar frumurann- sóknir og dýratilraunir styðja að svo sé. Auk hærra hlutfalls tríenóískra eikósanóíða í blóði og frumu- himnum hefur verið sýnt fram á minni framleiðslu á interleukín-1 og æxlisdrepsþætti (tumor necrosis factor) í örvuðum einkymingum eftir meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum (14). Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur draga einnig úr gleypni át- frumna og tjáningu vefjaflokkasameinda og viðloð- unarsameinda (15,16). Ríkulegt magn ómega-3 fjöl- ómettaðra fitusýra í fæði minnkar jafnframt mark- tækt tilfærslu einkyminga í átt að efnaboðum (chemo- tactic signals) (14,17). Ekki er ólíklegt að þessi áhrif á einkyrndar bólgufrumur séu vegna minna fram- boðs á leukótríen B4. Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur og hjarta- og æðasjúkdómar Á síðustu áratugum hafa komið fram ýmsar vísbend- ingar um gagnsemi ómega-3 fjölómettaðra fitusýra og fiskneyslu við hjarta- og æðasjúkdómum. Margar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa litið á samband fisk- neyslu og dauðsfalla almennt og/eða dauðsfalla af völdum hjartasjúkdóma en niðurstöður hafa ekki verið samhljóða. Flestar rannsóknir hafa sýnt lægri dánartíðni í tengslum við fiskneyslu (18-22) en aðrar hafa engan ávinning sýnt (23-25) og fáeinar hafa sýnt aukna dánartíðni (26,27). Þetta misræmi gæti meðal annars skýrst af mismunandi áhrifum feits og magurs fiskmetis (28) eða mismunandi áhrifum fiskneyslu meðal hinna ýmsu áhættuhópa (29). Hafa verður þó í huga að rannsóknir sem þessar geta einungis sýnt fram á tengsl mataræðis og sjúkdóma en ekki sannað orsakasamband þar á milli. Þannig gætu tengsl fisk- neyslu og minni dánartíðni stafað af því að þeir sem neyta fiskafurða hreyfi sig meira eða hugi meira að heilsu sinni en aðrir og verði því langlífari. Fjölmargar vel unnar framskyggnar samanburð- arrannsóknir hafa komið fram á síðustu árum og ára- tugum sem staðfest hafa gildi ómega-3 fjölómettaðra fitusýra í meðferð ýmissa sjúkdóma í hjarta og æða- kerfi. Þannig virðast ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur leiða til lækkunar þríglýseríða í blóði, lækka blóðþrýst- ing, hindra æðakölkun og bæta blóðflæði í smáæðum og hafa fyrirbyggjandi áhrif á takttruflanir í hjarta. Figure 2. Eicosanoid formation from arachi- donicacid (ARA) and eicosapentaenoic acid (EPA) derived from cell membrane phospholipids. Abbreviations: LOX; lipoxygenase, COX; cyclooxygenase, PGE2; prostaglandin E2, TXA2; thromboxane A2, LTB4; leukotriene B4, PGE3; prostaglandin E3, TXA3; thromboxane A3, LTB5; leukotriene B5. Hækkuð þéttni þríglýseríða í blóði Hækkuð þéttni þríglýseríða í blóði er einn af áhættu- þáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Fjölmargar rann- sóknir hafa sýnt að aukin fiskneysla og meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum leiðir til verulegr- ar lækkunar á þéttni þríglýseríða í blóði (30), til dæm- is leiddi meðferð með 4 g af Omacor™ daglega til 45% lækkunar á blóðþéttni þríglýseríða samanborið við lyfleysu hjá einstaklingum með of háa þéttni þrí- glýseríða í blóði (31). í þeirri rannsókn lækkaði einn- ig *LDL-kólesteról og marktæk hækkun mældist á * ldl = íow density lipoprotcin *HDL-kólesteróli. Þau áhrif hafa þó ekki komið * hdl = high density lipoprotein fram í öllum rannsóknum og hafa sumar sýnt hækkun á þéttni LDL-kólesteróls í blóði (30). Þessi áhrif ómega-3 fjölómettaðra fitusýra á blóðfitur má rekja Læknablaðið 2003/89 201
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.